Fara í efni

Íþrótta- og tómstundaráð

36. fundur 17. september 2026 kl. 18:00 - 20:00 í Ráðhúsinu í Sandgerði
Nefndarmenn
  • Margrét Edda Arnardóttir formaður
  • Agnes Helgadóttir varaformaður
  • Benóný Þórhallsson aðalmaður
  • Sindri Lars Ómarsson aðalmaður
  • Ólafur Fannar Þórhallsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Unnur Ýr Kristinsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Margrét Edda Arnardóttir formaður
Dagskrá

1.Íþrótta- og tómstundaráð

2609129

Erindisbréf íþrótta- og tómstundaráðs kynnt.
Lagt fram.

2.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605160

Kynning á siðareglum kjörinna fulltrúa í ráðum og nefndum.
Lagt fram.

3.Íþrótta- og afrekssjóður Suðurnesjabæjar

1907069

Upplýsingar um umsóknir í íþrótta- og afrekssjóð.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnar auknum fjölda umsókna og góðum árangri íþróttafólks úr Suðurnesjabæ. Ráðið telur mikilvægt að endurskoða fjárhæð Íþrótta- og afrekssjóðs við gerð næstu fjárhagsáætlunar með hliðsjón af auknum fjölda umsókna.

4.Frístundaakstur

2401009

Erindi frá barna- og unglingaráði Reynir/Víðir vegna frístundaaksturs
Íþrótta- og tómstundaráð tekur jákvætt í erindið og leggur áherslu á að tryggja börnum og ungmennum í Suðurnesjabæ aðgengi að íþrótta- og tómstundastarfi. Ráðið óskar eftir að skoðaðar verði mögulegar útfærslur á frístundaakstri, þar á meðal hvort unnt sé að aðlaga núverandi almenningssamgöngur ásamt mati á kostnaði niðurgreiðslna á strætókortum.

5.Beiðni um aukinn stuðning vegna vetraræfinga meistaraflokka

2609146

Erindi frá stjórn knattspyrnudeildar Reynis
Íþrótta- og tómstundaráð tekur jákvætt í erindið og telur mikilvægt að félögin í Suðurnesjabæ hafi fullnægjandi aðstöðu til vetraræfinga. Ráðið óskar eftir sundurliðun kostnaðar og frekari gögnum frá báðum íþróttafélögunum vegna málsins.

6.Heilsuvika

2307034

Kynning á þeirri dagskrá sem er fyrirhuguð í Heilsuviku Suðurnesjabæjar 28.september-4.október.
Íþrótta- og tómstundaráð hvetur íbúa Suðurnesjabæjar til að taka virkan þátt í Heilsuviku.

Fundi slitið - kl. 20:00.

Getum við bætt efni síðunnar?