Skáknámskeið fyrir 5.-10.bekk
Skáknámskeið fyrir 5.-10.bekk
Í tilefni af heilsuviku í Suðurnesjabæ er fyrirhugað að halda skáknámskeið fyrir grunnskólanemendur!
Námskeiðið fer fram dagana 30. - 1. október í Eldingu félagsmiðstöð og er frítt.
Boðið verður upp á tvö námskeið- takmarkaður fjöldi:
5. - 10. bekkur kl. 14:00-16:00
5. - 10. bekkur kl. 16:00-18:00
Kennari á námskeiðinu er fyrrum landsliðsþjálfari Ástralíu, Birkir Karl Sigurðsson, margfaldur Íslandsmeistari í skák og heimsmeistari ungmenna í skák í liði Salaskóla árið 2007. Birkir Karl er með skákkennararéttindi frá Alþjóðlega skáksambandinu FIDE
Skráning hér https://www.abler.io/shop/sudurnesjabaer
Rannsóknir hafa sýnt að skákiðkun bætir námsárangur barna, þjálfar rökhugsun og eykur minni þeirra. Sjá nánar á
http://www.chessity.com/blog/431/The_Benefits_of_Chess )
Námskeiðið er fyrir alla áhugasama krakka en gott er að kunna mannganginn í skák.
Hlökkum til að sjá ykkur!