Framkvæmda- og skipulagsráð
Dagskrá
Gestir fundarins undir máli nr. 1 voru Gunnar Ingimarsson og Snorri Karlsson frá Mílu hf.
1.Farsímamastur Mílu - Umsókn um lóð
2606022
Erindi þar sem var afgreiðslu var frestað á 76. fundi ráðsins frá Strending ehf. f.h. Mílu hf., þar sem óskað er eftir afstöðu Suðurnesjabæjar til úthlutunar á nýrri innviðalóð undir farsímamastur í Sandgerði, skv. meðfylgjandi greinargerð sem tilgreinir valkosti um staðsetningu. Fulltrúafrá Mílu hf. kynntu erindið frekar og þarfir fyrirtækisins.
Ráðið þakkar kynninguna og því að unnið sé að bættu fjarskiptasambandi í sveitarfélaginu. Deildarstjóra umhverfismála falið að greina staðsetningarmöguleika í samræmi við umræðuna á fundinum.
2.Eyjasker 14-16 - umsókn um lóð
2609204
V10 ehf. sækir um parhúsalóðina Eyjasker 14-16 skv. meðfylgjandi umsókn.
Um er að ræða endurúthlutun lóðarinnar. Samþykkt að úthluta umsækjanda lóðinni.
3.Ósk um breytingu á landnotkun Stóra-Hólms, Hólmsreits og Hábæjarmóa við endurskoðun aðalskipulags Suðurnesjabæjar
2610025
Eigendur Stóra Hólms, Hólmsreits og Hábæjarmóa óska eftir því að landnotkun þessara jarða verði tekin sérstaklega til skoðunar í fyrirhugaðri endurskoðun aðalskipulags Suðurnesjabæjar í samræmi við fyrirhuguð uppbyggingaráform þar sem náttúra, ferðaþjónusta, heilsa og vellíðan, golf, menning og fjölbreyttar athafnir geti farið saman.
Ráðið fagnar sýndum áhuga á uppbyggingu á svæðinu, en nýkjörinni bæjarstjórn Suðurnesjabæjar ber að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034 sbr. 35. gr. skipulagslaga. Ráðið vísar meðfylgjandi gögnum til skoðunar þess stýrihóps sem kann að verða myndaður verði niðurstaðan sú að aðalskipulag Suðurnesjabæjar verði endurskoðað.
4.Saunagus starfsemi á Stóra-Hólmi
2610078
Hólmur Heilsa ehf. óskar eftir jákvæðri umsögn Suðurnesjabæjar vegna starfsleyfisumsóknar um rekstur Saunagus starfssemi á landi sínu, Stóra Hólmi í Leiru skv. meðfylgjandi erindi.
Ráðið telur fyrirhugaða uppbyggingu samræmast því sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi og gerir því ekki athugasemd við að umbeðið rekstrarleyfi verði veitt.
5.Flokkun úrgangs í stofnunum Suðurnesjabæjar
2610091
Deildarstjóri umhverfismála leggur fram minnisblað um innleiðingu á samræmdu flokkunarkerfi í stofnunum Suðurnesjabæjar. Lagt er til að unnar verði tillögur að útfærslu fyrir hverja stofnun með hliðsjón af starfsemi, aðstöðu og úrgangsmagni. Málið er lagt fram til umræðu og afgreiðslu.
Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkir að innleitt verði samræmt fyrirkomulag flokkunar og úrgangsþjónustu í stofnunum Suðurnesjabæjar og felur deildarstjóra umhverfismála að vinna málið áfram í samráði við stjórnendur stofnana og Umhverfismiðstöðvar. Þá óskar ráðið eftir upplýsingum um stöðu verkefnisins fljótlega á næsta ári.
6.Skagabraut 72a - Færsla aðkomuvegar
2610092
Eigandur Skagabrautar 72 og 72a óska eftir færslu aðkomuvegar skv. meðfylgjandi gögnum.
Framkvæmda- og skipulagsráð hafnar beiðni eigenda Skagabrautar 72 um að færa aðkomuveg að Skagabraut 72a (Neðra Hofi) allt að 10 metra til norðurs, þar sem slík færsla myndi skerða möguleika á framtíðarnýtingu óbyggðrar lóðar við Skagabraut 74.
Ráðið samþykkir þess í stað að aðkomuvegurinn verði færður um 3-4 metra til norðurs.
Ráðið felur skipulags- og umhverfissviði að vinna að framkvæmdinni í samræmi við samþykkta legu vegarins og malbikun hans.
Ráðið samþykkir þess í stað að aðkomuvegurinn verði færður um 3-4 metra til norðurs.
Ráðið felur skipulags- og umhverfissviði að vinna að framkvæmdinni í samræmi við samþykkta legu vegarins og malbikun hans.
7.Brekkustígur 13 - Fyrirspurn - Breyta bílskúr í íbúð.
2609229
Eigandi Brekkustígs 13 leggur fram fyrirspurn um hvort heimilað yrði að breyta bílgeymslu í íbúð skv. meðfylgjandi gögnum.
Lóðin sem um ræðir er á ódeiliskipulögðu svæði og í byggða og húsakönnun af tilgreindu svæði í Sandgerði, dagsett í september 2018, er lagt til að Brekkustígur 13 njóti verndar með hverfisvernd þar sem húsið ásamt fleirum í sömu götulínu hafi varðveislugildi sem hluti götumyndar og sé fulltrúi síns tíma í byggingarsögunni.
Ráðið telur fyrirhugaða breytingu ekki ganga gegn því sem gert er ráð fyrir í byggða- og húsakönnuninni, ásamt Verndarsvæði í byggð og samþykkir því í erindið, með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
Ráðið telur fyrirhugaða breytingu ekki ganga gegn því sem gert er ráð fyrir í byggða- og húsakönnuninni, ásamt Verndarsvæði í byggð og samþykkir því í erindið, með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
8.Háteigur 5 - Umsagnarbeiðni - Gistileyfi
2609203
Óskað er eftir umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Erindi frestað, þar til fyrir liggur samþykki allra eigenda fjöleignarhússins Háteigur 1-7.
9.Fráveita Suðurnesjabæjar - starfsleyfismál
2606065
Deildarstjóri umhverfismála kynnir umsókn Suðurnesjabæjar um starfsleyfi fyrir fráveitu Suðurnesjabæjar ásamt fylgigögnum.
Framkvæmda- og skipulagsráð þakkar fyrir kynninguna og felur deildarstjóra umhverfismála að upplýsa ráðið um framvindu málsins eftir því sem tilefni er til.
Fundi slitið - kl. 18:15.