Bæjarstjórn
Dagskrá
1.Ráðning bæjarstjóra Suðurnesjabæjar
2605154
Ráðning nýs bæjarstjóra Alexöndru Jóhannesdóttur, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og 49. og 50 gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar, í samræmi við fyrirliggjandi ráðningarsamning.
2.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
2605160
Á 193. fundi bæjarráðs þann 1.júlí 2026 var samþykkt samhljóða breyting á 11.gr. siðareglna kjörinna fulltrúa og siðareglunum vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Tóku til máls:
MSM og SG
Afgreiðsla:
Siðareglur kjörinna fulltrúa samþykktar samhljóða, verða undirritaðar og kynntar fyrir öllum nefndum og ráðum ásamt því að verða gerðar aðgengilegar á vefsíðu Suðurnesjabæjar. Bæjarstjóra er falið að senda þær til staðfestingar til innviðaráðuneytisins í samræmi við 1. mgr. 29.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011

3.Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja
2606046
Á 193. fundi bæjarráðs þann 1.júlí 2026 var eftirfarandi tilnefning fulltrúa í úthlutnarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og D lista. Fulltrúi M lista sat hjá.
Aðalmenn:
Agnes Helgadóttir
Róbert Páll Arason
Varamenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sindri Lars Ómarsson
Aðalmenn:
Agnes Helgadóttir
Róbert Páll Arason
Varamenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sindri Lars Ómarsson
Tóku til máls:
AKG
Afgreiðsla:
Samþykkt með 8 atkvæðum frá bæjarfulltrúum D lista, S lista, B lista og Sigrúnu Hörpu Sigurjónsdóttur Heide bæjarfulltrúa M lista að staðfesta tilnefningu fulltrúa í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja til stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Bæjarfulltrúi Daði Bergþórsson frá M lista sat hjá.

4.Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
2005085
Á 193. fundi bæjarráðs þann 1.júlí 2026 var eftirfarandi tilnefning fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks samþykkt samhljóða.
Aðalmenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide
Varamenn:
Berglind Lára Haraldsdóttir
Erla Jóhannsdóttir
Aðalmenn:
Thelma Dís Eggertsdóttir
Sigrún Harpa Sigurjónsdóttir Heide
Varamenn:
Berglind Lára Haraldsdóttir
Erla Jóhannsdóttir
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta tilnefninguna um fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
Samþykkt samhljóða að staðfesta tilnefninguna um fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks.
5.Sólborgir
2607004
Beiðni vegna milligöngu um afnota af athafnarsvæði á Rockville svæðinu og vilyrði fyrir breyttu deiliskipulagi.
Tóku til máls:
DB, BJS, MSM og AKG
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umfjöllunar í bæjarráði.
DB, BJS, MSM og AKG
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa málinu til umfjöllunar í bæjarráði.
6.Sandgerðishöfn - viðhaldsmál
2004035
Á 34.fundi Hafnarráðs var samþykkt samhljóða að fela starfandi hafnarstjóra að taka saman tillögu til viðauka varðandi dýptarmælingar og leggja fyrir bæjarstjórn.
Tóku til máls:
ÁGÁ og DB
Afgreiðsla:
Tillögur í minnisblaði að framkvæma dýptarmælingar í Sandgerðishöfn samþykktar samhljóða og vísað til gerðs viðauka.
ÁGÁ og DB
Afgreiðsla:
Tillögur í minnisblaði að framkvæma dýptarmælingar í Sandgerðishöfn samþykktar samhljóða og vísað til gerðs viðauka.
7.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Á 192. fundi bæjarráðs þann 10.júní 2026 var viðauki nr.5 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 5.
8.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Á 193.fundi bæjarráðs þann 1.júlí 2026 var viðauki nr.6 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 6.
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 6.
9.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Á 193.fundi bæjarráðs þann 1.júlí 2026 var viðauki nr.7 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.
Tók til máls:
ÁGÁ
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 7.
ÁGÁ
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 7.
10.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Viðauki nr. 8 vegna dýptarmælinga Sandgerðishafnar lagður fram til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tók til máls:
ÁGÁ
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 8.
ÁGÁ
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr. 8.
11.Fundaáætlun - Bæjarstjórn og bæjarráð.
2605161
Á 192. fundi bæjarráðs þann 10.júní 2026 var uppfærð fundaráætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs samþykkt með atkvæðum S og D lista og vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Fulltrúi M lista sat hjá. Á sama fundi var einnig samþykkt samhljóða að fundartími bæjarráðs verði að jafnaði kl.15:30.
Tóku til máls:
DB, AKG og ÁGÁ
Forseti bæjarstjórnar tók fundarhlé kl. 18:40.
Fundur aftur settur kl. 19:00.
Afgreiðsla:
Fundaráætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs út september 2026 samþykkt með atkvæðum frá bæjarfulltrúum D lista, S lista, B lista og atkvæði frá Sigrúnu Hörpu Sigrjónsdóttur Heide M lista. Bæjarfulltrúi Daði Bergþórsson frá M lista greiddi atkvæði á móti.

12.Starfskjör kjörinna fulltrúa og nefndarlaun
2606043
Á 192.fundi bæjarráðs þann 10.júní 2026 var samþykkt með atkvæðum fulltrúa D og S lista að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa verði lögð fram til afgreiðslu í bæjarstjórn og taki gildi frá 1.júní 2026. Fulltrúi M lista sat hjá við afgreiðsluna.
Tóku til máls:
DB
Tillaga bæjarfulltrúa M lista:
Miðflokkurinn leggur til að liðir B og C í grein 2.2 verði felldir brott.
Ekki er talið eðlilegt að forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs fái sérstakt álag fyrir setu á sömu fundum og aðrir bæjarfulltrúar. Slík fundarseta er hluti af þeim verkefnum sem fylgja kjöri til bæjarstjórnar og ætti því ekki að leiða til viðbótargreiðslna umfram þær sem aðrir kjörnir fulltrúar fá fyrir þátttöku í fundunum.
Afgreiðsla á tillögu M lista:
Tillaga bæjarfulltrúa M lista að liðir B og C í grein 2.2 verði felldir brott felld með atkvæðum bæjarfulltrúa D lista og S lista.
Bæjarfulltrúar M lista greiddu atkvæði með, bæjarfulltrúar B lista sátu hjá.
Bókun bæjarfulltrúa M lista:
Það fer ekki á milli mála að kjörnir fulltrúar eiga samkvæmt 32. gr. sveitarstjórnarlaga rétt á hæfilegri þóknun fyrir störf sín, auk þess sem kveðið er á um slíkt í 25. gr. samþykkta um stjórn Suðurnesjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Hvergi í framangreindum ákvæðum er hins vegar kveðið á um að kjörnir fulltrúar sem taka að sér sérstök embætti eftir kosningar, svo sem forseti bæjarstjórnar eða formaður bæjarráðs, eigi sjálfkrafa rétt á viðbótargreiðslum vegna þeirra starfa. Færa má rök fyrir því að slík embætti séu valkvæð og að þeir sem taka þau að sér geri það af fúsum og frjálsum vilja. Á hinn bóginn viðurkennum við að ábyrgð og álag sem fylgir þessum embættum sé almennt meira en hjá öðrum kjörnum fulltrúum.
Af þeim sökum samþykkjum við 1. grein í tillögu að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Suðurnesjabæ, þar sem gert er ráð fyrir að forseti bæjarstjórnar fái 60% álag á fasta þóknun bæjarfulltrúa og formaður bæjarráðs 40% álag á fasta þóknun bæjarfulltrúa.
Við getum hins vegar ekki samþykkt liði B og C í grein 2.2, þar sem þar er gert ráð fyrir sérstakri þóknun fyrir hvern setinn fund hjá forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs. Að okkar mati er sú viðbótarþóknun þegar tekin til greina með því álagi á fasta þóknun sem þessum embættum er ætlað samkvæmt 1. grein. Ekki verður því séð að rök standi til þess að greiða sérstaka viðbótarþóknun fyrir fundarsetu umfram það sem aðrir bæjarfulltrúar fá fyrir þátttöku í sömu fundum.
Afgreiðsla:
Samþykkt með greiddum atkvæðum B lista, D lista og S lista að staðfesta samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa og nefndarlaun.
Bæjarfulltrúar M lista greiddu atkvæði á móti.

13.Aukafundur hluthafa í Bláa Lóninu hf. 2026
2607044
Stjórn Bláa Lónsins hf. boðar til aukafundar hluthafa þann 24.júlí 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita Árna Gísla Árnasyni starfandi bæjarstjóra umboð til að sitja aukafund hluthafa fyrir hönd Suðurnesjabæjar.
Samþykkt samhljóða að veita Árna Gísla Árnasyni starfandi bæjarstjóra umboð til að sitja aukafund hluthafa fyrir hönd Suðurnesjabæjar.
14.Bergvík - Nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi
2506043
Á 76.fundi framkvæmda- og skipulagsráðs þann 30.júní 2026 var tillaga um breytingu á aðalskipulagi og tillaga að deiliskipulagi Bergvíkur samþykkt samhljóða og leggur til við bæjarstjórn að auglýsa og kynna tillöguna í samræmi við 1.mgr. 36.gr. ásamt 40.- og 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Tók til máls:
HA
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa og kynna tillögu um nýtt deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi Bergvíkur í samræmi við 1.mgr. 36.gr. ásamt 40. og 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

15.Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfi - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
2603092
Á 76.fundi framkvæmda- og skipulagsráðs þann 30.júní 2026 samþykkti ráðið að leggja til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulagstillögu vegna íbúasvæðis sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfis og að hún feli skipulagsfulltrúa að senda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun tillöguna til staðfestingar í samræmi við 1.mgr. 42.gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Tók til máls:
HA og MSM
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta breytingu á deiliskipulagi vegna íbúasvæðis sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfis og er sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs falið að senda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun tillöguna til staðfestingar í samræmi við 1.mgr. 42.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

16.Gauksstaðir - framkvæmdaleyfi til uppbyggingu sjóvarna
2606107
Á 76. fundi framkvæmda- og skipulagsráðs þann 30. júní 2026 var fjallað um umsókn Lion ehf. um framkvæmdaleyfi til endurbóta á sjóvörn við strandlengju Gauksstaða.
Framkvæmda- og skipulagsráð fór yfir umsókn Lion ehf. um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarnar við Gaukstaði í Garði ásamt meðfylgjandi gögnum um umfang og útfærslu framkvæmdarinnar, þ.á.m. útboðsteikningar, verklýsingu, umsögn Veðurstofu Íslands og fyrirliggjandi samþykki Vegagerðarinnar. Um er að ræða endurbyggingu og styrkingu núverandi landbrotsvarnar með það að markmiði að bæta vernd gegn sjávarágangi og draga úr áhrifum mögulegra sjávarflóða.
Ráðið samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að veita umsóknaraðila framkvæmdarleyfi fyrir sjóvörn við Gaukstaði í Garði. Framkvæmdin skal unnin í samræmi við framlögð gögn og gildandi lög og reglur.

Samþykkt með atkvæðum B lista, D lista, S lista og Sigrúnu Hörpu Sigurjónsdóttur Heide bæjarfulltrúa M lista að veita framkvæmdaleyfi fyrir sjóvörn við Gauksstaði í Garði.
Bæjarfulltrúi M lista, Daði Bergþórsson, sat hjá.

17.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga - Kynningarbréf
2210005
Kynningarbréf frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla:
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
18.Bæjarráð - 192
2606007F
Tóku til máls:
MSM, SG, ÁGÁ, BJS, HH, AKG, DB
Forseti bæjarstjórnar tók fundarhlé kl. 19:30.
Fundur aftur settur kl. 20:04
Tillaga frá Antoni Kristni Guðmundssyni bæjarfulltrúa B lista að taka mál 18.14 og 18.15 upp með afbrigðum lögð fram til atkvæðagreiðslu.
Afgreiðsla á tillögu:
Bæjarfulltrúar B lista samþykktu, bæjarfulltrúar D og S lista kusu á móti tillögu. Fulltrúar M lista sátu hjá.
Tillaga er því felld.
Tillaga frá bæjarfulltrúum D lista og S lista leggja til að vísa málum 18.14 og 18.15 aftur í Bæjarráð til umræðu.
Afgreiðsla:
Tillagan var samþykkt samhljóða að vísa málunum aftur í bæjarráð. Að öðru leiti er fundargerð lögð fram.

19.Bæjarráð - 193
2606018F
Tóku til máls:
MSM og DB
Afgreiðsla:
Lagt fram.
MSM og DB
Afgreiðsla:
Lagt fram.
20.Framkvæmda- og skipulagsráð - 76
2606008F
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
21.Ferða-, safna- og menningarráð - 41
2605022F
Tóku til máls:
BJS, AKG, ÁGÁ
Afgreiðsla:
Lagt fram.
BJS, AKG, ÁGÁ
Afgreiðsla:
Lagt fram.
22.Hafnarráð - 34
2607004F
Tóku til máls:
MSM og ÁGÁ
Afgreiðsla:
Lagt fram.
MSM og ÁGÁ
Afgreiðsla:
Lagt fram.
23.Ársfundur Þekkingarseturs Suðurnesja
2205089
Fundargerð 14. ársfundar Þekkingarseturs Suðurnesja dags. 21.05.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
24.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026
2601207
a) 999. fundur stjórnar dags. 28.05.2026
b) 1000. fundur stjórnar dags. 09.06.2026
b) 1000. fundur stjórnar dags. 09.06.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
25.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2026
2601084
824. fundur stjórnar dags. 10.06.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
26.Kalka sorpeyðingarstöð - fundargerðir 2026
2601052
a) 578. fundur stjórnar dags. 10.03.2026.
b) 579. fundur stjórnar dags. 14.04.2026.
c) 580. fundur stjórnar dags. 12.05.2026.
b) 579. fundur stjórnar dags. 14.04.2026.
c) 580. fundur stjórnar dags. 12.05.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
27.Brunavarnir Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602205
102. fundur stjórnar dags. 12.06.2026.
Tóku til máls:
AKG og HH
Afgreiðsla:
Lagt fram.
AKG og HH
Afgreiðsla:
Lagt fram.
28.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga-fundargerðir
2210005
98. fundur stjórnar dags. 12.06.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
29.Ársfundur MSS 2026
2605014
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
30.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602063
a) 325. fundur stjórnar dags. 07.07.2026
b) Viðauki við fundargerð 320. fundar dags. 06.10.2025
b) Viðauki við fundargerð 320. fundar dags. 06.10.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 20:59.
HA, DB, MSM, SG, AKG, ERS, HH og BJS
Bókun bæjarfulltrúa B og M lista:
Samkvæmt 49. grein samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar og fundarsköp bæjarstjórnar ræður bæjarstjórn bæjarstjóra til að annast framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og verkefni sveitarfélagsins.
Það vekur því vonbrigði að ráðning bæjarstjóra fyrir kjörtímabilið 2026-2030 hafi farið fram án raunverulegs samráðs við minnihluta bæjarstjórnar og án þess að honum væri tryggð eðlileg aðkoma að jafn mikilvægu ákvörðunarferli. Þegar um er að ræða ráðningu æðsta stjórnanda sveitarfélagsins hefði mátt ætla að áherslur um samstarf, gagnsæi og samstöðu næðu einnig til framkvæmdarinnar.
Bæði D-listinn og S-listinn hafa ítrekað lýst því yfir að þau vilji byggja störf bæjarstjórnar á samstöðu. Á óformlegum fundi oddvita fyrir fyrsta fund nýrrar bæjarstjórnar var sérstaklega rætt um mikilvægi gagnsæis og þess að minnihlutinn fengi virka aðkomu að ráðningarferli nýs bæjarstjóra. Það er því miður að sjá að þau fyrirheit endurspegluðust ekki í framkvæmd. Það sem sagt var í upphafi kjörtímabilsins samræmist ekki þeirri stjórnsýslu sem síðan tók við.
Við gerum okkur fulla grein fyrir því að meirihlutinn hefur umboð til að ráða bæjarstjóra. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að hægt er að nýta það umboð með ólíkum hætti. Þegar meirihluti kýs að útiloka minnihlutann frá raunverulegri þátttöku í jafn mikilvægu ferli er erfitt að tala um samráð og samstöðu sem leiðarljós í stjórnun sveitarfélagsins. Traust byggist á verkum en ekki yfirlýsingum.
Í gegnum allt ráðningarferlið þurfti minnihlutinn ítrekað að óska eftir upplýsingum um framvindu málsins. Það var ekki fyrr en á upplýsingafundi með ráðningarskrifstofunni föstudaginn 26. júní sem okkur var greint frá því að tveir umsækjendur stæðu eftir í ferlinu. Þar kom jafnframt fram að þeir ættu að vinna verkefni þar sem meðal annars var lagt mat á hugmyndir þeirra um hvernig efla mætti samheldni, sátt og þá tilfinningu íbúa að þeir væru hluti af sameinuðu sveitarfélagi. Það er umhugsunarvert að á sama tíma og slíkar kröfur voru gerðar til umsækjenda var ekki lögð sambærileg áhersla á að skapa samstöðu og traust meðal kjörinna fulltrúa bæjarstjórnar.
Í reynd hafði minnihlutinn engar raunhæfar forsendur til að taka upplýsta afstöðu til ráðningarinnar. Okkur var hvorki veitt raunveruleg aðkoma að matsferlinu né tækifæri til að kynna okkur þá umsækjendur sem eftir stóðu með sambærilegum hætti og meirihlutinn. Því var okkur gert að taka afstöðu til ráðningar án þess að búa yfir sömu upplýsingum eða forsendum og þeir bæjarfulltrúar sem leiddu ferlið. Slík vinnubrögð samræmast hvorki þeim sjónarmiðum um gagnsæi og samráð sem lýst var yfir í upphafi kjörtímabilsins né þeirri ábyrgð sem allir kjörnir fulltrúar bera gagnvart íbúum sveitarfélagsins.
Fjórir bæjarfulltrúar minnihlutans höfðu því enga aðkomu að ráðningarferlinu. Ráðning bæjarstjóra er ákvörðun sem hefur áhrif á allt sveitarfélagið og því eðlilegt að allir kjörnir fulltrúar hafi raunhæfa aðkomu að ferlinu, jafnvel þótt meirihlutinn taki endanlega ákvörðun.
Af þeim sökum getum við ekki greitt atkvæði með ráðningu nýs bæjarstjóra. Sú afstaða beinist ekki að umsækjandanum sjálfum heldur því ráðningarferli sem meirihlutinn kaus að viðhafa. Þegar kjörnum fulltrúum eru ekki veittar raunhæfar forsendur til að leggja faglegt mat á ráðningu geta þeir ekki borið ábyrgð á niðurstöðunni. Það teljum við ekki vera góða stjórnsýslu né traustan grunn fyrir samstarf á nýju kjörtímabili.
Þrátt fyrir það viljum við bjóða Alexöndru Jóhannesdóttur hjartanlega velkomna til starfa sem bæjarstjóra Suðurnesjabæjar og óska henni velfarnaðar í starfi. Jafnframt óskum við henni og fjölskyldu hennar farsældar í nýju samfélagi.
Við munum áfram leggja áherslu á fagleg vinnubrögð, opna stjórnsýslu og málefnalegt samstarf í þágu Suðurnesjabæjar og íbúa hans. Við bindum vonir við að samstarf við nýjan bæjarstjóra verði farsælt, byggt á gagnkvæmri virðingu og trausti og verði sveitarfélaginu til heilla.
Afgreiðsla:
Samþykkt með atkvæðum bæjarfulltrúa D og S að ráða Alexöndru Jóhannesdóttur sem nýjan bæjarstjóra Suðurnesjabæjar og staðfesta framlagðan ráðningarsamning. Bæjarfulltrúar B og M lista sátu hjá.
Bókun bæjarfulltrúa D og S:
Alexandra Jóhannesdóttir, nýr bæjarstjóri Suðurnesjabæjar boðin velkomin til starfa með von um gott og farsælt samstarf.