Framkvæmda- og skipulagsráð
Dagskrá
1.Umsókn um lóð
2611028
Umsókn vísað til umfjöllunar í Framkvæmda- og skipulagsráði úr Bæjarráði. Umsækjandi óskar eftir 6-10.000 m2 lóð undir ferðatengda þjónustu skv. meðfylgjandi erindi í nágrenni Rósaselstorgs.
Lagt fram. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að eiga samtal við málsaðila og afla frekari upplýsinga um fyrirhuguð áform.
2.Umsókn um lóð
2611026
Umsókn vísað til umfjöllunar í Framkvæmda- og skipulagsráði úr Bæjarráði. Umsækjandi óskar eftir 4-6.000 m2 lóð undir hótel ásamt bílastæðahúsi og annarri afleiddri starfsemi í nágrenni Keflavíkurflugvallar.
Lagt fram. Sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að eiga samtal við málsaðila og afla frekari upplýsinga um fyrirhuguð áform.
3.Norðurtún 8 - umsagnarbeiðni - breyting á rekstrarleyfi fyrir gististað
2611030
Óskað er eftir umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - G Íbúðir.
Ekki liggja fyrir tilskildir uppdrættir af húsnæðinu. Ráðið vísar einnig til skilmála í kafla 22.1 í greinargerð Aðalskipulags Suðurnesjabæjar 2022-2034 sem m.a. kveður á um upplýsingar um hversu mörg herbergi séu fyrirhuguð til útleigu með t.t. bílastæða á lóð. Umsögn frestað.
4.Túngata 9 - umsókn um byggingarleyfi-byggingarheimild - Viðbygging
2611076
Eigandi Túngötu 9 óskar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús og bílgeymslu, skv. meðfylgjandi gögnum.
Lóðin sem um ræðir er á svæði þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Ráðið telur að framkvæmdin sé í ágætu samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar á svæðinu og samþykkir erindið, með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar, í samræmi við 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.

5.Skagabraut 72 - umsókn um byggingarleyfi
2611011
Eigandi Skagabrautar 72 sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu og vinnuaðstöðu skv. meðfylgjandi gögnum.
Lóðin sem um ræðir er á svæði þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Ráðið mun ekki taka afstöðu til umsóknarinnar fyrr en farið hefur fram lokaúttekt á matshluta 03 sem er ólokið. Þá er óskað eftir frekari gögnum sem sýni heildarmynd lóðarinnar og mannvirkja innan hennar.

6.Deiliskipulag hafnarsvæðis Sandgerði - Vesturbakki
2510066
Skipulagsfulltrúi leggur fram gildandi deiliskipulag til umræðu og leggur til að gerðar verði breytingar á skipulaginu. Áður tekið fyrir á dagskrá á 68. fundi ráðsins.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 17:40.