Bæjarstjórn
Dagskrá
1.Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2025
2603154
Fyrri umræða.
2.Göngu-og hjólreiðastígar í Suðurnesjabæ
2603171
Á 187. fundi bæjarráðs dags. 25.03.2026 var minnisblað um göngu-og hjólreiðastíga, annars vegar frá Garði að golfskála í Leiru og hins vegar frá Sandgerði að stíg milli Reykjanesbæjar og flugstöðvar við hringtorg við Rósaselstorg. Lögð var fram tillaga um að unnin verði útboðsgögn með kostnaðaráætlun og framkvæmdir í báða göngu-og hjólreiðastígana verði boðnar út. Útboð framkvæmda við báða stígana fari fram á sama tíma og verði þeir boðnir út hvor í sínu lagi. Jafnframt verði unnið að samningi við Vegagerðina um þátttöku í kostnaði við framkvæmdir, sem verði lagður fram í bæjarráði til afgreiðslu. Tillagan féll á jöfnu þar sem fulltrúi S lista samþykkti tillöguna og fulltrúi B llista greiddi atkvæði á móti.
Tóku til máls: EJP, MSM, AKG og SBJ.
Bókun meirihluta D, O og S lista:
Í fjárfestingaáætlun Suðurnesjabæjar fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir fjárheimildum til framkvæmda við göngu-og hjólreiðastíga að fjárhæð 160 mkr.
Hönnun göngu-og hjólreiðastíga annars vegar frá Sandgerði að stíg milli Reykjanesbæjar og Flugstöðvar við Rósaselstorg og hins vegar frá Garði að golfskálanum í Leiru liggur fyrir og hefur hönnunargögnum verið skilað til Vegagerðarinnar til rýni út frá umferðaröryggi og hönnunarstöðlum. Einnig liggja fyrir kostnaðaráætlanir hönnuða sem hefur verið skilað til Vegagerðarinnar.
Gert er ráð fyrir að Vegagerðin fjármagni 50% kostnaðar vegna framkvæmda og Suðurnesjabær 50%. Gengið verður frá samningi milli Vegagerðarinnar og Suðurnesjabæjar um framkvæmdina og fjármögnun hennar og verður það gert þegar framkvæmdir hafa verið boðnar út og tilboð liggja fyrir í verkefnið. Þá mun liggja fyrir hver framkvæmdakostnaður muni verða og samningur við Vegagerðina mun byggjast á þeim forsendum.
Bæjarfulltrúi Magnús Sigfús Magnússon tekur undir eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa B lista sem lögð var fram á 187. fundi bæjarráðs 25. mars 2026: "Bókun B lista Framsóknar:
Fulltrúi B lista Framsóknar tekur fram að hann er ekki andvígur uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga í Suðurnesjabæ enda er um mikilvæga innviðauppbyggingu að ræða með tilliti til umferðaröryggis, lýðheilsu og bættra samgangna innan sveitarfélagsins.
Hins vegar gerir fulltrúi B lista alvarlegar athugasemdir við þá málsmeðferð og fjármögnunarleið sem hér er lögð til. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er gert ráð fyrir að ráðist verði í útboð framkvæmda áður en samningur við Vegagerðina um kostnaðarþátttöku liggur fyrir. Jafnframt liggur fyrir að framlög Vegagerðarinnar eru áætluð á löngu tímabili og endurskoðuð árlega, sem skapar verulega óvissu um tímasetningu og endanlega fjármögnun verkefnisins.
Með þessari framsetningu er sveitarfélaginu ætlað að taka á sig verulega fjárhagslega áhættu á fyrstu stigum verkefnisins án þess að fullnægjandi trygging liggi fyrir um mótframlag ríkisins. Fulltrúi B lista Framsóknar telur að ábyrg fjármálastjórn krefjist þess að slíkur samningur og raunhæf fjármögnun liggi fyrir áður en farið er í útboð og skuldbindandi ákvarðanir teknar.
Á þeim forsendum getur fulltrúi B lista Framsóknar ekki stutt fyrirliggjandi tillögu og greiðir því atkvæði gegn henni."
Tillaga frá meirihluta fulltrúa D, O og S lista:
Lagt er til að bæjarstjórn veiti heimild til þess að bjóða út framkvæmdir við báða stígana. Niðurstöður útboðs verði lagðar fram í bæjarráði til afgreiðslu þegar útboði verður lokið. Jafnframt verði lögð fram tillaga um endanlega fjármögnun framkvæmda, þegar forsendur til þess liggja fyrir. Til fjármögnunar verði m.a. gengið á handbært fé allt að 100 mkr. og Suðurnesjabær fjármagni framlag Vegagerðarinnar með skammtíma fjármögnun sem verði endurgreidd með greiðslum frá Vegagerðinni.
Afgreiðsla:
Tillagan samþykkt með atkvæðum 7 bæjarfulltrúa en bæjarfulltrúi Magnús Sigfús Magnússon og annar bæjarfulltrúi B lista Anton Kristinn Guðmundsson greiddu atkvæði á móti.

3.Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040
2411063
Á 73. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 18.03.2026 var fjallað um bréf frá svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja þar sem fram kemur að nefndin hafi samþykkt svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040. Fyrir lágu skipulagsgreinargerð, umhverfismatsskýrsla og vatnsverndaruppdráttur, í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar því til staðfestingar í Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 í samræmi við 1.mgr., 25.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Íbúðasvæði sunnan Sandgerðisvegar, Skerjahverfi - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
2603092
Á 73. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 18.03.2026 var samþykkt tillaga að endurskoðun deiliskipulags Skerjahverfis og lagt til að bæjarstjórn samþykki að auglýsa og kynna tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að auglýsa og kynna tillögu um endurskoðun deiliskipulags Skerjahverfis skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026
2603089
Drög að húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2026.

6.Umferðaröryggisáætlun Suðurnesjabæjar 2026-2031
2409078
Á 71. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 21.01.2026 var fjallað um tillögu um umferðaröryggisáætlun Suðurnesjabæjar 2026-2031. Ráðið þakkaði framlagða áætlun og leggur til að hún verði lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn þegar gerðar hafi verið lagfæringar í samræmi við ábendingar á fundinum. Ráðið leggur jafnframt til að umhverfisfulltrúa bæjarins verði falið að leggja fram forgangsröðun framkvæmda og kostnaðarmat þeirra í samræmi við fjárhagsáætlun. Umferðaröryggisáætlun liggur fyrir eftir framangreindar lagfæringar.
Tók til máls: EJP.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta umferðaröryggisáætlun Suðurnesjabæjar 2026-2031.

7.Bæjarráð - 186
2603005F
Tók til máls: MSM.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að taka mál 7.12 fyrir í lok fundar þar sem um trúnaðarmál er að ræða. Fundargerð er að öðru leiti lögð fram.

8.Bæjarráð - 187
2603020F
Tóku til máls: AKG, LE, EJP, ÚMG, MSM og MS.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
9.Framkvæmda- og skipulagsráð - 73
2603015F
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
10.Fræðsluráð - 62
2603014F
Tók til máls: MS.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
11.Íþrótta- og tómstundaráð - 35
2603009F
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
12.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2026
2601207
a) 994. fundur stjórnar dags. 03.03.2026.
b) 995. fundur stjórnar dags. 10.03.2026.
c) 996. fundur stjórnar dags. 20.03.2026.
b) 995. fundur stjórnar dags. 10.03.2026.
c) 996. fundur stjórnar dags. 20.03.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
13.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2026
2601084
821. fundur stjórnar dags. 11.03.2026.
Tók til máls: EJP.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
14.Brunavarnir Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602205
a) 98. fundur stjórnar dags. 19.02.2026.
b) 99. fundur stjórnar dags. 19.03.2026.

Tóku til máls: AKG, EJP.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
15.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602063
323. fundur dags. 25.03.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
16.Þekkingarsetur Suðurnesja - fundargerðir 2026
2603090
59. fundur stjórnar dags. 19.02.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
17.Svæðisskipulag Suðurnesja - Fundargerðir 2026
2602207
57. fundur svæðisskipulagsnefndar dags. 12.03.2026
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Bæjarfulltrúar samþykktu samhljóða að loka fundi til að fjalla um trúnaðarmál nr.7.12 frá 186.fundi bæjarráðs í lok bæjarstjórnarfundar.
Undir þessum lið óskaði Magnús Sigfús Magnússon eftir samantekt um fjölda starfslokasamninga sem hafa verið gerðir sl. 2 ár ásamt heildarkostnaði við þá.
Að þessu loknu var fundurinn opnaður aftur.

Fundi slitið - kl. 19:20.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi Suðurnesjabæjar 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn.