Fara í efni

Ferða-, safna- og menningarráð

42. fundur 20. ágúst 2026 kl. 17:00 - 19:01 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir formaður
  • Bára Kristín Þórisdóttir varaformaður
  • Magnús Orri Arnarson
  • Gréta Ágústsdóttir
  • Óskar Helgason
Starfsmenn
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Erindisbréf - Kjörnar nefndir og ráð sbr. 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605159

Erindisbréf ferða-, safna- og menningarráðs kynnt.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

2.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605160

Kynning á siðareglum kjörinna fulltrúa í ráðum og nefndum.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Suðurnesjabær og almyrkvinn 2026

2409008

Minnisblað varðandi almyrkvann 12. ágúst 2026 í Suðurnesjabæ.

Afgreiðsla:
Ráðið þakkar fyrir góða samantekt varðandi almyrkvann í Suðurnesjabæ.
Ráðið vill einnig þakka íbúum, starfsmönnum sveitarfélagsins, ferðaþjónustuaðilum í sveitarfélaginu, Markaðsstofu Suðurnesja, Vegagerðinni, Brunavörnum Suðurnesja, nágrannasveitarfélögunum, björgunarsveitum, lögreglu og öðrum viðbragðsaðilum sérstaklega fyrir gott samstarf í þessum einstæða viðburði. Að öðru leyti lagt fram.

4.Vitadagar 2026

2605082

Dagskrá og fyrirkomulag Vitadaga kynnt. Ástrós Jónsdóttir þjónustufulltrúi stjórnsýslu- og fjármálasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla.
Ráðið þakkar Ástrós kærlega fyrir góða samantekt varðandi Vitadaga 2026. Ráðið vill einnig hvetja íbúa til að taka virkan þátt í Vitadögum sem fram fara með fjölbreyttri dagskrá vikuna 24. - 30. ágúst.

5.Áramót

2312026

Staða mála varðandi brennusvæði fyrir áramótabrennur í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Ráðið hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn og stöðu málsins varðandi fyrirhugað brennustæði við golfvöllinn. Með hliðsjón af þeim forsendum sem nú liggja fyrir telur ráðið ekki rétt að skoða þá staðsetningu frekar að svo stöddu.
Ráðið felur starfsmanni ráðsins að taka saman frekari greiningar á mögulegum staðsetningum fyrir brennusvæði. Þau svæði sem ráðið leggur til að verði skoðuð sérstaklega eru svæðin við gryfjuna í Sandgerði og austan við Garðskagaveg á milli byggðarkjarnanna.

6.Suðurnesjabær 10 ára

2608068

Minnisblað varðandi hugmyndavinnu og undirbúning fyrir 10 ára afmæli Suðurnesjabæjar í júní 2028.
Afgreiðsla:
Mikil samstaða er innan ráðsins að hefja undirbúning fyrir 10 ára afmæli Suðurnesjabæjar sem verður 10. júní 2028. Ýmsar hugmyndir voru ræddar innan ráðsins og ákveðið var að óska eftir hugmyndum frá íbúum varðandi hvað eigi að gera í tilefni af þessu fyrsta stórafmæli Suðurnesjabæjar. Ráðið vísar því einnig til bæjarráðs að tryggja fjármögnun fyrir verkefni tengd þessum áfanga við gerð fjárhagsáætlunar.

7.Ferða-, safna- og menningarráð - fundaráætlun 2026-2027.

2608069

Drög að fundaáætlun ráðsins fyrir 2026-2027 kynnt.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 19:01.

Getum við bætt efni síðunnar?