Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

73. fundur 18. mars 2026 kl. 16:00 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson formaður
  • Jón Ragnar Ástþórsson varaformaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Baldur Matthías Þóroddsson aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson varamaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá
Önundur Björnsson aðalmaður boðaði forföll og sat Sigursveinn Bjarni Jónsson varamaður, fundinn í hans stað.

1.Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040

2411063

Á 57. fundi Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja samþykkti nefndin, Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040. Svæðisskipulagið samanstendur af skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrslu og vatnsverndaruppdrætti, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðisskipulagið er hér með lagt fram til samþykktar að hálfu Suðurnesjabæjar.
Ráðið samþykkir Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til staðfestingar í Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar.

2.Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfi - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

2603092

Tillaga að breytingu að deiliskipulagi Skerjahverfis lögð fram til afgreiðslu.
Framkvæmda- og skipulagsráð samþykkir tillögu að endurskoðun deiliskipulags Skerjahverfis og leggur til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa og kynna tillöguna skv. 41.gr. skipulagslaga.

3.Húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026

2603089

Húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026 lögð fram til kynningar.
Drög að húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026 lögð fram til kynningar.

4.Göngustígur milli Garðs og Reykjanesbæjar

2207006

Hönnun göngu og hjólastígs milli Garðs og Reykjanesbæjar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar

5.Göngustígur milli Sandgerðis og Reykjanesbæjar og Flugstöðvar

2603094

Hönnun göngu og hjólastígs milli Sandgerðis og Reykjanesbæjar og Flugstöðvar lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar

6.Iðngarðar 1 - umsókn um stöðuleyfi

2603022

Eigandi Iðngarða 1 sækir um stöðuleyfi undir 2 gáma skv. meðfylgjandi umsókn.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs og skorað á eiganda fasteignar að fjarlæga lausamuni utan lóðar og bæta ásýnd og umgengni lóðar.

7.Nátthagi 3 - Fyrirspurn um byggingu geymsluaðstöðu á ferðaþjónustulóð

2603095

Eigandi Kef íbúða ehf. leggur fram fyrirspurn um hvort heimilað yrði að byggja geymsluaðstöðu aftan við þvottaðastöðu fyrirtækisins á lóðinni við Nátthaga 3.
Erindi frestað, byggingarfulltrúa falið að að vinna málið frekar með umsækjanda.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?