Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

74. fundur 22. apríl 2026 kl. 16:00 - 18:20 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson formaður
  • Jón Ragnar Ástþórsson varaformaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Baldur Matthías Þóroddsson aðalmaður
  • Önundur S. Björnsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Straumklöpp - úthlutun lóða

2604004

Til úthlutunar eru 4 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir og 3 raðhúsalóðir fyrir alls 21 íbúð.



Straumklöpp 25 - 11 umsóknir eru um einbýlishúsalóðina og var umsókn Ingimundar Arons Guðnasonar dregin út.

Straumklöpp 23 - 1 umsókn er um einbýlishúsalóðina og er Eysteini Má Guðvarðarsyni og Valgerði Einarsdóttir úthlutuð lóðin.

Straumklöpp 21 - Engar umsóknir voru um einbýlishúsalóðina.

Straumklöpp 19 - Engar umsóknir voru um einbýlishúsalóðina.

Straumklöpp 20-22 - 16 umsóknir eru um parhúsalóðina og var umsókn Hjartar Inga Heimissonar dregin út.

Straumklöpp 24-26 - 14 umsóknir eru um parhúsalóðina og var umsókn Nesmúr ehf. dregin út.

Straumklöpp 28-30 - 14 umsóknir eru um parhúsalóðina og var umsókn Þórunnar Söndru Sveinsdóttir dregin út.

Straumklöpp 15-17 - 10 umsóknir eru um parhúsalóðina og var umsókn Berglindar Steinunnar Heimisdóttir dregin út.

Straumklöpp 14-18 - 13 umsóknir eru um raðhúsalóðina og var umsókn Máda ehf. dregin út.

Straumklöpp 8-12 - 12 umsóknir eru um raðhúsalóðina og var umsókn K.J. Verk ehf. dregin út.

Straumklöpp 2-6 - 13 umsóknir eru um raðhúsalóðina og var umsókn URL20 ehf. dregin út.

2.Vitaklöpp og Ægisklöpp - umsókn um lóðir

2604022

Bragi Guðmundsson sækir um lóðir skv. meðfylgjandi erindi/umsókn
Ekki er komið að úthlutun lóða við þessar götur og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær uppbygging þeirra muni hefjast auk þess sem slík úthlutun er ekki í samræmi við núgildandi úthlutunarreglur sveitarfélagsins. Umsókn er því hafnað.

Varðandi verktaka sem óska eftir að fá úthlutað samliggjandi lóðum eða götuhlutum til hagræðingar í sinni uppbyggingu og rekstri er skipulagsfulltrúa falið að skoða með hvaða hætti hægt væri að fara aðrar eða fleiri leiðir við úthlutun íbúðarhúsalóða. Hugað verði að endurskoðun úthlutunarreglna og hvernig mögulega megi mæta óskum stærri verktaka sem hafa staðið að umtalsverðri íbúðauppbyggingu í sveitarfélaginu á undanförnum árum með góðum árangri.

3.Akurhús 1 - umsókn um byggingarheimild - Bílgeymsla

2601189

Grenndarkynningu lokið, ein athugasemd barst
Grenndarkynningu lokið. Athugasemd barst er varðar stærð og umfang bílgeymslunnar miðað við íbúðarhúsið, sem geti orðið fordæmisgefandi til framtíðar.

Akurhús 1 er ekki á deiliskipulögðu svæði, en er í aðalskipulagi á skilgreindu verndarsvæði í byggð.
Ráðið telur framkomna athugasemd eiga við rök að styðjast, hvað varðar stærð og umfang bílgeymslunnar og vera þess eðlis að byggingaráformin samræmist ekki skipulagsákvæðum svæðisins.
Erindi hafnað.

4.Bergvík - Nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi

2506043

Vinnslutillaga að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi í Bergvík lögð fram.
Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkir að fyrirliggjandi vinnslutillögur aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillögu, verði kynntar samhliða skv. 36. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og umsagnaraðilum, hagsmunaraðilum og almenningi gefin kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar við tillögurnar.

Ráðið vísar afgreiðslunni til staðfestingar í sveitarstjórn.

5.Tillaga að Deiliskipulagi við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu við Byggðaveg

2412037

Athugasemdarfresti vegna deiliskipulagstillögurnar lauk 31. mars s.l. Alls bárust 4 umsagnir við tillöguna. Sjá umsagnir á skipulagsgatt.is undir máli nr. 170/2026
Ekki er þörf á viðbrögðum vegna umsagna HES, Vegagerðarinnar og Mílu. Varðandi ábendingar frá Brunavörnum Suðurnesja verður bætt við brunahana á svæðinu í samráði við Brunavarnir Suðurnesja.
Ráðið leggur til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með ofangreindri breytingu og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

6.Deiliskipulag ofan Skagabrautar og Búmannasvæði - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

2105074

Athugasemdarfresti vegna deiliskipulagstillögurnar lauk 31. mars s.l. Alls bárust 3 umsagnir við tillöguna. Sjá umsagnir á skipulagsgatt.is undir máli nr. 171/2026
Ekki er þörf á viðbrögðum vegna umsagna Brunavarna Suðurnesja og Mílu. Varðandi ábendingar frá HES er verið að vinna skýrslu um lýsingu og stöðu fráveitu í sveitarfélaginu sem verður lögð fram síðar á árinu.
Ráðið leggur til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með ofangreindri breytingu og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

7.Deiliskipulag Ofan Garðvangs -Teiga- og Klappahverfi - Endurskoðun seinni hluta hverfis

2109110

Athugasemdarfresti vegna deiliskipulagstillögurnar lauk 31. mars s.l. Alls bárust 5 umsagnir við tillöguna. Sjá umsagnir á skipulagsgatt.is undir máli nr. 167/2026
Ekki er þörf á viðbrögðum vegna umsagna Brunavarna Suðurnesja, Mílu og Veðurstofu Íslands. Varðandi ábendingar frá HES er verið að vinna skýrslu um lýsingu og stöðu fráveitu í sveitarfélaginu sem verður lögð fram síðar á árinu. Bætt verður inn texta um ofanvatnslausnir en regnvatnslögn frá hverfinu fer um umfangsmikið grjótpúkk við neðri hluta hverfisins og er þar með ekki veitt í fráveitu sveitarfélagsins nema við miklar álagsaðstæður. Jafnframt verði áréttað í greinargerð skipulagsins að losun jarðvesefna og úrgang skuli einungis losa á viðurkenndum jarðvesgtipp sveitarfélagsins.

Varðandi umsögn Vegagerðarinnar óskaði hún eftir samráðsfundi við Suðurnesjabæ vegna umferðaröryggisáætlunar og veghönnunarreglna vegna deiliskipulags Teiga- og Klapparhverfis og Iðngarða. Samráðsfundur fór fram og gerir Vegagerðin engar athugasemdir við deiliskipulagið.

Ráðið leggur til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með ofangreindri breytingu og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

8.Meiðastaðavegur 12A - umsókn um stöðuleyfi

2604108

Eigandi Meiðastaðavegar 12A sækir um stöðuleyfi fyrir 2 gáma skv. meðfylgjandi gögnum
Skipulagsfulltrúa falið að gefa út stöðuleyfi fyrir 2 gáma til eins árs og skorað á eiganda fasteignar að fjarlæga lausamuni og bæta ásýnd og umgengni lóðar.

9.M2-miðbær, nr. 0377-2026 Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)

2603199

Reykjanesbær óskar eftir umsögn tillögu að aðalskipulagsbreytingu M2-miðbær. Gögn málsins má sjá á skipulagsgátt.is undir máli nr. 377/2026.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

10.M3 akademíureitur, nr. 0407-2026 - Breyting á aðalskipulagi

2604079

Reykjanesbær óskar eftir umsögn tillögu að aðalskipulagsbreytingu M2-akademíureitur. Gögn málsins má sjá á skipulagsgátt.is undir máli nr. 407/2026.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

11.Njarðvíkurhöfn H4 Breyting á aðalskipulagi , nr. 0325-2026 Lýsing (Breyting á aðalskipulagi)

2603172

Reykjanesbær óskar eftir umsögn tillögu að aðalskipulagsbreytingu Njarðvíkurhöfn H4. Gögn málsins má sjá á skipulagsgátt.is undir máli nr. 325/2026.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

12.Iðavellir 14b og Vatnsholt 2 VÞ12 - breyting á aðalskipulagi, nr. 1564-2025 - Kynning tillögu á vinnslustigi (Breyting á aðalskipulagi)

2511113

Reykjanesbær óskar eftir umsögn tillögu að aðalskipulagsbreytingu vegna Iðavellir 1b og Vatnsholt 2 VÞ12. Gögn málsins má sjá á skipulagsgátt.is undir máli nr. 1564/2025.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

13.Nýtt deiliskipulagi fyrir Lághitaholur við Vogshól, nr. 0622-2024 (Breyting á deiliskipulagi)

2603153

Reykjanesbær óskar eftir umsögn tillögu að deiliskipulagi fyrir Lághitaholur við Vogshól. Gögn málsins má sjá á skipulagsgátt.is undir máli nr. 622/2026.
Ráðið gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

14.Breyting á viðmiðum um tilkynningarskyldu skógræktar - Ályktun Skógræktrafélags Íslands

2603196

Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:20.

Getum við bætt efni síðunnar?