Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga
Dagskrá
1.Heilsueflandi samfélag 2025
2503107
Óskað eftir tilnefningu frá öldungaráði í stýrihóp Heilsueflandi samfélags.
Óskað var eftir tilnefningu fulltrúa öldungaráðs í stýrihóp Heilsueflandi samfélags í Suðurnesjabæ. Öldungaráð samþykkir að tilnefna Jódísi Garðarsdóttir í stýrihópinn. Umræða skapaðist um hvort að sambærilegur stýrihópur heilsueflandi samfélags sé í Sv. Vogum. Fulltrúi í öldungaráði frá Sv. Vogum mun fylgja málinu eftir.
2.Stefna Suðurnesjabæjar um málefni eldri borgara - Stýrihópur 2025
2501108
Unnur Ýr Kristinsdóttir kynnir stefnu og aðgerðaráætlun Suðurnesjabæjar í málefnum eldri borgara.
Öldungaráð þakkar Unni Ýr Kristinsdóttur fyrir kynningu á stefnu Suðurnesjabæjar í málefnum eldri borgara. Ráðið mun í samráði við eldri borgara og bæjarstjórn fylgja eftir innleiðingu stefnunnar og framkvæmd aðgerðaáætlunar.
3.Öldungaráð Suðurnesjabæjar kjörtímabilið 2026-2030
2607011
Kynning á fulltrúum öldungaráðs starfsárið 2026-2027.
Kynning var lögð fram á skipan öldungaráðs og fulltrúar kynntu sig.
4.Öldungaráð Suðurnesjabæjar kjörtímabilið 2026-2030
2607011
Fundadagar öldungaráðs starfsárið 2026-2027
Tillaga að fundardögum öldungaráðs 2026-2027 lagðir fram og samþykktir.
5.Öldungaráð erindisbréf
2501003
Erindisbréfið er enn í vinnslu og tekur gildi að lokinni formlegri samþykkt bæjarstjórnar.
Samþykkt að kynna erindisbréf á næsta fundi ásamt starfsreglum öldungaráðs þegar uppfært erindisbréf liggur fyrir.
6.Akstursþjónusta aldraðra fyrirspurn frá Vogum
2609098
Fyrirspurn frá fulltrúa félags FEBV í Sv. Vogum um akstursþjónustu t.d. vegna læknisþjónustu á höfuðborgarsvæðið. Umræður og reglur kynntar
Fyrirspurn frá fulltrúa félags FEBV í Sv. Vogum um akstursþjónustu t.d. vegna læknisþjónustu á höfuðborgarsvæðið. Umræður og reglur kynntar.
Fundi slitið - kl. 15:30.
Jódís Garðarsdóttir boðaði forföll og Kristrún Anna Skarphéðinsdóttir mætti ekki