Framkvæmda- og skipulagsráð
Dagskrá
Gísli Jónatan Pálsson boðaði forföll á fundinn og sat Magnús Sigfús Magnússon fundinn í hans stað.
1.Erindisbréf - Kjörnar nefndir og ráð sbr. 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
2605159
Erindisbréf framkvæmda og skipulagsráðs kynnt.
Lagt fram.
2.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
2605160
Lagt fram til kynningar
Lagt fram.
3.Fundaáætlun 2026 - 2027
2608158
Drög að fundaáætlun 2026-2027 lögð fram.
Fundaráætlun vetrarins samþykkt. Fundað verður að jafnaði einu sinni í mánuði skv. áætlun kl. 16.00.
4.Staða húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu
2605107
Yfirlit frá HMS vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála lögð fram.
Lagt fram.
5.Deiliskipulag: Iðngarðar: Endurskoðun
1806201
Tillaga að deiliskipulagi Iðngarða lögð fram. Málsmeðferð enbdurtekin með áorðnum breytingum.
Framkvæmda- og skipulagsráð leggur til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Iðngarða í Garði skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
6.Endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar, nr. 0567-2023 - Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
2609125
Tillaga að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2023-2040 lögð fram til umsagnar. Sjá öll gögn á www.skipulagsgatt.is undir máli nr.567/2023
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillögu að Aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2023-2040 og telur að komið hafi verið til móts við athugasemdir Suðurnesjabæjar við kynningu vinnslutillögu.
7.Umsagnarbeiðni - Reykjanesbraut, Hafnavegur - Garðskagavegur, nr. 0853-2024 - Kynning umhverfismatsskýrslu (Mat á umhverfisáhrifum)
2609043
HMS óskar eftir umsögn Suðurnesjabæjar við umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar milli Hafnavegar og Garðskagavegar. Sjá öll gögn máls inn á www.skipulagsgatt.is undir máli nr.853/2024
Ráðið leggur áherslu á að leitast verði við að tengingar hjóla- og göngustíga verði með undirgöngum á kostnað göngubrúa og tryggt verði að hæðatakmarkanir á brautinni verði með þeim hætti að það takmarki ekki umferð þungaflutninga. Ráðið gerir að öðru leiti ekki athugasemdir við umhverfismat tillögunnar.
8.Stofnlögn nýrrar hitaveitu - Miðnesæð
2604166
HS Veitur undirbúa lögn tveggja nýrra stofnlagna hitaveitu, framrá og bakrás, sem leggja þarf frá Fitjum að FLE, Helguvík og Sandgerðis/Garðs tengingu. Lagnt fram til kynningar
Lagt fram til upplýsingar og kynningar.
9.Garðbraut 49 - umsókn um byggingarheimild - breytt nýting
2607080
Eigandi Garðbrautar 49 sækir um byggingarleyfi til að stækka og endurbyggja bílgeymslu og breyta henni í íbúðarrými skv. meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt. Grenndarkynning hefur farið fram og byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarheimild.
10.Blikavöllur 3 - umsókn um byggingarleyfi-byggingarheimild
2607014
Eigandi Blikavallar 3 sækir um byggingarleyfi vegna innanhússbreytinga og minniháttar utanhússbreytingar skv. meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt. Byggingarfulltrúa falin útgáfa byggingarleyfis.
11.Flugstöð 1A, mhl.01 - útlitsbreyting og stækkun á núverandi byggingu
2609096
Isavia sækir um byggingarleyfi fyrirhugaðara útlitsbraeytingar og stækkunar á elsta hluta Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar skv. meðfylgjandi gögnum.
Fyrirhuguð framkvæmd er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Samþykkt að fela byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis.
12.Norðurgata 23 - stækkun á húsi - fyrirspurn
2607006
Eigandi Norðurgötu 23 leggur inn fyrirspurn hvort heimilað yrði að byggja aðra hæð á núverandi hús.
Ráðið tekur jákvætt í erindið. Byggingarfulltrúa falið að afla frekari gagna hjá umsækjanda og grenndarkynna erindið enda ekkert deiliskipulag gildandi á umræddu svæði.
13.Akurhús 1 - Fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa - Sánahús og verönd
2607083
Eigandi Akurhúsa 1 leggur inn fyrirspurn hvort heimiluð yrði bygging saunahúss og verandar skv. meðfylgjandi gögnum.
Afgreiðslu frestað. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða frekar við umsækjanda.
14.Umsagnarbeiðni - Gististaður - Skagi - Skagabraut 31
2609155
Sýslumaður óskar umsagnar Suðurnesjabæjar vegna umsóknar eigenda Skagabrautar 31 um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II.
Umsókn gengur ekki gegn ákvæðum skipulags að teknu t.t. núverandi blöndun byggðar á svæðinu. Breyta þarf skráningu húsnæðis í atvinnuhúsnæði og umsækjandi þarf að tryggja nægjanlegan fjölda bílastæða áður en umsókn fær jákvæða umsögn.
15.Tilraunaverkefni - 20-30 hagkvæmar eignaríbúðir og möguleg lóð í Suðurnesjabæ
2609132
Lagt er fram erindi til að kanna hvort Suðurnesjabær hefði áhuga á að þróa með umsækjanda tilraunaverkefni með litlum forsmíðuðum íbúðaeiningum.
Ráðið leggur til að umsækjanda verði boðið á á næsta fund ráðsins til að gera frekari grein fyrir hugmyndum sínum um verkefnið.
Fundi slitið - kl. 19:15.