Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

76. fundur 30. júní 2026 kl. 16:00 - 19:10 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir formaður
  • María Kjartansdóttir varaformaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Ingólfur E Sigurjónsson aðalmaður
  • Jón Snævar Jónsson varamaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Dagskrá
Przemyslaw Antoni Szymajda aðalmaður boðaði forföll og sat Jón Snævar Jónsson fundinn í hans stað.

1.Bergvík - Nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi

2506043

Kynningu á vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu lauk þann 4. júní s.l. Alls bárust 7 umsagnir/ábendingar við tillögu að breytingu á aðalskipulagi og 13 umsagnir/ábendingar við deiliskipulagstillöguna.

Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi Bergvíkur sem tekur mið af þeim umsögnum/ábendingum sem bárust á vinnslutillögustigi.
Ráðið samþykkir samhljóða tillögu að breytingu á aðalskipulagi og tillögu að deiliskipulagi Bergvíkur og leggur til við bæjarstjórn að auglýsa og kynna tillögurnar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. ásamt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfi - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

2603092

Breytingartillagan var auglýst í skipulagsgátt þann 29. apríl 2026. Frestur til að gera athugasemdir var til og með 10. júní s.l. Alls bárust 5 umsagnir/ábendingar við tillöguna. Sjá má umsagnirnar á skipulagsgátt.is undir máli nr. 505/2026.
Framkvæmda- og skipulagsráð hefur farið yfir fram komnar umsagnir og telur að þær kalli ekki á breytingu á deiliskipulagstillögunni. Ráðið leggur því til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulagstillöguna og feli skipulagsfulltrúa að senda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun tillöguna til staðfestingar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Ósk um breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar - Gauksstaðir

2605141

Erindi frá Gísla Tryggvasyni lögmanni, dags. 26. maí 2026, með ósk um breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar vegna flóðahættu skv. meðfylgjandi gögnum.
Nýkjörinni bæjarstjórn Suðurnesjabæjar ber að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag Suðurnesjabæjar 2022-2034 sbr. 35. gr. skipulagslaga. Ráðið vísar meðfylgjandi gögnum til skoðunar þess stýrihóps sem kann að verða myndaður verði niðurstaðan sú að aðalskipulag Suðurnesjabæjar verði endurskoðað. Erindi er hafnað.

4.Gauksstaðir - framkvæmdaleyfi til uppbyggingu sjóvarna

2606107

Lion ehf. sækir um framkvæmdarleyfi til endurbóta á sjóvörn við strandlengu Gauksstaða skv. meðfylgjandi gögnum.
Framkvæmda- og skipulagsráð hefur farið yfir umsókn Lion ehf. um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarnar við Gaukstaði í Garði ásamt meðfylgjandi gögnum um umfang og útfærslu framkvæmdarinnar, þ.á.m. útboðsteikningar, verklýsingu, umsögn Veðurstofu Íslands og fyrirliggjandi samþykki Vegagerðarinnar. Um er að ræða endurbyggingu og styrkingu núverandi landbrotsvarnar með það að markmiði að bæta vernd gegn sjávarágangi og draga úr áhrifum mögulegra sjávarflóða.

Ráðið samþykkir að fela skipulagsfulltrúa að veita umsóknaraðila framkvæmdarleyfi fyrir sjóvörn við Gaukstaði í Garði. Framkvæmdin skal unnin í samræmi við framlögð gögn og gildandi lög og reglur.

5.Farsímamastur Mílu - Fyrirspurn um innviðalóð

2606022

Erindi frá Strending ehf. fyrir hönd Mílu hf., þar sem óskað er eftir afstöðu Suðurnesjabæjar til úthlutunar á nýrri innviðalóð undir farsímamastur í Sandgerði, skv. meðfylgjandi greinargerð sem tilgreinir valkosti um staðsetningu.
Erindi frestað. Óskað er eftir frekari kynningu og samráði á næsta fundi ráðsins.

6.Garðskagaviti - Farsímaloftnet

2606115

Erindi frá Mílu um heimild til uppsetningar á farsímaloftnetum á Garðskagavita, til að auka afkastagetu og bæta farsímaþjónustu vegna sólmyrkva í ágúst, skv. meðfylgjandi gögnum.



Ráðir gerir ekki athugasemdir við uppsetningu búnaðarins með fyrirvara um samþykki Vegagerðarinnar og þess að annar búnaður verði ekki fyrir neikvæðum áhrifum.

7.Straumklöpp 19 - umsókn um lóð

2605112

Einar Sigurbjörn Jónsson sækir um einbýlishúsalóðina Straumklöpp 19 undir byggingu einbýlishúss.
Samþykkt að úthluta Einari Sigurbirni Jónssyni lóðina Straunklöpp 19.

8.Eyjasker 7 - umsókn um lóð

2606021

Wioleta Fira og Radoslaw Fira sækja um einbýlishúsalóðina Eyjasker 7 undir byggingu einbýlishúss.
Samþykkt að úthluta Wioleta Fira og Radoslaw Fira lóðinni Eyjasker 7.

9.Sólheimar 9 - fyrirspurn um stækkun íbúðarhúss

2605086

Fyrirspurn um stækkun íbúðarhúss í norður og austur, um ca. 20 m², skv. meðfylgandi gögnum.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og samþykkir með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemdar skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.

10.Fyrirspurn - Hlíðargata 42 - Breyting á lóðarmörkum.

2606020

Fyrirspurn frá eigendum Hlíðargötu 42 um breytingu á lóðarmörkum og mögulegri bílgeymslubyggingu.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ræða við málsaðila og koma með tillögu að útfærslu á lóðarmörkum.

11.Skagabraut 27 - Fyrirspurn um byggingu parhúss

2606101

Fyrirspurn um byggingu parhúss á lóðinni Skagabraut 27, skv. meðfylgandi gögnum.
Umsækjandi óskar eftir því að fá að stofna nýja lóð úr eigin leigulóð sem umráðandi leigir af Suðurnesjabæ til byggingar á nokkrum íbúðareiningum skv. meðfylgjandi erindi. Erindið samræmist ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins og þó deiliskipulagi yrði breitt og bætt við lóðum þá myndi ekki vera hægt að úthluta lóðarhafa Skagabrautar 27 lóðunum án þess að úthlutunarreglum Suðurnesjabæjar um byggingalóðir yrði breytt. Erindi því hafnað.

12.Fyrirspurn um fjölgun íbúða - Straumklöpp 2-6

2606106

Handhafi lóðarinnar Straumklöpp 2-6, óskar eftir að fjölga íbúðum úr 3 í 5, skv. meðfylgandi bréfi. Byggingarreitur héldist óbreyttur.
Breytingu á deiliskipulagi við Straumklöpp er nýlega lokið þar sem minni íbúðum var fjölgað. Ósk um frekari fjölgun íbuða sem kallar á nýja deiliskipulagsbreytingu er hafnað.

13.Regnbogastræti

2606064

Erindi frá deildarstjóra umhverfismála, um áframhald verkefnissins.
Framkvæmda- og skipulagsráð fagnar erindinu og leggur til að Miðnestorg við Vörðuna og Gerðavegur gengt ráðhúsi verði Regnbogastræti fjölbreytileikans í Suðurnesjabæ.

Fundi slitið - kl. 19:10.

Getum við bætt efni síðunnar?