Fara í efni

Bæjarstjórn

91. fundur 06. maí 2026 kl. 17:30 - 18:35 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Einar Jón Pálsson forseti
  • Jónína Magnúsdóttir fyrsti varaforseti
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson annar varaforseti
  • Laufey Erlendsdóttir aðalmaður
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Önundur S. Björnsson aðalmaður
  • Úrsúla María Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði forseti eftir því að leggja fram bókun í lok fundar.

Jafnframt vill forseti óska formanni bæjarráðs Sigursveini Bjarna Jónssyni til hamingju með stórafmælið en hann er 50 ára í dag.

1.Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2025

2603154

Síðari umræða. Kristján Þór Ragnarsson endurskoðandi hjá Deloitte gerði grein fyrir ársreikningi og endurskoðunarskýrslu á óformlegum fundi með bæjarstjórn fyrir fund bæjarstjórnar.
Til máls tóku: MS og EJP.

Bókun bæjarstjóra um ársreikning 2025:
Rekstrartekjur í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta námu 7.969 milljónum króna, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 7.568 milljónir. Rekstrartekjur A hluta bæjarsjóðs voru 7.463 milljónir en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 7.219 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta er jákvæð að fjárhæð 401 milljónir króna en í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð 243 milljónir. Rekstrarafkoma A hluta bæjarsjóðs er jákvæð að fjárhæð 260 milljónir en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð að fjárhæð 230 milljónir króna. Rekstrarafkoma A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 988 milljónir króna, eða 12,4%. Rekstrarafkoma A hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 701 milljón króna, eða 9,4%. Samkvæmt rekstrarniðurstöðum síðustu þriggja ára uppfyllir Suðurnesjabær jafnvægisreglu Sveitarstjórnarlaga.

Heildareignir í samanteknum reikningi A og B hluta eru 11.830 milljónir. Heildar skuldir og skuldbindingar eru kr. 6.281 milljónir. Lífeyrisskuldbinding A og B hluta í árslok 2025 var 1.392 milljónir króna. Langtímaskuldir A og B hluta við lánastofnanir eru 3.623 milljónir og næsta árs afborganir langtímalána verða 367 milljónir. Eigið fé í samanteknum reikningi A og B hluta er 5.549 milljónir.

Skuldaviðmið hjá A hluta var 36,28% en var 44,82% í árslok 2024. Skuldaviðmið skv. 2. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga var var 52,28% hjá A og B hluta, en var 62,23% í árslok 2024. Þetta viðmið má ekki vera hærra en 150% samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga.

Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 958 milljónum í veltufé frá rekstri, sem er um 12% af rekstrartekjum. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A og B hluta nam 412 milljónum. Á árinu 2025 voru ekki tekin ný langtímalán. Handbært fé lækkaði um 152 milljónir frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2025 565 milljónir.

Íbúafjöldi í Suðurnesjabæ í árslok 2025 var 4.232 samkvæmt skráningu hjá Hagstofu en var 3.987 í árslok 2024. Íbúum fjölgaði því um 245 á árinu 2025, eða um 6%.

Rekstur málaflokka í A hluta bæjarsjóðs var í góðum takti við fjárhagsáætlun ársins. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs og hlutdeild í sameiginlega reknum samstarfsverkefnum var mun jákvæðari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þá var rekstrarniðurstaða stofnana í B hluta nokkuð jákvæðari en áætlun gerði ráð fyrir. Helstu frávik í rekstri í samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta miðað við fjárhagsáætlun felast m.a. í minni hækkun lífeyrisskuldbindinga en gert var ráð fyrir, en á árinu 2025 náðist samkomulag við Ríkissjóð um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum vegna Fræðaseturs sem lækkar skuldbindingar sveitarfélagsins. Einnig voru fjármagnsgjöld mun lægri en áætlun gerði ráð fyrir, sem endurspeglar m.a. að engin ný langtímalán voru tekin á árinu 2025. Helstu frávik til aukinna tekna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun koma helst fram í hærri tekjum af útsvari, sem og að aðrar tekjur voru hærri en áætlun gerði ráð fyrir.

Bókun meirihluta vegna ársreiknings 2025:
Meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar fagnar góðri rekstrarafkomu ársins 2025 og þakkar starfsfólki Suðurnesjabæjar fyrir þeirra framlag og eftirfylgni með fjárhagsáætlun sem skilar sér í góðum rekstri í starfsemi sveitarfélagsins.
Tekjur voru umfram áætlun og var rekstrarafkoma A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, jákvæð um 988 milljónir króna, eða 12,4% sem telst gott í rekstri sveitarfélaga. Rekstrarniðurstaða í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta er jákvæð að fjárhæð 401 milljónir.
Engin langtímalán voru tekin á árinu og enn á ný lækkar skuldahlutfall sveitarfélagsins og nú verulega og er komið í 52,28% hjá A og B hluta og 36,28% hjá A hluta. Rétt er að minna á að þetta hlutfall skal vera undir 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Meirihluti bæjarstjórnar er stoltur að skila af sér góðum ársreikningi nú í lok þessa kjörtímabils og ber niðurstaðan vitni um að efnahagurinn er traustur og mun gefa nýrri bæjarstjórn sem tekur við eftir kosningar góð tækifæri til að styðja áfram við uppbyggingu og góða þjónustu við íbúa Suðurnesjabæjar.


Afgreiðsla:
Ársreikningur Suðurnesjabæjar fyrir árið 2025 samþykktur samhljóða og undirritaður.

2.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Á 189. fundi bæjarráðs dags. 29.04.2026 var samþykkt samhljóða að vísa viðauka 1, vegna sumarúrræða fyrir fötluð börn og ungmenni, til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka 1.

3.Sveitarfélagið Vogar - Samningur um fræðsluþjónustu

2604168

Á 189. fundi bæjarráðs dags. 29.04.2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu um framlengingu á þjónustusamningi við Sveitarfélagið Voga um fræðsluþjónustu til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Tillaga um framlengingu á þjónustusamningi við Sveitarfélagið Voga um fræðsluþjónustu samþykkt samhljóða.

4.Samningur um félagsþjónustu, barnavernd og þjónustu við fatlað fólk.

2507061

Á 189. fundi bæjarráðs dags. 29.04.2026 var samþykkt samhljóða að vísa drögum að samningi við Sveitarfélagið Voga um félagsþjónustu, barnavernd og þjónustu við fatlað fólk til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta samning við Sveitarfélagið Voga um félagsþjónustu, barnavernd og þjónustu við fatlað fólk.

5.Bergvík - Nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi

2506043

Á 74. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 22.04.2026 var samþykkt að fyrirliggjandi vinnslutillögur, aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillaga verði kynntar samhliða skv. 36. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umsagnaraðilum, hagsmunaaðilum og almenningi gefinn kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar við tillögurnar. Samþykkt að vísa afgreiðslu framkvæmda-og skipulagsráðs til staðfestingar í sveitarstjórn.
Tók til máls: EJP.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fyrirliggjandi vinnslutillögur, aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulagstillaga verði kynntar samhliða skv. 36. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umsagnaraðilum, hagsmunaaðilum og almenningi gefinn kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar við tillögurnar.

6.Tillaga að Deiliskipulagi við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu við Byggðaveg

2412037

Á 74. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 22.04.2026 var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með breytingum sem tilteknar eru í afgreiðslu ráðsins og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.
Tók til máls: SBJ

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta deiliskipulag við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu við Byggðaveg og senda það til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

7.Deiliskipulag ofan Skagabrautar - Tillaga að deiliskipulagsbreytingu

2105074

Á 74. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 22.04.2026 var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með breytingum sem tilteknar eru í afgreiðslu ráðsins og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta deiliskipulag ofan Skagabrautar með deiliskipulagsbreytingu og senda það til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

8.Deiliskipulag Ofan Garðvangs -Teiga- og Klappahverfi - Endurskoðun seinni hluta hverfis

2109110

Á 74. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 22.04.2026 var samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta skipulagið með breytingum sem tilteknar eru í afgreiðslu ráðsins og senda til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta Deiliskipulag ofan Garðvangs - Teiga og Klapparhverfi með endurskoðun seinni hluta hverfis og senda það til staðfestingar hjá Skipulagsstofnun.

9.Sérstakur húsnæðisstuðningur

1806132

Á 65. fundi fjölskyldu-og velferðarráðs dags. 16.04.2026 var samþykkt uppfærsla tekjuviðmiða skv. 5.gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning í samræmi við leiðbeiningar ráðuneytisins 2026. Einnig var samþykkt hækkun eignaviðmiðs skv. 3.gr. úr 12.500.000 kr í 13.900.000 kr., að hækka hlutfall sérstaks húsnæðisstuðnings til 15 - 17 ára barna skv. 8. gr. úr 60% í allt að 75% af húsnæðiskostnaði og að fyrirkomulag fjárhæðarþaks skv. 4.gr. verði óbreytt. Ráðið vísaði framangreindum tillögum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta samþykkt fjölskyldu-og velferðarráðs.

10.Samkomuhús reglur

2603193

Á 40. fundi ferða-, safna-og menningarráðs dags. 09.04.2026 voru reglur varðandi útleigu Samkomuhúss Suðurnesjabæjar samþykktar samhljóða.
Tók til máls: EJP.

Afgreiðsla:
Afgreiðsla ferða-, safna-og menningarráðs samþykkt með breytingu samhljóða.

11.Norræna félagið á Suðurnesjum - Erindi

2511044

Á 40. fundi ferða-, safna-og menningarráðs dags. 09.04.2026 var samþykkt samhljóða að veita Norræna félaginu á Suðurnesjum styrk kr. 100.000 vegna starfsemi félagsins á árinu 2026. Styrkur greiddur úr liðnum aðrir menningarstyrkir.
Afgreiðsla:
Afgreiðsla ferða-, safna-og menningarráðs samþykkt samhljóða.

12.Umsókn um styrk vegna kóramóts

2603085

Á 40. fundi ferða-, safna-og menningarráðs dags. 09.04.2026 var samþykkt samhljóða að styrkja Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum um kr. 100.000. Styrkur greiddur úr liðnum aðrir menningarstyrkir.
Afgreiðsla:
Afgreiðsla ferða-, safna-og menningarráðs samþykkt samhljóða.

13.Bæjarráð - 188

2604006F

188. fundur dags. 15.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

14.Bæjarráð - 189

2604016F

189. fundur dags. 29.04.2026.
Tóku til máls: SBJ, MSM, EJP og AKG

Afgreiðsla:
Lagt fram.

15.Framkvæmda- og skipulagsráð - 74

2604013F

74. fundur dags. 22.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

16.Hafnarráð - 33

2604021F

33. fundur dags. 28.04.2026.
Tóku til máls: AKG og MS.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

17.Ferða-, safna- og menningarráð - 40

2603010F

40. fundur dags. 09.04.2026.
Tók til máls: OKÁ

Afgreiðsla:
Lagt fram.

18.Fjölskyldu- og velferðarráð - 65

2603024F

65. fundur dags. 16.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

19.Fræðsluráð - 63

2604008F

63. fundur dags. 17.04.2026.
Tók til máls: JM

Afgreiðsla:
Lagt fram.

20.Íþrótta- og tómstundaráð - 36

2604024F

36. fundur dags. 29.04.2026.
Tóku til máls: MSM og MS.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

21.Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga - 23

2604007F

23. fundur dags. 13.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

22.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026

2601207

997. fundur stjórnar dags. 17.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

23.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2026

2601084

822. fundur stjórnar dags. 15.04.,2026.
Tók til máls: EJP.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

24.Reykjanes jarðvangur - fundargerðir 2026

2601167

a) 94. fundur stjórnar dags. 16.03.2026.

b) 95. fundur stjórnar dags. 20.04.2026.
Tóku til máls: OKÁ og MS.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

25.Kalka sorpeyðingarstöð - fundargerðir 2026

2601052

576. fundur stjórnar dags. 13.01.2026

577. fundur stjórnar dags. 10.02.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.

26.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga-fundargerðir

2210005

Fundargerðir stjórnar:

a) 94. fundur dags. 23.01.2026

b) 95. fundur dags. 20.02.2026

c) 96. fundur dags. 03.03.2026

d) 97. fundur dags. 08.04.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Bókun forseta bæjarstjórnar í lok kjörtímabils 2022-2026:
Nú þegar kjörtímabilið er að renna sitt skeið vil ég fyrir hönd okkar bæjarfulltrúa þakka nefndarfólki sem og öllu starfsfólki Suðurnesjabæjar, þá sérstaklega bæjarstjóra og ritara bæjarstjórnar fyrir ánægjulegt samstarf á tímabilinu. Sveitarfélagið okkar hefur á að skipa gífurlega góðu og hæfu starfsfólki sem er mikilvægt við rekstur sveitarfélagsins.

Á kjörtímabilinu varð ein breyting á skipan bæjarstjórnar þegar Elín Frímannsdóttir baðst lausnar á síðasta ári og tók þá Önundur S. Björnsson hennar sæti í bæjarstjórn.

Það hefur ekki farið framhjá íbúum að átök og ólík sýn á verkefni hafa verið í bæjarstjórn og varð breyting á samstarfi flokka á kjörtímabilinu. Fyrstu tvö árin var D- og B-listi í samstarfi en seinni tvö árin mynduðu D- O- og S-listi með sér nýjan meirihluta og hafa starfað saman til loka kjörtímabilsins.

Nú þegar þessu kjörtímabili líkur verður enn á ný mikil endurnýjun í bæjarstjórn þegar fimm bæjarfulltrúar gefa ekki kost á sér og hverfa úr bæjarstjórn. Þetta eru þau Sigursveinn Bjarni Jónsson, Jónína Magnúsdóttir, Laufey Erlendsdóttir, Úrsúla María Guðjónsdóttir auk undirritaðs, sem hér talar. Það er mikil reynsla sem hverfur á braut en nýir einstaklingar bíða spenntir eftir að leggja sitt af mörkun auk þess sem einstaklingar með reynslu gefa kost á sér í bæjarstjórn. Þessum aðilum óska ég farsældar í störfum sínum.

Bæjarfulltrúm öllum og bæjarstjóra vil ég þakka samstarfið á kjörtímabilinu, sumum ykkar hef ég starfað með í eitt kjörtímabil, öðrum mun lengur.

Fyrir mér sjálfum er þetta sérstök tímamót, ég mun nú láta skilið við sveitarstjórnarmálin sem hafa verið stór partur af lífi mínu síðustu 24 árin.

Ég settist í hreppsnefnd Gerðahrepps 2002 og fékk þar góða kennslu frá þeim reynslumiklu aðilum sem með mér sátu, reynslu sem ég tel að hafa mótað störf mín, þar var aðhald og ekki eytt um efni fram þó tækifærin hafi oft verið til staðar. Hreppurinn varð að formlegu sveitarfélagi, Sveitarfélaginu Garði 2004 og síðar að Suðurnesjabæ við sameiningu við Sandgerðisbæ 2018. Það að hafa gengið í gegnum þessar breytingar með samfélagið okkar hefur oft verið krefjandi en mjög gefandi. Á þessum árum hef ég notið þess að hafa kynnst fjölda íbúa, bæjarfulltrúa og sveitarstjórnarfólks um allt land, sem eru forréttindi.

Síðustu 16 ár hef ég verið oddviti D-lista og af þeim tíma forseti bæjarstjórnar í 14 ár. Það að hafa fengið þetta traust frá samstarfsfólki mínu vil ég þakka sérstaklega.

Við sem störfum í sveitarstjórnarmálum vitum að þetta getur verið mjög tímafrekt starf og að mestu leiti unnið eftir hinn venjubundna vinnudag. Símtölin á hinum ýmsu tímum og hugurinn er alltaf við það sem er í gangi hverju sinni í sveitarfélaginu.

Á bak við okkur í þessu starfi er oft á tíðum maki og fjölskylda sem þurfa að gefa mikið af tíma sínum og þola ýmislegt áreiti. Þau þurfa líka hlusta á hinar ýmsu athugasemdir, sem jú oftar en ekki bara sögur frá henni Gróu á Leiti, nú að ekki sé nú talað um blessuð nettröllin sem í seinni tíð eru að yfirgnæfa alla samfélagsmiðla, oft á tíðum með ærumeiðandi skrifum.

Ég bið alla um að hugsa sig tvisvar um, áður en hlaupið er fram á ritvöllinn, munum að við erum öll að gera okkar besta og gagnrýni er vel hægt að setja fram á málefnalegan hátt, ef menn gefa sér tíma og vanda skrif sín, auk þess sem það er oftar en ekki mun árangursríkara.

Ég vil nota þetta tækifæri að þakka sérstaklega Hildi konu minni og börnum okkar fyrir að hafa staðið með mér og gefið mér allan þann tíma sem ég þurfti, til að leggja mitt af mörkum fyrir samfélagið okkar, það hefur verið mér mjög gefandi.

Kæru félagar og íbúar, ég kveð sveitarstjórn sáttur, það er gott og áhugasamt fólk sem gefur kost á sér að taka við stjórn bæjarins, þau taka við góðu búi og framtíð Suðurnesjabæjar er björt og tækifærin mörg.
Við sem hér búum vitum að það er hvergi betra að eiga heima, sameinumst nú öll kæru íbúar, um að svo megi áfram vera.

Ég óska bæjarfulltrúum, starfsfólki og íbúum Suðurnesjabæjar gleðilegs sumars og farsældar um leið og ég þakka fyrir mig.

Einar Jón Pálsson
forseti bæjarstjórnar og oddviti D-lista

Einnig tóku til máls: MS og LE.

Fundi slitið - kl. 18:35.

Getum við bætt efni síðunnar?