17. júní í Suðurnesjabæ
17. júní í Suðurnesjabæ
14. júní 2022
Hátíðardagskrá 17. júní fer fram við Gerðaskóla og hefst kl.11.30 með fánahyllingu.
- Fánahylling í umsjón leikmanna Reynis og Víðis.
- Kynnir: Magnús Stefánsson, bæjarstjóri
- Ávarp fjallkonu: Amelía Björk Davíðsdóttir, nýstúdent.
- Söngur: Karma og Ragnheiður nemendur í Tónlistarskóla Sandgerðis.
- Hátíðarræða : Anton Guðmundsson, formaður bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
- Leikhópurinn Lotta
- Latibær
Kaffisala, bílalest og andlitsmálun
- Byggðasafnið á Garðskaga verður opið frá kl. 10.00-17.00. Frítt inn.
Þennan dag verður einn af kjörgripum safnsins, Alþingishátíðar-dúkurinn frá 1930, sérstaklega til sýnis. Dúkurinn var framleiddur til að minnast þess að þúsund ár voru liðin frá stofnun allsherjarþings árið 930 á Þingvöllum.
- 17. júní - tilboð verður á handgerðu konfekti, malti & appelsíni og lakkrísröri.
- Garðskagaviti - opið í vitann.
- Sjólyst – opið frá kl.14.00-17.00.
- Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði – opið frá kl.13.00-17.00. Frítt inn.