Fræðsluráð
Dagskrá
1.Íslenska æskulýðsrannsóknin
2411124
Skólastjórnendur fóru yfir Íslensku æskulýðsrannsóknirnar. Þeim er þakkað fyrir góða kynningu.
2.Mennta- og tómstundastefna
2501059
Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með stefnuna og framsetningu hennar.
3.Leikskólinn Grænaborg
2406038
Leikskólastjóri kynnti fyrstu starfsáætlun Grænuborgar. Fræðsluráðið þakkar henni góða kynningu. Það er ánægjulegt að sjá hversu vel starfsemi leikskólans fer af stað.
4.Stefnumótun í fjármögnun grunnskóla
2501048
Fræðsluráð þakkar fyrir góða kynningu á undirbúningi vegna stefnumótunar í fjármögnun grunnskóla.
5.Uppbyggingarsjóður Suðurnesja
2501047
Mennta- og tómstundasvið hefur fengið tvo styrki samþykkta. Annars vegar vegna unglingaþreks og hins vegar vegna barnamenningahátíðar.
Fundi slitið - kl. 09:30.