Ferða-, safna- og menningarráð
Dagskrá
1.Vitadagar 2026
2605082
Kynning á framkvæmd og samantekt helstu atriða frá rýnifundum vegna Vitadaga 2026. Ástrós Jónsdóttir þjónustufulltrúi stjórnsýslu- og fjármálasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Ráðið þakkar fyrir góða kynningu á framkvæmd Vitadaga. Vitadagar heppnuðust með eindæmum vel og þátttaka íbúa var sérstaklega góð. Ráðið vill einnig þakka öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd Vitadaga í ár, starfsfólki sveitarfélagsins, fulltrúum íþróttafélaganna, barna- og unglingaráði Reynis/Víðis, Ungmennaráði, björgunarsveitunum, sjálfboðaliðum, lögreglu, Brunavörnum Suðurnesja og öðrum viðbragðsaðilum.

2.Menningartengd verkefni
2609149
Kynning á menningartengdum verkefnum.
Afgreiðsla:
Máli frestað til næsta fundar ráðsins.
Máli frestað til næsta fundar ráðsins.
3.Safnahelgi á Suðurnesjum
2401036
Kynning á stöðu varðandi undirbúning á safnahelgi á Suðurnesjum í Suðurnesjabæ dagana 17. - 18. október 2026. Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Ráðið þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að taka þátt í Safnahelginni 17. - 18. október nk.
Ráðið þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að taka þátt í Safnahelginni 17. - 18. október nk.
4.Bóka- og Byggðasafn Suðurnesjabæjar.
2609191
Kynning á stöðunni og helstu verkefnum framundan. Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Ráðið þakkar fyrir góða kynningu og ljóst að mikið er framundan á næstunni. Að öðru leyti lagt fram.
Ráðið þakkar fyrir góða kynningu og ljóst að mikið er framundan á næstunni. Að öðru leyti lagt fram.
5.Bóka- og Byggðasafn Suðurnesjabæjar.
2609191
Kynning á helstu þörfum safna vegna fjárfestinga, viðhalds og stöðugilda. Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
6.Framkvæmdasjóður ferðamanna
2609201
Minnisblað varðandi Framkvæmdasjóð ferðamanna og opnun fyrir umsóknir vegna 2027.
Afgreiðsla:
Ráðið hvetur sveitarfélagið til þess að vinna að umsóknum í Framkvæmkvæmdasjóð ferðamanna í takt við áherslur sjóðsins og vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
Ráðið hvetur sveitarfélagið til þess að vinna að umsóknum í Framkvæmkvæmdasjóð ferðamanna í takt við áherslur sjóðsins og vísar málinu áfram til umfjöllunar í bæjarráði.
7.Útskálahús - Nýting húsnæðis
2605105
Erindi varðandi aðbúnað og húsgögn fyrir Útskálahúsið. Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Starfsmanni ráðsins falið að vinna málið áfram meðal annars hvað varðar kostnað. Að öðru leyti lagt fram.
Starfsmanni ráðsins falið að vinna málið áfram meðal annars hvað varðar kostnað. Að öðru leyti lagt fram.
8.Gamli Garðskagaviti - afnot af vita.
2609202
Minnisblað varðandi afnot af Gamla Garðskagavita fyrir menningarviðburði. Margrét Ingibjörg Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Starfsmanni ráðsins falið að vinna málið áfram, eiga samtal við fulltrúa Vegagerðarinnar og leggja fyrir ráðið aftur.
Starfsmanni ráðsins falið að vinna málið áfram, eiga samtal við fulltrúa Vegagerðarinnar og leggja fyrir ráðið aftur.
Í lok fundar tilkynnti formaður ferða-, safna- og menningarráðs að hún hyggst hætta, bæði í ráðinu og sem vara bæjarfulltrúi frá 1. október næstkomandi vegna persónulegra aðstæðna.
Formaður vill þakka nefndarmönnum fyrir samstarfið, bæði gömlum og nýjum. Einnig vill formaður sérstaklega þakka starfsfólki sveitarfélagsins fyrir sín störf og samstarfið.
Nefndarmenn vilja einnig þakka fráfarandi formanni kærlega fyrir samstarfið og sín störf.

Fundi slitið - kl. 19:09.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæta dagskrármálum nr.6, 7 og 8 á dagskrá fundarins.
Ráðið vill einnig óska Merkum mönnum innilega til hamingju með þann áfanga að hafa lokið við merkingu 250 gamalla húsa í Suðurnesjabæ sem stóð yfir frá 2020 til 2026. Þeim er þakkað fyrir framlag sitt til menningarmála og varðveislu sögunnar með þessum hætti.