Íþrótta- og tómstundaráð
Dagskrá
Jóhann Jóhannsson boðaði forföll og enginn varamaður sat fundinn í hans stað.
1.Tillaga varðandi gervigrasvöll
2604140
Tillaga frá Knattspyrnufélaginu Víði varðandi gervigrasvöll.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar knattspyrnufélaginu Víðir fyrir erindið. Ráðið hvetur nýja bæjarstjórn til að vinna hratt og vel að aðstöðumálum til íþróttaiðkunar í sveitafélaginu.
2.Frístundastyrkir 2025
2501016
Farið yfir nýtingu á frístundastyrk fyrir árið 2025 í Suðurnesjabæ
Íþrótta- og tómstundaráð lýsir yfir ánægju á nýtingu á frístundastyrk fyrir börn og ræddar voru leiðir til að auka enn betur nýtingu.
3.Aðgengi að íþróttamannvirkjum
2508079
Kynning á verklagi er varðar aðgengi barna og fjölskyldna að íþróttamannvirkjum Suðurnesjabæjar.
Íþrótta- og tómstundaráð fagnar því að þetta verkefni sé að komast í framkvæmd.
4.Upplýsingagjöf íþrótta- og tómstundafulltrúa
2604172
Íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir ýmis mál tengd íþrótta- og tómstundum í Suðurnesjabæ.
Fundi slitið - kl. 18:00.