Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

72. fundur 18. febrúar 2026 kl. 16:00 - 17:15 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson formaður
  • Jón Ragnar Ástþórsson varaformaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Baldur Matthías Þóroddsson aðalmaður
  • Önundur S. Björnsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Eyjasker 9 - umsókn um lóð

2601165

Júlían Jóhann Karl Jóhannsson sækir um lóðina Eyjasker 9 undir byggingu einbýlishúss.
Samþykkt að úthluta umsækjanda lóðinni.

2.Eyjasker 14-16 - umsókn um lóð

2602066

Hafsteinn Rúnar Helgason sækir um lóðina Eyjasker 14-16 undir byggingu parhúss.
Samþykkt að úthluta umsækjanda lóðinni.

3.Flugstöð Leifs Eiríkssonar - umsókn um stöðuleyfi

2601134

Isavia sækir um stöðuleyfi undir 5 samtengda gáma við norðuraustur útgang flugstöðvar fyrir tímabundna starfssemi bílaleiga meðan unnið er að breytingum innanhús.
Samþykkt. Byggingarfulltrúa falið að veita stöðuleyfi til eins árs.

4.Akurhús 1 - umsókn um byggingarheimild - Bílgeymsla

2601189

Eigandi Akurhúsa 1 sækir um byggingarheimild fyrir bílgeymslu skv. meðfylgjandi gögnum.
Ráðið tekur jákvætt í erindið og heimilar grenndarkynningu, í samræmi við 44. grein skipulagslaga málsgrein 2, eftir að gögn hafa verið uppfærð.


5.Suðurnesjabær, sjóvarnir 2026 - Umsókn um framkvæmdarleyfi

2602120

Vegagerðin sækir um framkvæmdarleyfi vegna þriggja sjóvarnarverkefna við Jórukleif, Norðurkotstjörn og Nesjar skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulags og umhverfissviði falið að gefa út framkvæmdaleyfi vegna verkefnisins.

6.Aðalskipulag Suðurnesjabæjar - Breyting á íbúðasvæði ÍB-10 og OP-2, Skerjahverfi

2602137

Skipulagsfulltrúi leggur til óverulega breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar í samræmi við tillögu að fyrirhugaðri tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skerjahverfis. Um er að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti Sandgerðis, á skipulagsákvæðum og stærðarbreytingar á svæðum. Ekki er um að ræða breytingar á stefnumörkun aðalskipulagsins í neinum málaflokkum.
Lagt er til að tillaga að breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar fái málsmeðferð skv.2 mgr. 36. gr. skipulagslaga 123/2010 vegna óverulegrar aðalskipulagsbreytingar og leggur ráðið til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa þá niðurstöðu og senda tillögu til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

Fundi slitið - kl. 17:15.

Getum við bætt efni síðunnar?