Fara í efni

Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga

23. fundur 13. apríl 2026 kl. 14:00 - 15:00 í Ráðhúsinu í Sandgerði
Nefndarmenn
  • Þórsteina Sigurjónsdóttir formaður
  • Úrsúla María Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Jórunn Guðmundsdóttir
  • Sigurbjörg Jónsdóttir
  • Kristrún Anna Skarphéðinsdóttir
  • Inga Rut Hlöðversdóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Thelma Hrund Guðjónsdóttir
Dagskrá

1.Öldungaráð erindisbréf

2501003

Erindisbréf Öldungaráðs Suðurnesjabæjar og Sv. Voga lagt fram til kynningar.
Öldungaráð fagnar því að erindisbréf var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar 4. febrúar 2026. Öldungaráð hvetur til þess að erindisbréfið verði sett inn á heimasíður Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Ráðið hvetur öldungaráð á nýju kjörtímabili að kynna sér erindisbréf og starfsreglur einnig hvetur ráðið fulltrúa FEBS og stjórnar HSS til að kynna erindisbréf og starfsreglur.

2.Eldri borgarar- fræðsla

2604047

Hvaða fræðslu hefur eldra fólk mestan áhuga á?
Öldungaráð hvetur til að gerð verði könnun á hvaða fræðslu eldra fólk hefur áhuga á. Ráðið felur starfsmanni Velferðarsviðs að fylgja eftir framkvæmd.

4.Dagdvöl aldraðra - rekstur og upplýsingar

2505109

Kynning á starfsemi dagdvalar í Suðurnesjabæ, nýting og framtíðarsýn.
Öldungaráð þakkar Hrönn Magnúsdóttur fyrir góða kynningu. Ánægjulegt að heyra hversu gott starf fer fram í Skjólgarði.

Fundi slitið - kl. 15:00.

Getum við bætt efni síðunnar?