Fræðsluráð
Dagskrá
1.Mennta- og tómstundastefna
2501059
Verkefnastjóri mennta- og tómstundasviðs kynnti stöðu aðgerða. Mjög margt hefur áunnist en enn eru tækifæri til úrbóta. Verkefnastjóra falið að fylgja eftir nokkrum tækifærum til úrbóta og koma í framhaldinu með tillögur að aðgerðum í fræðsluráði.
2.Verkefni tónlistarskóla Sandgerðis
2602103
Fræðsluráð þakkar skólastjóra tónlistarskólans fyrir mjög góða kynningu á áhugaverðum verkefnum.
3.Verkefni í leikskólanum Gefnarborg
2602104
Fræðsluráð þakkar kennurum í leikskólanum Gefnarborg fyrir lifandi og góða kynningu á áhugaverðum verkefnum.
4.Skráningardagar í leikskólum Suðurnesjabæjar
2502053
Skólastjórum leikskólanna tveggja er þakkað fyrir góðar samantektir um skráningadaga leikskóla. Fræðsluráð vísar tillögu um endurskoðun á skráningadögum til samþykktar í bæjarstjórn.
Tillaga:
Fjölgun lokunardaga úr fjórum í ellefu. Tillagan felur í sér að hluti skráningadaga verði lokunardagar.
Tillaga:
Fjölgun lokunardaga úr fjórum í ellefu. Tillagan felur í sér að hluti skráningadaga verði lokunardagar.
Fundi slitið - kl. 10:15.