Almyrkvi 12.ágúst - stæði fyrir sölubíla
Almyrkvi 12.ágúst - stæði fyrir sölubíla
12. júní 2026
Suðurnesjabær auglýsir eftir söluaðilum vegna almyrkvans 12. ágúst 2026.
Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi sjáanlegur á Íslandi og búist er við miklum fjölda gesta í Suðurnesjabæ og þá helst á Garðskaga. Suðurnesjabær býður því upp á stæði fyrir matarbíla og sölubíla við Byggðasafnið á Garðskaga þann dag.
Upplýsingar:
- Söluaðilar skulu hafa öll tilskilin leyfi samkvæmt lögum og reglum.
- Greiða þarf stæðagjald (30.000 kr) fyrirfram til að staðfesta bókun.
- Aðgangur að rafmagni innifalinn.
- Söluaðilar bera sjálfir ábyrgð á uppsetningu, öryggi og frágangi síns svæðis.
Skráning:
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst til að tryggja stæði, takmarkað pláss. Umsóknir og nánari upplýsingar á afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Fyrir nánari upplýsingar um almyrkvan sjálfan bendum við á https://solmyrkvi2026.is/