Fara í efni

Hafnarráð

35. fundur 20. október 2026 kl. 15:00 - 16:08 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Jón Þór Jónsson Hansen varaformaður
  • Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Jón Heiðar Hjartarson aðalmaður
  • Elmar Aron Gunnarsson aðalmaður
  • Gissur Þór Grétarsson varamaður
    (Aðalmaður: Magnús Sigfús Magnússon - boðaði forföll)
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir hafnarstjóri
  • Vilhjálmur Ólafsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Alexandra Jóhannesdóttir hafnarstjóri
Dagskrá

1.Ákvörðun um niðurrif Valþór ÁR-123

2610094

Óskað er eftir afstöðu hafnarráðs til þess hvort ráðast eigi í niðurrif Valþórs ÁR-123 á bryggju í Sandgerðishöfn.
Fyrir fundinum lá minnisblað þar sem farið er yfir valkosti í tengslum við niðurrif og förgun á Valþóri ÁR-123, yfirgefnum bát sem liggur í Sandgerðishöfn. Til skoðunar er annars vegar að hífa bátinn upp á bryggjuna til niðurrifs og förgunar eða færa hann í Njarðvíkurslipp til niðurrifs. Áætlaður kostnaður við hífingu og niðurrif á bryggju nemur um 4. m.kr. en kostnaður við flutning í slipp til niðurrifs nemur um 12. m.kr.

Afgreiðsla hafnarráðs:
Hafnarráð samþykkir samhljóða að málið verði unnið áfram og að ráðist verði í hífingu og niðurrif á bátnum á Sandgerðishöfn eins og minnisblaðið tilgreinir svo framarlega sem öll tilskilin leyfi liggja fyrir. Var málinu vísað til bæjarstjórnar til ákvörðunar.

2.Tillögur að bættum merkingum innsiglingarrennu

2610096

Tillögur að útfærslu að bættum merkingum á innsiglingarrenu Sandgerðishafnar. Ævar Smári Jóhannsson sérfræðingur hjá hafnardeild Vegagerðarinnar sat fundinn undir þessum lið.
Fyrir fundinum lá minnisblað frá Vegagerðinni þar sem farið er yfir tillögur að bættum merkingum við innsiglingarrennu Sandgerðishafnar, en notendur hafnarinnar hafa óskað eftir skýrari afmörkun hennar. Í minnisblaðinu eru tilgreindar tvær tillögur. Tillaga 1 gerir ráð fyrir þremur nýjum föstum grænum staurmerkjum. Hugsunin er að gefa betri vísun inn á 139° innsiglingarleiðina og bæta leiðsögn að beygjunni inn á leiðarlínu III (078,5° ).Tillaga 2 gerir ráð fyrir tveimur nýjum föstum grænum staurmerkjum á stjórnborðshlið 139° innsiglingarrennunnar. Merkin eru staðsett á móti núverandi rauðum staurmerkjum á bakborðshlið rennunnar. Fjarlægð milli merkjapara, mælt þvert yfir rennuna, er um 63,4 m við ytra parið og 56,1 m við innra parið.

Afgreiðsla hafnarráðs
Hafnarráð þakka góða yfirferð og samþykkir samhljóða að unnið verði áfram að málinu í samræmi við þau sjónarmið sem koma fram í tillögu 1. Var bæjarstjóra falið að vinna verkefnið áfram með Vegagerðinni.

3.Dýptarmælingar Sandgerðishöfn

2610108

Nýjustu dýptarmælingar í Sandgerðishöfn frá 13. ágúst 2026.
Fyrir fundninum lágu nýjustu dýptarmælingar Sandgerðishafnar frá 13. ágúst 2026 en fyrirhugað er að ráðast í dýpkunarframkvæmdir á höfninni til þess að auka afkastagetu hennar.

Afgreiðsla hafnarráðs:
Var bæjarstjóra falið að vinna málið áfram með Vegagerðinni.

4.Hafnasambandsþing á Suðurnesjum 2026

2409020

Hafnasambandsþing verður haldið á Suðurnesjum 2026 22.-23. október næstkomandi en tilnefna þarf tvo þingfulltrúa með atkvæðisrétt og tvo til vara.
Samkvæmt 4. gr. laga hafnasambandsins velja aðildarhafnir fulltrúa á hafnasambandsþing og skal fulltrúafjöldi miðast við árstekjur skv. ársreikningi hafnasjóðs næstliðins árs að undanskildum óreglulegum tekjum. Sandgerðishöfn á tvo fulltrúa með atkvæðisrétt á fundinum og skulu varaþingfulltrúar valdir jafnmargir.

Tillaga um þingfulltrúa:

Lagt er til að með atkvæðisrétt fyrir Sandgerðishöfn fari:

Jón Þór Jónsson Hansen, varaformaður hafnarráðs (S-lista)
Jón Heiðar Hjartarson (D-lista)

Til vara:

Gissur Þór Grétarsson (B-lista)
Guðmundur Torfi Rafnsson (D-lista)

Afgreiðsla hafnarráðs:
Tillagan samþykkt samhljóða af hafnarráði.

5.Ýmis framkvæmdar og rekstrarmál

2610097

Samantekt frá yfirhafnarverði um ýmis framkvæmdar- og rekstrarmál á höfninni.
Yfirhafnarvörður fór yfir rekstur og starfsemi Sandgerðishafnar undanfarna mánuði.

Afgreiðsla hafnarráðs:
Var málið lagt fram til kynningar.

6.Stöðugildafjöldi Sandgerðishöfn

2610095

Mönnun hafnarinnar og skipulag starfseminnar
Umræða um mönnun hafnarinnar og stöðugildafjölda á höfninni. Yfirhafnarvörður hefur óskað eftir því að horfið verði aftur til fyrra skipulags á starfseminni og aukið verði við starfsmannafjölda á höfninni. Bæjarstjóri upplýsti um að unnið væri í rekstrarúttekt á sveitarfélaginu og þar með talið á höfninni.

Afgreiðsla hafnarráðs:
Var málinu vísað til umfjöllunar í bæjarráði í tengslum við vinnslu fjárhagsáætlunar.

Fundi slitið - kl. 16:08.

Getum við bætt efni síðunnar?