80 ára afmæli Garðskagavita þann 10.september
		80 ára afmæli Garðskagavita þann 10.september 	
	
			
					04. september 2024			
	
	Byggðasafnið á Garðskaga fagnar 80 ára afmæli Garðskagavita þann 10. september 2024, hefst hátíðardagskrá kl. 17:30.
Þann 10 .september 1944 var Garðskagaviti hinn nýji vígður við hátíðlega athöfn. Garðskagaviti er hæsti viti landsins 28,6 m og oft kallaður Lýðveldisvitinn þar sem hann var vígður lýðveldisárið 1944.
Dagskráin verður haldin úti við Garðskagavita.
Dagskrá:
- Ávarp Magnúsar Stefánssonar bæjarstjóra
 - Séra Sigurður Grétar Sigurðsson flytur ávarp, bæn og blessun
 - Ávarp frá fulltrúa Vegagerðarinnar
 - Hjörtur Páll Davíðsson flytur ljóð Ásdísar Káradóttir vitavarðar
 - Söngsveitin Víkingar
 - Vitasýning og Lýðveldissýning á safni
 - Veitingar á Byggðasafninu á Garðskaga
 
Öll velkomin!