Fara í efni

17. júní í Suðurnesjabæ

17. júní í Suðurnesjabæ

Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað í Suðurnesjabæ með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin í ár verður haldin við Gerðaskóla.

Dagskráin hefst kl.12:00 og verður hún fjölbreytt og fjölskylduvæn.

Auk hátíðarinnar við skólann verður Byggðasafnið á Garðskaga opið frá kl.10:00-17:00. Aðgangur á safnið er ókeypis og verður íslenski fáninn, fánaskraut og fleira til sölu.


Dagskrá:

  • Fánahylling í umsjón Reynis/Víðis
  • Ávarp fjallkonu: Una Rós Gísladóttir, nýstúdent
  • Hátíðarræða: Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla
  • Rokkhljómsveit Tónlistarskólans í Garði
  • Sólon og Dimma dúskur
  • Sirkus Íslands
  • Nammikast úr körfubíl slökkviliðsins
  • Félagar úr hestamannafélaginu Mána teyma undir börnum
  • Sjoppa í umsjón Reynis/Víðis
  • Pylsugrill í boði Suðurnesjabæjar
  • Hoppukastalar
  • Andlitsmálning
  • Barnalestin

Suðurnesjabær óskar íbúum og gestum gleðilegrar þjóðhátíðar og hvetur alla til að taka þátt í hátíðarhöldunum.