Framkvæmda- og skipulagsráð
Dagskrá
1.Gauksstaðir, tillaga að deiliskipulagi - Endurtekin málsmeðferð
2603018
Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. mars 2024, í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa deiliskipulagstillögu á jörð Gauksstaða (L196408) fyrir ferðaþjónustu. Í tillögunni felst að útbúa gistirými fyrir allt að 50 manns í 15 ferðaþjónustuhúsum auk þjónustubyggingar. Sjá svæðið auðkennt VÞ6 í Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034.
Um er að ræða endurtekna málsmeðferð, þar sem fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, mál nr. 158/2025, um deiliskipulag Gauksstaða (L196408). Málið varðar ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulagið. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar er að ákvörðun bæjarráðs er felld úr gildi. Til grundvallar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar er það mat hennar að Suðurnesjabæ hafi borið að auglýsa tillöguna á nýjan leik samkvæmt 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga með vísan til að gerðar voru úrbætur á umhverfismati skipulagsins eftir að umsagnartíma lauk og því var tillagan auglýst og kynnt á nýjan leik.
Með vísun til 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga samþykkti bæjarráð Suðurnesjabæjar þann 11. mars 2026 að auglýsa tillöguna að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Tillagan var auglýst í Skipulagsgátt þann 13. mars 2026 og jafnframt var hún send til umsagnaraðila. Tillagan var einnig auglýst í Lögbirtingarblaðinu, Víkurfréttum og á vef Suðurnesjabæjar. Umsagnarfrestur var til og með 27. apríl 2026.
Alls bárust 46 umsagnir og athugasemdir á auglýsingartímanum 13. mars til og með 27. apríl 2026. Umsögn barst frá Náttúruverndarstofnun eftir að auglýsingartímanum lauk og er hún tekin með í samantektinni. Í athugasemdum var undirskriftarlisti með mótmælum 368 einstaklinga.
Fyrir liggur samantekt um framkomnar athugasemdir og tillaga að viðbrögðum við þeim.
Framkvæmda- og skipulagsráð hefur farið yfir framkomnar athugasemdir og viðbrögð við þeim og telur að þær breytingar sem lagðar eru til í samantektinni komi til móts við athugasemdir og minnki neikvæð áhrif af deiliskipulaginu. Ráðið telur jafnframt að breytingar á tillögunni, frá auglýstri tillögu, teljist ekki breytingar í grundvallaratriðum, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

Framkvæmda- og skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs og framkvæmdaaðilum að lagfæra skipulagsgögnin til samræmis við samantektina og niðurstöðu fundarins. Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkir jafnframt að leggja til við sveitarsjórn að hún samþykki deiliskipulagstillöguna ásamt umhverfismati með þeim breytingum sem lagðar eru til og feli sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt að senda þeim aðilum, er athugasemdir gerðu, umsögn sína um þær.
2.Umsagnarbeiðni - Gistileyfi - Eyja Guesthouse - Suðurgata 2-4
2604159
Umsagnarbeiðni um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-B, að Suðurgötu 2-4.
Ráðið gerir ekki athugasemd um að umbeðið rekstrarleyfi verði veitt.
3.Beiðni um umsögn um fjölgun ökutækja á geymslustað hjá Esja Car Rental ehf., við Austurgarð 4
2605026
Samgöngustofa óskar eftir umsögn vegna umsóknar Esja Car Rental ehf., sem reka ökutækjaleigu að Austurgarði 4.
Óskað er eftir samþykki Suðurnesjabæjar vegna fjölgunar á ökutækjum úr þremur ökutækjum í 15 ökutæki.

Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði starfsleyfi fyrir 15 ökutæki, að því gefnu að þeir rúmist innan lóðar.
4.Aðalskoðun leiksvæða
2011097
Fundi slitið - kl. 19:45.