Fara í efni

Fræðsluráð

54. fundur 16. maí 2025 kl. 08:15 - 10:15 í Ráðhúsinu í Sandgerði
Nefndarmenn
  • Jónína Magnúsdóttir formaður
  • Elín Björg Gissurardóttir varaformaður
  • Sigurbjörg Ragnarsdóttir aðalmaður
  • Ósk Matthildur Arnarsdóttir aðalmaður
  • Úrsúla María Guðjónsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir Sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs
Dagskrá

1.Skóladagatöl 2025-2026

2503083

Fræðsluráð staðfestir skóladagatöl tónlistarskólanna í Suðurnesjabæ.

2.Fyrirmyndarverkefni skóla

2410058

Þrjátíu tilnefningar bárust vegna fyrirmyndarverkefna. Nefndina sem velur fyrirmyndarverkefni skipa þau Andrea Anna Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Sigríður Heiða Bragadóttir, fyrrverandi skólastjóri Laugarnesskóla og Ragnar Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík. Athöfnin fer fram þann 10.júní næstkomandi.

3.Sumarfrístund

2403039

Fyrirkomulag sumarfrístundar kynnt.
Lagt fram til kynningar.

4.Farsæl forysta - námsferð

2503126

Fræðsluráð lýsir ánægju með það tækifæri sem verkefnið Farsæl forysta veitir stjórnendum grunnskólanna í Suðurnesjabæ til að efla sig í stjórnendahlutverkinu og styrkja stofnanirnar.

5.Endurmenntunarsjóður - úthlutun 2025

2505026

Mörg spennandi verkefni eru framundan og verður gaman að fylgjast með þeim þróast áfram.

6.Inntaka á leikskóla 2025

2505027

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:15.

Getum við bætt efni síðunnar?