Fara í efni

Bæjarstjórn

96. fundur 13. október 2026 kl. 17:30 - 19:30 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Haukur Andreasson forseti
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir fyrsti varaforseti
  • Magnús Sigfús Magnússon annar varaforseti
  • Anton Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Haraldur Helgason aðalmaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide aðalmaður
  • Svavar Grétarsson aðalmaður
  • Egill Rúnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Aukafundur.

Áður en gengið var til dagskrár spurði forseti hvort einhver fundarmanna gerði athugasemd við boðun fundarins.

Tóku til máls: DB, MSM og HA.

Afgreiðsla:
Enginn fundarmanna gerði athugasemd við boðun fundarins.

1.Yfirlýsing um samstarf og áherslur S- og B-lista

2610054

Lagt fram samkomulag um samstarf S-lista Samfylkingar og óháðra og B-lista Framsóknar og óháðra kjörtímabilið 2026-2030.
Tóku til máls: DB, MSM og SG.

Tillaga M lista:
Fulltrúar Miðflokksins leggja til að dagskrárlið 1, „Yfirlýsing um samstarf og áherslur S- og B-lista“, verði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.
Samkvæmt 9. gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar skal fundarboði fylgja dagskrá og þau gögn sem nauðsynleg eru til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind. Samkomulagið sem liðurinn fjallar um fylgdi ekki fundarboði og barst ekki fundarmönnum sólarhring fyrir fund. Þar sem skjalið er sjálft viðfangsefni liðarins hafa bæjarfulltrúar ekki haft tök á að kynna sér efni þess og taka upplýsta afstöðu til þess.

Afgreiðsla á tillögu M lista:
Tillaga M lista felld með atkvæðum fulltrúa S og B lista. Fulltrúar M lista greiddu atkvæði með tillögunni. Fulltrúar D lista sátu hjá.



Yfirlýsing um samstarf og áherslur S-lista og B-lista
Kjörtímabilið 2026-2030:

S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um samstarf um stjórn Suðurnesjabæjar á kjörtímabilinu 2026-2030.
Samstarfið byggir á stefnuskrám beggja framboðslista, sameiginlegum áherslum og þeirri grundvallarsýn að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar skuli ávallt vera í fyrirrúmi. Lögð verður rík áhersla á gagnsæja stjórnsýslu, ábyrga meðferð fjármuna sveitarfélagsins og gott samstarf allra kjörinna fulltrúa, óháð pólitískum skoðunum.
Undanfarnir dagar hafa einkennst af pólitískri óvissu og breytingum á stjórn sveitarfélagsins. Fulltrúar S- og B-lista gera sér grein fyrir því að slík staða getur haft áhrif á traust íbúa til stjórnmálanna. Íbúar Suðurnesjabæjar eiga skilið stöðugleika, ábyrgð og stjórnsýslu þar sem tími og fjármunir eru nýttir í þágu samfélagsins en ekki í pólitísk átök.
Með þessu samstarfi vilja S- og B-listi marka nýtt upphaf í bæjarmálum Suðurnesjabæjar. Aðilar eru sammála um að traust verði ekki byggt upp með orðum einum saman, heldur með verkum, heilindum og gagnkvæmri virðingu. Ágreiningur um einstök málefni má aldrei verða til þess að sameiginlegir hagsmunir íbúa víki fyrir pólitískum átökum.
Það er sameiginlegur ásetningur beggja framboðslista að láta verkin tala, byggja upp traust og vinna af heilindum að farsælli framtíð Suðurnesjabæjar.
Á þeim grunni hafa S-listi og B-listi sammælst um eftirfarandi áherslur og verkefni á kjörtímabilinu 2026-2030.


Fjármál og stjórnsýsla
Lögð verður áherslu á hagkvæma og ábyrgja fjármálastjórn þar sem tekjustofnar Suðurnesjabæjar verða nýttir sem best og forgangsraðað eftir þörfum.
Settur verður kraftur í stafræna vegferð Suðurnesjabæjar og m.a. með því að innleiða opið bókhald með það að markmiði að birta stöðu fjárhagslegra upplýsinga til íbúa á myndrænan og aðgengilegan hátt.
Íbúasamráð verður eflt m.a. með því að eiga samtal um málefni sveitarfélagsin, auka aðgengi að fundum bæjarstjórnar, bæði staðbundum og í streymi og auka aðgengi íbúa að gögnum þeim tendum.
Lögð verður áhersla á að efla nefndarkerfið með það að leiðarljósi að fastanefndir fái aukið svigrúm til þátttöku í ákvörðunum og mótun verkefna sem sveitarfélagið vinnur að eða er þátttakandi í.
Leitað verður leiða til að gjaldskrá sveitarfélagins verði ætíð sem lægst og sanngjörnust gagnvart íbúum, m.a. er snýr að vatnsveitugjöldum.
Lögð verður áhersla á að fara sem fyrst yfir eignasafn sveitarfélagsins og leitað leiða til að hámarka nýtingu og ávinning.
Árlega verði viðburður þar sem bæjarstjóri og bæjarstjórn býður nýja íbúa í Suðurnesjabæ velkomna.

Unnið verður markvisst að greiningu á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að auka hagkvæmni, bæta skilvirkni og tryggja ábyrga meðferð fjármuna.
Samhliða verður lögð áhersla á að leita leiða til að lækka álögur á íbúa og fyrirtæki, eftir því sem fjárhagslegar forsendur leyfa.
Með ábyrgri fjármálastjórn, aukinni hagræðingu og betri nýtingu fjármuna verður skapað aukið svigrúm til nauðsynlegra framkvæmda, uppbyggingar innviða og bættrar þjónustu við íbúa sveitarfélagsins.


Velferðarmál
Leitað verði leiða til að jafna tækifæri allra íbúa Suðurnesjabæjar til betra lífs.
Lögð verður áhersla á að eiga samtöl við ríkið um stuðning vegna málefna fatlaðra og eldri borgara, m.a. er snúa að þjónustu í heimabyggð og búsetuúrræðum.
Vegferðinni að bættri heilbrigðisþjónustu í heimabyggð verður haldið áfram, m.a. með áherslu á geðheilbrigðismál.
Unnið verður markvisst með ríkinu að uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ.


Mennta- og fræðslumál
Lögð verður rík áhersla á að efla áfram allt skólastarf í Suðurnesjabæ og að börnum, ungmennum og starfsfólki verð tryggðar sem bestar starfsaðstæður.
Áfram verður lögð rík áhersla á að efla tónlistarkennslu í Suðurnesjabæ, tryggja öflugt og metnaðarfullt tónlistarnám og skapa tónlistarkennslu góð skilyrði til áframhaldandi vaxtar og uppbyggingar.
Greindir verða möguleikar þess að halda leikskólagjöldum í lágmarki með það að markmiði að foreldrar greiði að hámarki 50 þúsund krónur fyrir fulla vistun og að hægt verði að veita 100% systkinaafslátt.
Áfram verður lögð áhersla á að tryggja nægt framboð leikskólaplássa og brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar.
Áfram verður leitað leiða til að auka hlutfall fagmenntaðs starfsfólk allra skólastiga og tónlistarskóla og rammi mótaður þar um.


Íþróttir, tómstundir og forvarnir
Rík áhersla verður lögð á að varða leiðina að uppbyggingu Miðjunnar með það að leiðarljósi að hægt verði að hefja þar uppbyggingu eins hratt og mögulegt er með áherslu á íþróttir, heilsurækt og útivist.
Áfram verður unnið að því að ákvörðun um gervigrasvöll verði tekin ásamt því að önnur æfingaaðstaða verði bætt sem fyrst.
Áfram verður unnið að því að efla samstarf eldri borgara og möguleikar frístundastyrkja fyrir 67 ára og eldri verða skoðaðir.
Leitað verður leiða til að nýta íþróttamannvirki betur, m.a. er snýr að rýmri opnunartíma sundlauga.
Skoðaðir verða þeir möguleikar að endurskoða og efla frístundastyrkjakerfið með það að leiðarljósi að öll börn fái jöfn tækifæri til iðkunar íþrótta og tómstunda.
Rík áhersla verður lögð í að styðja við og koma til móts við íþróttafélög og aðra til að efla faglegt starf þeirra sem leið til að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttum og tómstundum.


Ferða- safna og menningarmál
Rík áhersla verður lögð í að markaðssetja Suðurnesjabæ sem áfangastað fyrir ferðamenn og sem áhugaverðan stað til búa á og starfa og finna leiðir til að málaflokkurinn fái stærra hlutverk innan reksturs stjórnsýslunnar.
Rík áhersla verður lögð á að efla upplýsingagjöf, m.a. með merkingum og einkennandi bæjarskiltum Suðurnesjabæjar, skiltum um sögu og menningarminjar.
Áhersla verður á að standa vörð um Menningarsjóð Suðurnesjabæjar sem leið til að stuðla að frumkvæði íbúa er snýr að menningartengdum viðburðum og verkefnum.
Áhersla verður á að áningastaðir innan Suðurnesjabæjar verði gerðir aðgengilegri og meira aðlaðandi, þ.m.t gamla höfnin í Garði, Gryfjan í Sandgerði, hafnarsvæðið í Sandgerði og að Garðskaginn verði áfram lykiláningastaður í Suðurnesjabæ.
Samtal mun eiga sér stað við landeigendur vegna umhverfis Hvalsneskirkju er snýr að deiliskipulagsgerð.
Lögð verður áhersla á að klára framkvæmdir sem snúa að bættu aðgengi við Sandgerðisskirkju og þá verður áhersla
Lögð verður áhersla á að ljúka endurgerð Útskálahúss.
Leitað verður leiða til þess að áramótabrenna verði aftur haldin í sveitarfélaginu.


Skipulagsmál
Lögð er áhersla á að fara í endurskoðun á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar og að tryggt verði að lykilsvæði verði deiliskipulög eða endurskoðuð, þ.á.m. Miðjan með það að markmiði að svæðið byggist upp sem svæði fyrir íþróttir, tómstundir og útivist.
Rík áhersla verður á að í báðum kjörnum Suðurnesjabæjar verði framboð fjölbreyttra lóða, bæði íbúða- og atvinnulóða.
Áhersla verður lögð á að til verði áætlun um viðhald og lagningu gatna- og stígagerðar og að henni verði fylgt eftir.
Unnið verður markvisst að góðu samstarfi við ríkið um viðhald og uppbyggingu þeirra vega sem eru á ábyrgð þess innan sveitarfélagsins.
Lögð verður áhersla á að fylgja eftir brýnum samgönguverkefnum og tryggja að uppbygging vegakerfisins haldist í hendur við vöxt og þarfir Suðurnesjabæjar.
Rík áhersla verður á að efla göngu- og hjólastíga til og frá Suðurnesjabæ. Lagt er upp með að fyrsti áfangi verði að klára stíginn frá Garði að Leiru og því næst horft til þess að göngu- og hjólastígur frá Suðurnesjabæ að Flugstöð líti dagsins ljós.


Umhverfismál
Stórátak verður í fegrun bæjarins með áherslu á græn og opin svæði og leiksvæði og leitað eftir samvinnu við íbúa og fyrirtæki í bænum.
Séð verður til þess að árlega verði veittar umhverfisviðurkenningar til íbúa og atvinnurekenda í Suðurnesjabæ.
Gerð verður áætlun um nauðsynlegar framkvæmdir í fráveitumálum og vegferð til úrbóta í málaflokknum verður hafin.
Áfram verður unnið að eflingu umferðaröryggis, m.a. er snýr að öryggi við stofnanir í sveitarfélaginu og lykilvega eins og á Garðskagavegi og Sandgerðisvegi.
Unnið verður markvisst að því, í samstarfi við ríkið, að tryggja aukið fjármagn til sjóvarna í Suðurnesjabæ. Lögð verður rík áhersla á að nauðsynlegar framkvæmdir við uppbyggingu og styrkingu sjóvarna fái þann forgang sem þörf er á, með það að markmiði að verja byggð, mannvirki og mikilvæga innviði sveitarfélagsins til framtíðar.
Rík áhersla verður á samtal við einkaaðila um fjölgun rafhleðslustöðvum.


Atvinnumál
Atvinnustefna fyrir Suðurnesjabæ verður mótuð sem leggur áherslu á lykilsvæði innan sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að skapa fjölbreytt atvinnutækifæri.
Gerð verður þjónustu- og framkvæmdastefna fyrir Sandgerðishöfn með það að leiðarljósi að gera hana samkepnnishæfari og að hafnarsvæðið verði eflt til atvinnuuppbyggingar.
Rík áhersla verður lögð á að hámarka tækifæri K64 og hafa áhrif á þróun hennar með sérstaka áherslu á uppbyggingu í Bergvík.
Leitað verði allra leiða til að efla almenningssamgöngur í samstarfi við hagsmunaaðila og ríki.


Bókun fulltrúa M lista:
Fulltrúar Miðflokksins gera athugasemd við að samkomulag S- og B-lista, sem er viðfangsefni dagskrárliðar 1, hafi ekki fylgt fundarboði eins og 9. gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar kveður á um, en þar segir að fundarboði skuli fylgja þau gögn sem nauðsynleg eru til að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta afstöðu til mála. Tillaga um að fresta liðnum til næsta fundar var felld af meirihluta bæjarstjórnar. Fulltrúar Miðflokksins telja þessi vinnubrögð ekki samræmast samþykktum sveitarfélagsins og hvetja til þess að framvegis fylgi öll nauðsynleg gögn fundarboði.


Forseti tók fundarhlé að beiðni fulltrúa M lista kl. 17:55
Fundur aftur settur kl. 18:00


Afgreiðsla:
Lagt fram.

2.Kosning forseta bæjarstjórnar sbr. 7.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605150

Kosning forseta bæjarstjórnar til eins árs sbr. 7.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
Tók til máls: AKG.

Tillaga lögð fram að Anton Kristinn Guðmundsson verði kjörinn forseti bæjarstjórnar.

Afgreiðsla:
Samþykkt með atkvæðum fulltrúa B og S lista að Anton Kristinn Guðmundsson verði forseti bæjarstjórnar til eins árs. Fulltrúar D og M lista sátu hjá.

Anton tók í kjölfarið við fundarstjórn fundarins.


3.Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar sbr. 7.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605151

Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs sbr. 7.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
Tóku til máls: AKG og HH.

Tillaga B og S lista lögð fram um að Bergný Jóna Sævarsdóttir verði 1. varaforseti bæjastjórnar.

Tillaga D lista lögð fram um að Haraldur Helgason verði 2.varaforseti bæjarstjórnar.

Afgreiðsla:
Samþykkt með atkvæðum fulltrúa B, S og D lista að Bergný Jóna Sævarsdóttir verði 1.varaforseti bæjarstjórnar og Haraldur Helgason 2.varaforseta til eins árs. Fulltrúar M lista sátu hjá.


4.Kosning í bæjarráð sbr. 27.gr. og A-liður 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605152

Kosning þriggja aðalmanna og jafnmargra varamanna í bæjarráð til eins árs í senn sbr. 27.gr. og A-liður 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
Tóku til máls: AKG, HA og SHS.

Tillaga B og S lista að Svavar Grétarsson verði formaður bæjarráðs bæjarráðs til eins árs ásamt því að Magnús Sigfús Magnússon verði varaformaður.
Varamenn Bergný Jóna Sævarsdóttir og Anton Kristinn Guðmundsson.

Tillaga D lista að Haukur Andreasson verði aðalmaður og Haraldur Helgason varamaður.

Tillaga M lista að Daði Bergþórsson verði aðalmaður og Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide verði varamaður.


Tillögurnar bornar upp til atkvæða:

Tillaga B og S lista fimm atkvæði fulltrúa B og S lista.

Tillaga D lista fær tvö atkvæðum fulltrúa D lista.

Tillaga M lista fær tvö atkvæði fulltrúa M lista.

Tillaga D og M lista fell því á jöfnu. Því úrskurðaði forseti um hlutkesti á milli D og M lista. D listi fellur frá hlutkesti.

D listi fellur frá tillögu sinni um aðalmann og óskar að vera með áheyrnarfulltrúa.

Niðurstaða:
Kjörnir eru í bæjarráð

Aðalmenn:
Svavar Grétarsson, formaður (S lista)
Magnús S. Magnússon, varaformaður (B lista)
Daði Bergþórsson, aðalmaður (M lista)
Haukur Andeasson, áheyrnarfulltrúi (D lista)

Varamenn:
Bergný Jóna Sævarsdóttir (S lista)
Anton Kristinn Guðmundsson (B lista)
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide (M lista)
Haraldur Helgason (D lista)


5.Kosning aðal-og varamanna í nefndir og ráð Suðurnesjabæjar til fjögurra ára sbr. B-liður 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605157

Kosning aðal-og varamanna í nefndir og ráð Suðurnesjabæjar til fjögurra ára sbr. B-liður 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
Tóku til máls: AKG, SHS og HA.

Eftirfarandi tillögur bárust í aðal- og varamenn í nefndir og ráð Suðurnesjabæjar.

Menntaráð:
Aðalmenn:
Margrét Alda Sigurvinsdóttir formaður (S lista)
Bylgja Dröfn Olsen Jónsdóttir varaformaður (B lista)
Róbert Páll Arason (B lista)
Guðmundur Torfi Rafnsson (D lista)
Sigríður Rós Jónatansdóttir (M lista)

Varamenn:
Sigurbjörg Ragnarsdóttir (S lista)
Ólöf Ólafsdóttir (B lista)
Þórsteina Þöll Árnadóttir (B lista)
Sólmundur Ingi Einvarðsson (D lista)
Gréta Ágústsdóttir (M lista)

Íþrótta-og tómstundaráð:
Aðalmenn:
Sindri Lars Ómarsson formaður (B lista)
Agnes Helgadóttir varaformaður (S lista)
Benóný Þórhallsson (S lista)
Ólafur Fannar Þórhallsson (M lista)
Margrét Edda Arnardóttir (D lista)

Varamenn:
Þórsteina Þöll Árnadóttir (B lista)
Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson (S lista)
Jón Þór Jónsson Hansen (S lista)
Oliwia Fierka (D lista)
Guðbergur Magni Guðmundsson (M lista)

Ferða-, safna-og menningarráð
Aðalmenn:
Óskar Helgason formaður (B lista)
Bára Kristín Þórisdóttir varaformaður (S lista)
Magnús Orri Arnarson (S lista)
Sigurður Þór Magnússon (D lista)
Gréta Ágústsdóttir (M lista)

Varamenn:
Hallur Gunnarsson (B lista)
Petra Wium Sveinsdóttir (S lista)
Margrét Bjarnadóttir (S lista)
Jónatan Már Sigurjónsson (D lista)
Erla Jóhannsdóttir (M lista)

Fjölskyldu-og velferðarráð:
Aðalmenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir formaður (S lista)
Ólöf Ólafsdóttir varaformaður (B lista)
Þórsteina Sigurjónsdóttir (B lista)
Berglind Lára Haraldsdóttir (D lista)
Erla Jóhannsdóttir (M lista)

Varamenn:
Bára Kristín Þórisdóttir (S lista)
Ewa Krysztopa (B lista)
Bylgja Dröfn Olsen Jónsdóttir (B lista)
Arnar Geir Gestsson (D lista)
Sigríður Rós Jónatansdóttir (M lista)

Framkvæmda og skipulagsráð:
Aðalmenn:
Bergný Jóna Sævarsdóttir formaður (S lista)
Gísli Jónatan Pálsson varaformaður (B lista)
Przemyslaw Szymajda (S lista)
María Kjartansdóttir (D lista)
Ingólfur E. Sigurjónsson (M lista)

Varamenn:
Jón Snævar Jónsson (S lista)
Magnús Sigfús Magnússon (B lista)
Önundur S Björnsson (S lista)
Bogi Jónsson (D lista)
Elmar Aron Gunnarsson (M lista)

Hafnarráð:
Aðalmenn:
Magnús Sigfús Magnússon formaður (B lista)
Jón Þór Jónsson Hansen varaformaður (S lista)
Guðmundur Fannar Sigurbjörnsson (S lista)
Jón Heiðar Hjartarson (D lista)
Elmar Aron Gunnarsson (M lista)

Varamenn:
Gissur Þór Grétarsson (B lista)
Önundur S Björnsson (S lista)
Egill Rúnar Sigurðsson (S lista)
Guðmundur Torfi Rafnsson (D lista)
Hafþór Örvar Sveinsson (M lista)

Stjórn Bílastæðasjóðs Suðurnesjabæjar:
Sindri Lars Ómarsson formaður (B lista)
Daði Bergþórsson (M lista)
(fulltrúi tilnefndur af Isavia)

Yfir- og undirkjörstjórnir:
Skipað var í yfirkjörstjórn og undirkjörstjórnir Suðurnesjabæjar til fjögurra ára.
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar

Aðalmenn:
Pétur Brynjarsson
Fjóla Svavarsdóttir
Laufey Margrét Magnúsdóttir

Varamenn:
Helgi Haraldsson
Gísli Heiðarsson
Yngvi Jón Rafnsson

Undirkjörstjórn kjördeildar í Garði
Aðalmenn:
Kristbjörg Eyjólfsdóttir
Sigurbjörg Ragnarsdóttir
Álfhildur Sigurjónsdóttir Heide

Varamenn:
Guðríður S. Brynjarsdóttir
Vignir Rúnarsson
Hildur Bernódusdóttir

Undirkjörstjórn kjördeildar í Sandgerði
Aðalmenn:
Hafsteinn Þór Friðriksson
Hermann Jónsson
Þórsteina Sigurjónsdóttir

Varamenn:
Konný Hrund Gunnarsdóttir
Andrea Bára Andreasdóttir
Ewa Krysztopa


Afgreiðsla:
Skoðast þau því samþykkt í nefndir og ráð Suðurnesjabæjar, ekki bárust fleiri tillögur og teljast þau því rétt kjörin.

6.Kosning þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga og í stjórnir sbr. C-liður, 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

2605158

Kosning þingfulltrúa hjá samtökum sveitarfélaga og í stjórnir sbr. C-liður, 47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
Tóku til máls: AKG, SHS og HA.

Eftirfarandi tillögur bárust í fulltrúa, aðal- og varamenn samanber C lið.47.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.

Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum
Aðalmaður í stjórn SSS verður Anton Kristinn Guðmundsson (B lista)
Varamaður verður Svavar Grétarsson (S lista)

Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur
Aðalmaður: Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Varamaður: Svavar Grétarsson (S lista)

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja:
Aðalmaður: Sindri Lars Ómarsson (B lista)
Varamaður: Önundur S Björnsson (S lista)

Stjórn Kölku sorpeyðingarstöðar sf.
Aðalmaður: Önundur S Björnsson (S lista)
Varamaður: Gísli Jónatan Pálsson (B lista)

Brunavarnir Suðurnesja.
Aðalmaður: Magnús Sigfús Magnússon (B lista)
Varamaður: Egill Rúnar Sigurðsson (S lista)

Úthlutunarnefnd uppbyggingarsjóðs Suðurnesja, tilnefning Suðurnesjabæjar til stjórnar Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Aðalmenn:
Agnes Helgadóttir (S lista)
Róbert Páll Arason (B lista)

Varamenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir (S lista)
Sindri Lars Ómarsson (B lista)

Reykjanes jarðvangur
Aðalmaður: Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Varamaður: Óskar Helgason (B lista)

Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar
Aðalmaður verður Bergný Jóna Sævarsdóttir (S lista)
Varamaður verður Gísli Jónatan Pálsson (B lista)

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja
Aðalmaður: Bergný Jóna Sævarsdóttir (S lista)
Aðalmaður: Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

Varamenn:
Gísli Jónatan Pálssonn (B lista)
María Kjartansdóttir (D lista)

Stjórn Náttúrustofu Suðvesturlands
Aðalmenn:
Bára Kristín Þórisdóttir formaður (S lista)
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide (M lista)

Varamenn:
Ewa Krysztopa (B lista)
Erla Jóhannsdóttir (M lista)

Þekkingarsetur Suðurnesja:
Stjórn Þekkingarseturs Suðurnesja
Aðalmaður: Bára Kristín Þórisdóttir (S lista)
Varamaður: Ólöf Ólafsdóttir (B lista)

Fagráð háskólaseturs Suðurnesja
Fulltrúi sveitarfélagsins verður Bára Kristín Þórisdóttir (S listi)

Öldungaráð
Aðalmenn:
Jórunn Alda Guðmundsdóttir formaður (S lista)
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide (M lista)
(fulltrúi tilnefndur af Sveitarfélaginu Vogum)

Varamenn:
Sigurbjörg Ragnarsdóttir (S lista)
Gréta Ágústsdóttir (M lista)
(fulltrúi tilnefndur af Sveitarfélaginu Vogum)

Heklan - atvinnuþróunarfélag Suðurnesja
Aðalmaður: bæjarstjóri Suðurnesjabæjar

Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands
Aðalmaður: Magnús Sigfús Magnússon (B lista)
Varamaður: Egill Rúnar Sigurðsson (S lista)

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Aðalmenn:
Anton Kristinn Guðmundsson (B lista)
Svavar Grétarsson (S lista)
Haraldur Helgason (D lista)

Varamenn:
Magnús Sigfús Magnússon (B lista)
Bergný Jóna Sævarsdóttir (S lista)
Haukur Andreasson (D lista)

Fasteignafélag Sandgerðis
Aðalmenn:
Magnús Sigfús Magnússon formaður (B lista)
Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Arnar Geir Gestsson (D lista)

Fasteignafélagið Sunnubraut 4
Aðalmaður: Egill Rúnar Sigurðsson (S lista)

Afgreiðsla:
Skoðast þau því samþykkt, ekki bárust fleiri tillögur og teljast þau því rétt kjörin.

7.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

2005085

Tilnefning fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks, 2 aðalmenn og 2 til vara.
Tók til máls AKG:
Eftirfarandi tillaga lögð fram varðandi tilnefningu í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks:

Aðalmenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide

Varamenn:
Berglind Lára Haraldsdóttir
Erla Jóhannsdóttir

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða.

8.Fundaáætlun - Bæjarstjórn og bæjarráð.

2605161

Tillaga að uppfærðri fundaáætlun bæjarstjórnar frá október 2026 til júní 2027.
Afgreiðsla:
Uppfærð fundaáætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs samþykkt samhljóða.

9.Ráðning mannauðsstjóra

2507051

Greinargerð fyrir bæjarstjórn vegna ráðningar í starf mannauðsstjóra hjá Suðurnesjabæ.
Tók til máls: AJ, DB og AKG.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að ráða Ólaf Árnason í starf mannauðsstjóra hjá Suðurnesjabæ.
Forseti tók fundarhlé að beiðni fundarritara kl.18:46
Fundur aftur settur kl.19:08

Undir fundarstjórn forseta tók BJS til máls.

Fundi slitið - kl. 19:30.

Getum við bætt efni síðunnar?