Fara í efni

Bæjarstjórn

97. fundur 04. nóvember 2026 kl. 17:30 - 20:04 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Anton Kristinn Guðmundsson forseti
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir fyrsti varaforseti
  • Haraldur Helgason annar varaforseti
  • Haukur Andreasson aðalmaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide aðalmaður
  • Svavar Grétarsson aðalmaður
  • Egill Rúnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Ósk um lausn frá störfum.

2610014

Beiðni Oddnýjar Kristrúnar Ásgeirsdóttur fulltrúa D-lista um lausn frá störfum sem varabæjarfulltrúi.
Tóku til máls: HA og AKG

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir með atkvæðum fulltrúa B, S og D lista beiðni Oddnýjar Kristrúnar Ásgeirsdóttur um lausn frá framangreindum störfum og þakkar henni fyrir störf í þágu sveitarfélagsins. Fulltrúar M lista sátu hjá.

2.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Á 196. fundi bæjarráðs þann 9. september 2026 var viðauki nr. 12 vegna tímabundinnar aukningar þjónustu skammtímadvalar samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Viðaukinn er vegna tímabundinnar aukningar á þjónustu skammtímadvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í samstarfi við Reykjanesbæ og Sveitarfélagið Voga. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er 17,55 m.kr., þar af er áætlaður nettókostnaður Suðurnesjabæjar 8,54 m.kr. Fjármögnun er mætt með tilfærslu fjárheimilda innan málaflokks félagsþjónustu.

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun 2026 í samræmi við samþykkt bæjarráðs og fyrirliggjandi gögn.

3.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Á 196. fundi bæjarráðs þann 9. september 2026 var viðauki nr. 13 vegna leiðréttingar á greiðslum vegna reksturs Gefnarborgar samþykktur með atkvæðum fulltrúa S og D lista og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn. Fulltrúi M lista í bæjarráði greiddi atkvæði a móti við samþykkt á viðauka nr. 13.
Viðaukinn er vegna leiðréttingar á greiðslum til Sunnugarðs ehf., rekstraraðila leikskólans Gefnarborgar, í kjölfar breyttra rekstrarforsendna og tafa á endurskoðun rekstrarsamnings. Viðaukinn nemur 20 m.kr. og er fjármögnun hans mætt með tilfærslu fjárheimilda úr málaflokki 21 yfir í málaflokk 04. Viðaukinn hefur því engin nettóáhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins.

Tóku til máls: DB, AJ, AKG og SG

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir með atkvæðum fulltrúa S, B og D lista að staðfesta viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun 2026 í samræmi við samþykkt bæjarráðs og fyrirliggjandi gögn. Fulltrúar M lista greiddu atkvæði á móti.

4.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Á 199. fundi bæjarráðs þann 21. október 2026 var viðauki nr. 14 vegna sameiningar frístundaþjónustu sveitarfélagsins í Sólborg samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Viðaukinn er vegna sameiningar frístundaþjónustu sveitarfélagsins í Sólborg og tekur til aukins launa- og rekstrarkostnaðar, meðal annars vegna breytts stjórnskipulags, aukinnar þjónustu við fötluð börn og ungmenni og nauðsynlegs búnaðar. Viðaukinn nemur 6.446.000 kr. og er fjármögnun hans mætt með tilfærslu fjárheimilda úr málaflokki 02 yfir í málaflokk 04. Viðaukinn hefur því engin nettóáhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins.

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að staðfesta viðauka nr. 14 við fjárhagsáætlun 2026 í samræmi við samþykkt bæjarráðs og fyrirliggjandi gögn.

5.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Á 200. fundi bæjarráðs þann 28. október 2026 samþykkti bæjarráðs samhljóða að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2027-2031 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Tók til máls: AJ

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa fjárhagsáætlun 2027-2031 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

6.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Á 199. fundi bæjarráðs þann 21. október 2026 samþykkti bæjarráð samhjóða að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2027 verði 14,97% og vísaði til staðfestingar bæjarstjórnar.
Tóku til máls: DB, AKG og HA

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði óbreytt eða 14,97%.

7.Deiliskipulag: Iðngarðar: Endurskoðun

1806201

Á 77. fundi framkvæmda- og skipulagsráðs þann 22. september 2026 lagði ráðið til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Iðngarða í Garði skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga.
Tóku til máls: BJS, DB og HA

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að auglýsa og kynna breytingu á deiliskipulagi Iðngarða í Garði skv. 41. gr. skipulagslaga.

8.Sameiginleg tillaga bæjarstjórnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, lífsgæðaseturs og ráðhús Suðurnesjabæjar

2609063

Samþykkt á 197. fundi bæjarráðs að vísa tillögu til staðfestingu bæjarstjórnar.
Lögð er fram sameiginleg tillaga fulltrúa S-lista, D-lista, B-lista og M-lista um lagningu gervigrasvallar í Sandgerði, bætta íþróttaaðstöðu í Garði, eflingu samgangna milli byggðarkjarna og framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja á Miðjunni.
Jafnframt er lögð fram tillaga um framtíðarstaðsetningu ráðhúss Suðurnesjabæjar við Sunnubraut 4 í Garði og undirbúning að uppbyggingu lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Vörðunni við Miðnestorg 3.
Tillögurnar miða að því að styrkja þjónustu, aðstöðu og lífsgæði íbúa Suðurnesjabæjar til framtíðar.

Tóku til máls: AKG, SG, SHS, HA, DB, HH, MSM og BJS


Viðbótartillaga B og S lista:
1. Lagt er til að Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar skipi stýrihóp sem verði falið að finna leiðir til að auka þátttöku barna og ungmenna í Suðurnesjabæ í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi.
Stýrihópurinn verður skipaður tveim aðilum frá meirihluta, tveim aðilum frá minnihluta og formanni íþrótta og tómstundaráðs. Bæjarstjóri verður starfsmaður hópsins.
Aðrir starfsmenn hópsins verða ákveðnir í samráði við bæjarstjóra og kemur til greina að leita utan-aðkomandi ráðgjafar. Lagt er til að skipað verði í hópinn á næsta fundi bæjarráðs sem fram fer 11. nóvember. Stýrihópnum verði heimilt að kalla til sérfræðinga og leita utanaðkomandi ráðgjafar eftir því sem þörf krefur, innan samþykktra fjárheimilda.
Stýrihópnum verður m.a. falið að taka tillit til eftirfarandi atriða:
-Greining á stöðu íþrótta- og tómstundamála, helstu áskorunum og nýjum tækifærum.
-Greining á frístundastyrkjakerfi Suðurnesjabæjar og leggi fram endurskoðun á kerfinu með það að leiðarljósi að auka þátttöku og jafnræði til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi.
-Leggja fram tillögur að aðgerðum til að auka þátttöku barna og ungmenna og draga úr brottfalli.
-Leggja fram tillögur um hvernig íþrótta- og tómstundastarf geti með markvissari hætti stuðlað að farsæld barna.
-Leggja fram tillögur um stuðning og samstarf við íþrótta- og tómstundafélög.
-Fara yfir núverandi samstarfssamninga, styrkjakerfi og annað fyrirkomulag stuðnings Suðurnesjabæjar við íþrótta- og tómstundafélög.
-Megin áhersla hópsins verður á samtal við hluteigandi aðila, s.s. fulltrúa allra íþróttafélaga og deilda innan þeirra og annarra félaga sem vinna með börnum og ungmennum í Suðurnesjabæ.
-Sérstök áhersla verði lögð á að sjónarmið barna og ungmenna fái vægi í vinnunni.

Lagt er upp með að stýrihópur skili niðurstöðum sínum til bæjarstjórnar eigi síðar en 1. júní 2027.

2. Lagt er til að Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar setji af stað sjálfstætt verkefni sem miðar að því að leggja mat á uppbyggingu Miðjunnar sem svæðis fyrir íþróttamannvirki framtíðarinnar í Suðurnesjabæ.
Í verkefninu skal taka tillit til þeirra varða sem fara þarf í gegnum við uppbygginguna, s.s. er snýr að innviðum, landamálum;kaupum og leigu, breytingum vegna aðalskipulags og gerð deiliskipulags.
Í verkefninu skal einnig greina lágmarks tímaramma sem slík framkvæmd þarf að fara í gegnum og afmarkaðir áfangar hennar. Þá skal einnig leggja mat á þætti sem taka þarf tillit til við byggingu yfirbyggðs knatthúss á Miðjuna sem nýtist til alhliða íþróttaiðkunar. Taka skal tillits til rekstarkostnaðar, innviðauppbyggingar og annars sem kann að hafa áhrif á uppbygginguna og rekstur mannvirkisins. Þá skal skoða ólík rekstarform, s.s. ef leitað verði til þriðja aðila við byggingu og eignarhald, að hluta eða heild.
Bæjarstjóra er falið að fylgja tillögunni eftir, leita tilboða vegna greiningavinnunnar og leggja fyrir bæjarráð 11. nóvember og skila niðurstöðum eins fljótt og hægt er, eða eigi síðar en mánaðarmótin mars/apríl 2027.


Breytingatillaga D lista:
Breytingatillagan varðar 1.-2 og 4. lið upphaflegu tillögunnar „Tillaga um lagningu gervigrasvallar í Suðurnesjabæ og uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar“.
Bæjarfulltrúar D-lista leggja til að í stað gervigrasvallar á aðalvelli Reynis í Sandgerði skv. lið 1. í upphaflegri tillögu, verði þeim lið breytt í að "byggt verði yfirbyggð íþróttahöll á Miðju 1 sem staðsett er á milli byggðakjarna."
2.tl. tillögunnar fellur út, en aðrir liðir upphaflegu tillögunnar frá 197. bæjarráðs standa óbreyttir þó með breyttum töluliðum og lítilsháttar orðalagsbreytingu á 2. tl. um Ráðhús Suðurnesjabæjar.
Breytingatillaga
1. liður orðist svo:
Hafin verði undirbúningur og uppbygging á yfirbyggðri íþróttahöll á Miðju 1 á milli byggðakjarna. Skipulags- og umhverfisráði verði falið að hefja vinnu við að semja við landeigendur og breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins, sem nú gerir ráð fyrir starfsemi í þágu golfvallarins, í samráði við Golfklúbb Sandgerðis. Bæjarstjóra verði falið að láta vinna kostnaðar- og rekstraráætlun, tímaáætlun og samanburð við að fjármagna verkefnið á kaupleigu.
Við 3. lið bætist eftirfarandi málsgrein:
Fjölnota íþróttahús á Miðjunni 1 verði fyrsti áfangi í uppbyggingu svæðisins og taki hugmyndasamkeppnin mið af staðsetningu þess og tengingum við annað sem þar gæti risið.
Tillagan í heild eftir breytingu
Tillaga um uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar í Suðurnesjabæ
Lagt er til að:
1.Hafin verði undirbúningur og uppbygging á yfirbyggðri íþróttahöll á Miðju 1 á milli byggðakjarna. Skipulags- og umhverfisráði verði falið að hefja vinnu við að semja við landeigendur og breytingu á gildandi deiliskipulagi svæðisins, sem nú gerir ráð fyrir starfsemi í þágu golfvallarins, í samráði við Golfklúbb Sandgerðis. Bæjarstjóra verði falið að láta vinna kostnaðar- og rekstraráætlun, tímaáætlun og samanburð við að fjármagna verkefnið á kaupleigu.
2.Efla samgöngur á milli kjarnanna.
3.Undirbúningur að hugmyndasamkeppni verði hafin vegna íþróttamannvirkja framtíðarinnar í samræmi við uppbyggingu á yfirbyggðri íþróttahöll á Miðju 1 sem verði fyrsti áfangi í uppbyggingu svæðisins og taki hugmyndasamkeppnin mið af staðsetn-ingu þess og tengingum við annað sem þar gæti risið með það að leiðarljósi. Til-gangur hugmyndasamkeppninnar er að móta raunhæfa framtíðarsýn á svæðið á milli Sandgerðis og Garðs þar sem í aðalskipulagi er gert ráð fyrir starfsemi fyrir íþróttir og útivist, ÍÞ 4 og ÍÞ 6. Mikilvægt er að svæðið á milli kjarnanna fái sem fyrst heildstæða sýn og þróist í þá átt að verða sameiginlegt svæði fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, með áherslu á íþróttir, heilsurækt og útivist.
4.Hefja samtal við íþróttafélögin um hvernig Suðurnesjabær getur stutt við starfsemina til að efla faglegt starf þeirra.
Ráðhús Suðurnesjabæjar
Lagt er til:
1. Að Ráðhús Suðurnesjabæjar verði staðsett við Sunnubraut 4 í Garði þar sem stjórnsýslusvið og framkvæmda- og skipulagssvið eru í dag.
2. Að starfshópur verði skipaður sem heldur utan um hugmyndasamkeppni og að leggja fram tillögur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara Suðurnesjabæjar í Vörðunni, Miðnestorgi 3 þar sem ráðhús Suðurnesjabæjar er í dag. Bæjarstjóra er falið að leggja fram tillögu af fyrirkomulagi starfshóps og tímalínu.


Breytingatillaga M lista:
Miðflokkurinn leggur til eftirfarandi breytingar á þeim hluta tillögunnar sem ber heitið „Tillaga um lagningu gervigrasvallar í Suðurnesjabæ og uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar“:
1.Liður 1, um lagningu gervigrasvallar á aðalvelli Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði, falli brott.
2.Liður 2 orðist svona:
„Sparkvöllurinn við Gerðaskóla í Garði verði stækkaður svo að börn og ungmenni geti stundað skipulagðar knattspyrnuæfingar í heimabyggð.“
3.Liður 4 orðist svona:
„Undirbúningi að uppbyggingu sameiginlegs íþrótta-, heilsuræktar- og útivistar-svæðis á Miðjunni, svæðinu milli Sandgerðis og Garðs sem í aðalskipulagi er merkt ÍÞ 4 og ÍÞ 6, verði hraðað og uppbyggingin gerð að forgangsverkefni í íþróttaupp-byggingu sveitarfélagsins, með vetraræfingaaðstöðu fyrir knattspyrnu sem fyrsta á-fanga. Hugmyndasamkeppni og skipulag svæðisins verði unnin samhliða endur-skoðun aðalskipulags Suðurnesjabæjar. Starfshópur um verkefnið verði skipaður á næsta fundi bæjarráðs og leggi fyrir bæjarráð tímasetta verkáætlun eigi síðar en sex mánuðum eftir skipun hans. Gert verði ráð fyrir fjármagni til undirbúnings og hönnunar í fjárhagsáætlun 2027?2031.“
Markmiðið er að fyrsti áfangi íþróttaaðstöðu á Miðjunni verði tekinn í notkun á yfir-standandi kjörtímabili, svo hún nýtist börnum, ungmennum og íbúum beggja byggðarkjarna jafnt.“
Aðrir liðir tillögunnar haldist óbreyttir.


Afgreiðsla á breytingatillögu D lista:
Tillagan er borin undir atkvæði og felld með atkvæðum fulltrúa D og M lista gegn atkvæðum fulltrúa B og S lista.

Afgreiðsla á breytingatillögu M lista:
Tillagan er borin undir atkvæði og felld með atkvæðum fulltrúa D og M lista gegn atkvæðum fulltrúa B og S lista.

Afgreiðsla á upphaflegri sameiginlegri tillögu:
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með atkvæðum fulltrúa B og S lista gegn atkvæðum fulltrúa D og M lista.

Forseti tekur fundarhlé að ósk fulltrúa M lista til að kynna sér viðbótartillögu B og S lista kl. 18:54

Fundur aftur settur kl.19:05

Afgreiðsla á viðbótartillögu B og S lista:
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

9.Tillaga S og B lista - endurskoðun Aðalskipulags Suðurnesjabæjar 2022-2034

2610155

Tillaga S- og B-lista um að bæjarstjórn samþykki að taka aðalskipulag sveitarfélagsins til endurskoðunar, að undangengnu mati skv. 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið endurskoðunarinnar er meðal annars að horfa til framtíðaruppbyggingar Miðjunnar, þéttingar byggðar milli Garðs og Sandgerðis og mótunar heildstæðrar framtíðarsýnar fyrir sveitarfélagið. Lögð er áhersla á virkt samráð við íbúa og hagsmunaaðila við vinnuna.
Jafnframt er lagt til að sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, í samráði við framkvæmda- og skipulagsráð, verði falið að undirbúa verkefnið, þar á meðal tímaáætlun og skipulagslýsingu.

Tóku til máls: AKG, DB, BJS, HA og AJ

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að taka aðalskipulag sveitarfélagsins til endurskoðunar og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

10.Tillaga S og B lista - aðgerðaáætlun um umhverfismál í Suðurnesjabæ

2610154

Tillaga S- og B-lista um að unnin verði aðgerðaráætlun um opin og græn svæði, leiksvæði og viðhald þeirra. Jafnframt er lagt til að umhverfisviðurkenningar verði veittar árlega frá og með hausti 2027.
Markmið tillögunnar er að efla umhirðu og fegrun sveitarfélagsins, tryggja skýra forgangsröðun verkefna og stuðla að markvissri nýtingu fjármuna. Áætlunin byggi á þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram og verði reglulega endurskoðuð með aðkomu framkvæmda- og skipulagsráðs og íbúa sveitarfélagsins.
Jafnframt er lagt til að umhverfisviðurkenningar verði veittar árlega frá og með haustinu 2027 til að hvetja íbúa, fyrirtæki og stofnanir til að leggja sitt af mörkum við fegrun og umhirðu nærumhverfisins.

Tóku til máls: AKG og BJS

Afgreiðsla:
Tillagan var samþykkt samhljóða og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

11.Tillaga S og B lista um opið bókhald.

2610156

Tillaga S- og B-lista um að Suðurnesjabær innleiði opið bókhald og birti fjárhagsupplýsingar sveitarfélagsins á heimasíðu þess á myndrænan og aðgengilegan hátt.
Markmið tillögunnar er að auka gagnsæi í fjármálum sveitarfélagsins, bæta upplýsingagjöf til íbúa og auðvelda þeim að fylgjast með ráðstöfun opinberra fjármuna.
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að afla tilboða í útfærslu og framsetningu opins bókhalds og leggja niðurstöður ásamt kostnaðarmati fyrir bæjarráð. Stefnt verði að birtingu fyrstu útgáfu á vormánuðum 2027.

Tók til máls: HA

Afgreiðsla:
Tillagan var samþykkt samhljóða og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

12.Reglur um styrki eða auglýsingar

2606161

Drög að reglum um styrki, styrktarlínur og auglýsingar lagðar fram til staðfestingar bæjarstjórnar.
Afgreiðsla:
Framlögð drög voru samþykkt samhljóða af bæjarstjórn.

13.Reglur um birtingu fylgigagna með fundargerðum og ritun fundargerða

2606047

Á fundi bæjarráðs nr. 200 var samþykkti samhljóða framlögð drög að reglum á fundi og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
Á fundi bæjarráðs nr. 200 voru samþykkti samhljóða framlögð drög að reglum á fundi og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa málinu aftur til bæjarráðs.

14.Notendaráð sveitarfélaga

2609121

Samband íslenskra sveitarfélaga minnir á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga, þ.e. samráðshóp í
málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.
Tók til máls: AJ

Afgreiðsla:
Lagt fram.

15.Valþór ÁR-123 Niðurrif

2610094

Á 35. fundi hafnarráðs samþykkti hafnarráð samhljóða að ráðast í hífingu og niðurrif á bátnum Valþóri ÁR-123 í Sandgerðishöfn með ákveðnum fyrirvörum og vísaði málinu til ákvörðunar hjá bæjarstjórn.
Lagt var fram minnisblað bæjarstjóra, dags. 16. október 2026 vegna málsins.

Tóku til máls: AJ og AKG

Afgreiðsla:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að ráðist verði í niðurrif á bátnum og förgun hans svo framarlega sem tilskilin leyfi liggja fyrir. Var bæjarstjóra falið að vinna að gerð viðauka vegna málsins.

16.Yfirlýsing um samstarf og áherslur S- og B-lista

2610054

Umbeðið af bæjarfulltrúa Miðflokksins, Daða Bergþórssyni.
Tóku til máls: DB, AKG, HH, BJS, SHS, MSM og HA


Bókun M lista:
Miðflokkurinn leggur fram eftirfarandi bókun:
Á 96. fundi bæjarstjórnar 13. október sl. lagði ég til að dagskrárlið 1, „Yfirlýsing um samstarf og áherslur S- og B-lista“, yrði frestað þar sem samstarfssamkomulagið fylgdi ekki fundarboði. Meirihlutinn felldi tillöguna með þeim rökum að málið væri einungis til kynningar.
Undirritaður leitaði í kjölfarið til Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í svari Sambandsins kemur fram að samkvæmt 2. mgr. 15. gr. sveitarstjórnarlaga skuli fundarboði fylgja þau gögn sem nauðsynleg eru til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála. Þegar samkomulag um meirihlutasamstarf sé sett á dagskrá sem sérstakur liður verði almennt að telja það meginviðfangsefni liðarins, og það samræmist best markmiðum ákvæðisins og vönduðum stjórnsýsluháttum að það fylgi fundarboði. Þá kemur fram að sveitarstjórnarlög geri ekki beinan greinarmun á málum eftir því hvort þau eru til kynningar eða afgreiðslu hvað þessa skyldu varðar, og að réttur bæjarfulltrúa til undirbúnings eigi einnig við um kynningarmál. Loks staðfestir Sambandið að frestunartillaga og bókun undirritaðs hafi verið rétta úrræðið á fundinum.
Undirrituðum er ljóst að Sambandið hefur ekki umboð til að veita formleg álit á stjórnsýslu sveitarfélaga, enda er það hlutverk innviðaráðuneytisins. Svar Sambandsins fer engu að síður skýrt yfir þau lagalegu sjónarmið sem á reynir.
Sveitarstjórnarlög gera þannig ekki þann greinarmun sem meirihlutinn byggði höfnun sína á. Undirritaður hvetur bæjarstjórn til að tryggja að framvegis fylgi öll nauðsynleg gögn fundarboði, óháð því hvort mál eru til kynningar eða afgreiðslu. Það er í samræmi við sveitarstjórnarlög, samþykktir Suðurnesjabæjar og þær áherslur á gagnsæja stjórnsýslu sem fram koma í samstarfssamkomulagi meirihlutans.
Undirritaður fer fram á að meirihlutinn viðurkenni að betur hefði mátt standa að framlagningu samstarfssamkomulagsins.
Miðflokkurinn telur ekki ástæðu til að fara lengra með málið að svo stöddu. Von undirritaðs er að þessi niðurstaða skili sér í betri vinnubrögðum bæjarstjórnar þegar litið er fram á við.


Bókun D lista:
D-listi hvetur meirihluta S- og B-lista til að falla frá fyrirhuguðum gervigrasvelli á aðalvelli Reynis og hefja þess í stað uppbyggingu yfirbyggðrar íþróttahallar á Miðjunni.
Í málefnasamningi S- og B-lista segir að íbúar Suðurnesjabæjar eigi skilið „stöðugleika, ábyrgð og stjórnsýslu þar sem tími og fjármunir eru nýttir í þágu samfélagsins en ekki í pólitísk átök“. Þar segir einnig að íbúasamráð verði eflt, m.a. með samtali um málefni sveitarfélagsins, og að rík áhersla verði lögð á að varða leiðina að uppbyggingu Miðjunnar svo hefja megi þar uppbyggingu „eins hratt og mögulegt er með áherslu á íþróttir, heilsurækt og útivist“.
D-listi tekur undir þessi markmið. Gervigrasvöllur á aðalvelli Reynis samrýmist þeim hins vegar illa. Með honum yrðu verulegir fjármunir bundnir á stað sem fellur ekki að framtíðarsýn Miðjunnar, og hætt er við að sveitarfélagið þurfi síðar að fjárfesta aftur í sambærilegu mannvirki þar. Slík tvöföld fjárfesting þar sem ráðstafa á allt að 50% af kostnaði á yfirbyggðir höll er hvorki ábyrg meðferð fjármuna né til þess fallin að draga úr þeirri togstreitu sem málið hefur valdið í samfélaginu og nær því ekki því markmiði sem meirihlutinn setur sér að draga úr átökum hvort svo sem þau eru pólitísk eður ei.
Yfirbyggð höll á Miðjunni þjónar íbúum beggja byggðarkjarna jafnt, nýtist allt árið óháð veðri og yrði fyrsta áþreifanlega skrefið í uppbyggingu svæðisins. D-listi hvetur meirihlutann til að standa við eigin stefnu, hlusta á íbúa og hefja þá vinnu strax.


Afgreiðsla:
Lagt fram.

17.Bæjarráð - 197

2609004F

197. fundur þann 9. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

18.Bæjarráð - 198

2609023F

198. fundur þann 30. september 2026.
Tóku til máls: SG og HA

Afgreiðsla:
Lagt fram.

19.Bæjarráð - 199

2610001F

199. fundur þann 21. október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

20.Bæjarráð - 200

2610024F

200. fundur þann 28. október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

21.Ferða-, safna- og menningarráð - 43

2609016F

43. fundur þann 24. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

22.Fjölskyldu- og velferðarráð - 67

2609015F

67. fundur þann 17. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

23.Fjölskyldu- og velferðarráð - 68

2610012F

68. fundur þann 14. október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

24.Framkvæmda- og skipulagsráð - 77

2609020F

77. fundur þann 22. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

25.Framkvæmda- og skipulagsráð - 78

2610017F

78. fundur þann 21.október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

26.Íþrótta- og tómstundaráð - 37

2609013F

37. fundur þann 17. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

27.Hafnarráð - 35

2610018F

35. fundur þann 20. október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

28.Fræðsluráð - 65

2608012F

65. fundur þann 9. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

29.Menntaráð - 66

2610016F

66. fundur þann 21. október 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

30.Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga - 24

2609005F

24. fundur þann 6. september 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

31.Aðalfundur - Kalka sf.

2608107

Aðalfundur Kölku haldinn 20.08.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

32.Kalka sorpeyðingarstöð - fundargerðir 2026

2601052

581. fundur stjórnar haldinn þann 01.09.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

33.Fasteignafélag Sandgerðis ehf.

2107018

Aðalfundur Fasteignafélags Sandgerðis ehf. haldinn þann 18.09.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

34.Fasteignafélagið Sunnubraut 4 fundargerð aðalfundar

2501097

Aðalfundur Fasteignafélagsins Sunnubraut 4 ehf. haldinn þann 18.09.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

35.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2026

2601084

a) 826. fundur stjórnar haldinn þann 09.09.2026.

b) 827. fundur stjórnar haldinn þann 14.10.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

36.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2026.

2602063

a)326. fundur stjórnar dags. 18.08.2026.

b)327. fundur stjórnar dags. 15.09.2026.

c)328. fundur stjórnar dags. 28.09.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

37.Brunavarnir Suðurnesja - fundargerðir 2026

2602205

a)103. fundur stjórnar dags. 31.08.2026.

b)104. fundur stjórnar dags. 17.09.2026.

c)105. fundur stjórnar dags. 15.10.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

38.Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur - fundargerðir

1905009

79. fundur stjórnar dags. 24.08.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.

39.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

2601207

a) 1001. fundur stjórnar dags. 28.08.2026.

b) 1002. fundur stjórnar dags. 11.09.2026.

c) 1003. fundur stjórnar dags. 23.09.2026.

d) 1004. fundur stjórnar dags. 08.10.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

40.Þekkingarsetur Suðurnesja - fundargerðir 2026

2603090

61. fundur stjórnar dags. 24.09.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

41.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga-fundargerðir

2210005

a) 99. fundur stjórnar dags. 24.08.2026.

b) 100. fundur stjórnar dags. 21.09.2026.

c) 101. fundur stjórnar dags. 02.10.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 20:04.

Getum við bætt efni síðunnar?