Fræðsluráð
Dagskrá
Í upphafi fundar var óskað eftir leyfi fyrir því að bæta við einu máli sem tekið var fyrir í bæjarráði þann 15.4.2026 um starfaskipulag á mennta- og tómstundasviði (nr.4). Nefndarmenn samþykktu samhliða að bæta málinu við.
1.Tengjumst í leik - Föruneyti barna
2508063
Þriðja námskeið "Tengjumst í leik" var haldið á vorönn 2026 og tókst afar vel. Námskeiðið er 12 vikna foreldranámskeið og fá foreldrar ýmis verkefni til að vinna að heima. Umsagnir eru afar góðar en nokkrar áhyggjur eru af því hversu fáir foreldrar nýta sér þetta námskeið sem er foreldrum að kostnaðarlausu. Það er mikilvægt að skoða hvaða leiðir væru vænlegastar í að ná fleiri foreldrum á námskeiðin.
Sviðsstjóra mennta- og tómstundasviðs er falið að koma með tillögur að útfærslu á mögulegum leiðum til að innleiða verkefnið "Tengjumst í leik" meðal allra foreldra sveitarfélagsins. Tillögur verða lagðar fram á næsta fundi fræðsluráðs.
2.Skóladagatöl 2026-2027
2603053
Leikskólastjórar Gefnarborgar og Grænuborgar kynna skóladagatöl.
Skóladagatöl Grænuborgar og Gefnarborgar eru samþykkt samhljóða.
3.Áhugavert verkefni í Sandgerðisskóla
2604076
Guðrún Ósk kennari í Sandgerðisskóla kynnti verkefnið. Hún sat fundinn frá kl.9:00.
Guðrún Ósk Gunnlaugsdóttir náttúrfræðikennari kynnti verkefnið "Lof mér að falla" sem er afar áhrifaríkt forvarnarverkefni á unglingastigi í Sandgerðisskóla. Fræðsluráð þakkar henni fyrir mjög góða kynningu og mjög gott og þarft verkefni.
4.Mennta-og tómstundasvið - Starfaskipulag
2604050
Málefni starfaskipulags á mennta- og tómstundasviði var samþykkt í bæjarráði þann 15.4.2026.
Starfaskipulag lagt fram til kynningar.
Guðrún Ósk Gunnlaugsdóttir var gestur á fundinum. Hún kynnti verkefni sem hún hefur unnið undir lið 3.
Fundi slitið - kl. 09:20.