Fara í efni

Framkvæmda- og skipulagsráð

71. fundur 21. janúar 2026 kl. 16:00 - 17:30 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson formaður
  • Jón Ragnar Ástþórsson varaformaður
  • Gísli Jónatan Pálsson aðalmaður
  • Baldur Matthías Þóroddsson aðalmaður
  • Önundur S. Björnsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Jón Ben Einarsson skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umferðaröryggisáætlun Suðurnesjabæjar

2409078

Umferðaröryggisáætlun Suðurnesjabæjar 2026-2030 lögð fram til afgreiðslu
Ráðið þakkar framlagða áætlun og leggur til að hún verði lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn þegar gerðar hafa verið lagfæringar í samræmi við ábendingar á fundinum. Ráðið leggur jafnframt til að umhverfisfulltrúa bæjarins verði falið að leggja fram forgangsröðum verkefna og kostnaðarmat þeirra í samræmi við fjárhagsáætlun.

2.Súluvöllur 1 - umsókn um byggingarleyfi-byggingarheimild

2509176

HS Veitur sækja um byggingarleyfi vegna nýrrar aðveitustöðvar við Súluvöll 1, Keflavíkurflugvelli.
Samþykkt að fela byggingarfulltrúa útgáfu byggingarleyfis. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulag.

3.Púttvellir í Suðurnesjabæ

2601039

Erindi frá Golfklúbbi Suðurnesja GSG um samstarf við uppbyggingu púttvalla í sveitarfélaginu fyrir félagsmenn og bæjarbúa til heilsueflingar og félagslegra tengsla.
Ráðið fagnar frumkvæði GSG og tekur vel í hugmyndirnar klúbbsins. Umhverfisfulltrúa falið að vinna málið áfram.

4.Framkvæmdaáætlun Skipulags og Umhverfissviðs 2026

2601086

Farið yfir helstu framkvæmdir á árinu ásamt tímaáætlun.
Drög að tímasettri framkvæmdaráætlun lögð fram til kynningar. Ráðið þakkar áætlunina og óskar eftir að hún verði lögð fram reglulega á fundum ráðsins eftir því sem henni vindur fram eða breytist.

Fundi slitið - kl. 17:30.

Getum við bætt efni síðunnar?