17.júní í Suðurnesjabæ
17.júní í Suðurnesjabæ
12. júní 2025
Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað í Suðurnesjabæ með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin í ár verður haldin við Sandgerðisskóla.
Dagskráin hefst kl.13:00 og verður hún fjölbreytt og fjölskylduvæn.
Auk hátíðarinnar við skólann verður Byggðasafnið á Garðskaga opið frá kl.10:00-17:00. Aðgangur á safnið er ókeypis og verður íslenski fáninn, fánaskraut og fleira til sölu. Garðskagaviti mun einnig vera opinn fyrir þá sem vilja skoða hann.
Suðurnesjabær hlakkar til að taka á móti íbúum og gestum og fagna þjóðhátíðardeginum saman.