Fara í efni

Bæjarstjórn

94. fundur 02. september 2026 kl. 17:30 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Haukur Andreasson forseti
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir fyrsti varaforseti
  • Magnús Sigfús Magnússon annar varaforseti
  • Anton Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Haraldur Helgason aðalmaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide aðalmaður
  • Svavar Grétarsson aðalmaður
  • Egill Rúnar Sigurðsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár lagði forseti fram eftirfarandi bókun:
Fyrir hönd bæjarstjórnar vottum við aðstandendum Helga Sigurbjörnssonar, starfsmanni Suðurnesjabæjar í íþróttamiðstöðinni í Garði, samúð en hann lést skyndilega þann 13. ágúst síðastliðinn.


Einnig óskaði forseti eftir leyfi fundarins til að fresta dagskrármáli nr.12 og óska eftir því að það fari á dagskrá næsta fundar bæjarráðs.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða.

1.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Viðaukar 9,10 og 11
Tóku til máls: SG og MSM.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

2.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Fjárhagsrammi 2027
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Fundaáætlun 2026 - 2027

2608158

Drög að fundaáætlun fyrir bæjarstjórn og bæjarráð 2026-2027
Tók til máls: SG.

Afgreiðsla:
Fundaráætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs samþykkt samhljóða.

4.Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar

1806942

Fjölskyldu- og velferðarráð samþykkir á fundi ráðsins nr. 66 fyrirliggjandi drög að reglum um styrk til lögmannsaðstoðar og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta reglur um lögmannsaðstoð.

5.Skipunarbréf Stefnuráðs

2608149

Erindisbref stefnuráðs - Skipunarbréf Alexöndru Jóhannesdóttur, bæjarstjóra.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða.

6.Tillaga frá fulltrúum B lista um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ

2608150

Tillaga frá fulltrúum B lista um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ.
Tóku til máls: AKG, DB, HH, MSM og BJS.

Tillaga B lista:
Fulltrúar B-lista leggja til að bæjarstjóra verði falið að hefja markvisst samtal við ríkið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ, með það að markmiði að uppbygging hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu verði tekin til formlegrar skoðunar og komi inn í áætlanir ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimila.
Við þær viðræður verði lagt til grundvallar að Suðurnesjabær sé reiðubúinn að leggja ríkinu til hentuga lóð undir hjúkrunarheimili, enda verði uppbygging og fjármögnun verkefnisins á ábyrgð ríkisins í samræmi við gildandi fyrirkomulag um ábyrgðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Við undirbúning viðræðnanna verði sérstaklega horft til Aðalskipulags Suðurnesjabæjar 2022?2034 og gildandi skipulagsáætlana sveitarfélagsins, þar á meðal deiliskipulags Miðbæjarsvæðis í Sandgerði frá árinu 2003, þar sem gert er ráð fyrir byggingarreit við Miðnestorg fyrir heilsugæslu, sérþjónustu og heimilisvernd.
Bæjarstjóra verði falið að hefja þegar í stað viðræður við ríkisvaldið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ, með þeim formerkjum að sveitarfélagið sé reiðubúið að leggja ríkinu til hentuga lóð undir uppbygginguna.
Bæjarstjóri upplýsi sveitarstjórn um framgang viðræðna við ríkið og leggi niðurstöður þeirra fyrir sveitarstjórn til frekari ákvörðunar.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða.

7.Bæjarráð - 194

2607014F

Tók til máls: MSM.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

8.Bæjarráð - 195

2608004F

Tóku til máls: AKG og AJ.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

9.Bæjarráð - 196

2608018F

Tóku til máls: DB, SG, MSM, AKG, HA, HH, BJS og AJ.

Bókun fulltrúa M lista við mál 9.15:
Fulltrúar Miðflokksins geta ekki samþykkt ákvörðun bæjarráðs um að greiða Sunnugarði ehf. 20 m.kr. á grundvelli fyrirliggjandi minnisblaðs.
Miðflokknum þykir mikilvægt að það góða starf sem unnið er í leikskólanum haldi áfram og að rekstrarumhverfi hans sé tryggt til framtíðar. Jafnframt telur Miðflokkurinn mjög mikilvægt að þeirri vinnu sem hafin var við endurskoðun samnings sveitarfélagsins við Sunnugarð ehf. verði lokið sem fyrst og að fyrir liggi skýr og uppfærður samningur milli aðila. Það breytir þó ekki þeirri skyldu sveitarfélagsins að gæta vel að meðferð opinberra fjármuna og að greiðslur úr sveitarsjóði byggi á skýrum og málefnalegum forsendum.
Í minnisblaðinu kemur fram að rekstrarstjóri Sunnugarðs ehf. hafi óskað eftir leiðréttingu á greiðslum að fjárhæð 35.491.308 kr. vegna áranna 2025 og 2026. Í niðurstöðu minnisblaðsins er hins vegar fullyrt að „óumdeilt“ sé að inneign fyrirtækisins sé að lágmarki 20 m.kr. og lagt til að sú fjárhæð verði greidd sem fyrst.
Engin fullnægjandi skýring eða útreikningur kemur fram í minnisblaðinu á því hvernig komist er að þeirri niðurstöðu að 20 m.kr. séu óumdeild inneign, þegar krafa fyrirtækisins sjálfs nemur rúmum 35 m.kr.
Jafnframt hefur ekki verið sýnt fram á hvaða ákvæði gildandi samnings skapa sveitarfélaginu greiðsluskyldu vegna þessarar fjárhæðar. Breyttar rekstrarforsendur fyrirtækis geta kallað á endurskoðun samnings, en þær skapa ekki sjálfkrafa rétt til afturvirkra greiðslna úr sveitarsjóði.
Fulltrúar Miðflokksins telja því óforsvaranlegt að ráðstafa 20 m.kr. af fjármunum sveitarfélagsins áður en fyrir liggur skýr samningsleg og fjárhagsleg greining á greiðsluskyldu sveitarfélagsins og hvernig umrædd fjárhæð er fundin út.

Forseti tekur fundarhlé kl.18:35
Fundur settur aftur kl. 18:45

Tillaga forseta að taka til umræðu mál 9.5 að ósk bæjarfulltrúa B lista Magnúsar Sigfúsar Magnússonar í lok fundar þar sem um trúnaðarmál er að ræða.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að taka mál 9.5 fyrir í lok fundar þar sem um trúnaðarmál er að ræða. Fundargerð er að öðru leyti lögð fram.

10.Ferða-, safna- og menningarráð - 42

2608013F

Tóku til máls: ERS og AKG.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

11.Fjölskyldu- og velferðarráð - 66

2608014F

Afgreiðsla:
Lagt fram.

12.Reiknilíkan leik- og grunnskóla samningur

2608126

Verk- og þjónustusamningur milli Intenta ehf. og Suðurnesjabæjar.

Mál tekið af dagskrá í upphafi fundar.

13.Aðalfundur - Kalka sf.

2608107

Ársreikningur Kölku og Grænt bókhald Kölku 2025
Tóku til máls: AKG, AJ, SG, BJS og HH.

Afgreiðsla:
Lagt fram.
Bæjarfulltrúar samþykktu samhljóða að loka fundi fyrir umræðu um trúnaðarmál nr.9.5 frá 196.fundi bæjarráðs í lok bæjarstjórnarfundar.
Fundi lokað kl.18:55.
Fundur opnaður aftur kl.19:19

Í lok fundar vill bæjarstjórn óska íbúum til hamingju með vel heppnaða og veglega Vitadaga. Hátíðin, sem hófst mánudaginn 24. ágúst og lauk sunnudaginn 30. ágúst, var hin glæsilegasta, nóg var í boði fyrir alla og ljóst að íbúar og gestir skemmtu sér vel í Suðurnesjabæ.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?