Fara í efni

Bæjarstjórn

81. fundur 07. maí 2025 kl. 17:30 - 19:26 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Jónína Magnúsdóttir forseti
  • Einar Jón Pálsson aðalmaður
  • Magnús Sigfús Magnússon aðalmaður
  • Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson annar varaforseti
  • Úrsúla María Guðjónsdóttir aðalmaður
  • Laufey Erlendsdóttir fyrsti varaforseti
  • Hlynur Þór Valsson varamaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
  • Önundur Björnsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár óskaði Anton Kristinn Guðmundsson bæjarfulltrúi B-lista að bæta við dagskrármáli, Gauksstaðir, deiliskipulag, á fund bæjarstjórnar. Tillagan var felld með 6 atkvæðum D, O og S lista á móti 3 atkvæðum fulltrúa B-lista og bæjarfulltrúa Magnúsar Sigfúsar Magnússonar.

Til máls tóku: AKG, MSM og JM.

1.Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2024

2503125

Síðari umræða. Kristján Ragnarsson endurskoðandi hjá Deloitte gerði grein fyrir ársreikningi og endurskoðunarskýrslu á óformlegum fundi með bæjarstjórn fyrir fund bæjarstjórnar.
Tóku til máls: MS og JM.

Bókun bæjarstjóra vegna ársreiknings 2024:
Rekstrartekjur í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta námu 7.177 milljónum króna, en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 6.778 milljónir. Rekstrartekjur A hluta bæjarsjóðs voru 6.744 milljónir en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að rekstrartekjur væru 6.425 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða í samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta er jákvæð að fjárhæð 376 milljónir króna en í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð 67 milljónir. Rekstrarafkoma A hluta bæjarsjóðs er jákvæð að fjárhæð 323 milljónir en samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir að niðurstaðan væri jákvæð að fjárhæð 69 milljónir króna. Rekstrarafkoma A og B hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 911 milljónir króna, eða 12,69%. Rekstrarafkoma A hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði, eða framlegð er jákvæð að fjárhæð 701 milljón króna, eða 10,39%. Samkvæmt rekstrarniðurstöðum síðustu þriggja ára uppfyllir Suðurnesjabær jafnvægisreglu Sveitarstjórnarlaga.

Heildareignir í samanteknum reikningi A og B hluta eru 11.454 milljónir. Heildar skuldir og skuldbindingar eru kr. 6.561 milljónir. Lífeyrisskuldbinding A og B hluta í árslok 2024 var 1.466 milljónir króna. Langtímaskuldir A og B hluta við lánastofnanir eru 3.862 milljónir og næsta árs afborganir langtímalána verða 351 milljónir. Eigið fé í samanteknum reikningi A og B hluta er 4.893 milljónir.

Skuldaviðmið skv. reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga hjá A og B hluta var 62,32%, en var 65,38% í árslok 2023 en í 64.gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að það megi ekki vera hærra en 150%. Hjá A hluta var hlutfallið 44,91%. Skuldahlutfall samkvæmt eldra viðmiði var 91,41% hjá A og B hluta en var 95,88% í árslok 2023. Skuldahlutfall A hluta var 77,8% en var 78,35% í árslok 2023.

Rekstur í samanteknum reikningsskilum A og B hluta skilaði 879 milljónum í veltufé frá rekstri, sem er um 12% af rekstrartekjum. Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A og B hluta nam 975 milljónum. Á árinu 2024 voru tekin ný langtímalán að fjárhæð 425 milljónir króna. Handbært fé hækkaði um 170 milljónir frá fyrra ári og var handbært fé í árslok 2024 718 milljónir.

Íbúafjöldi í Suðurnesjabæ í árslok 2024 var 4.091 samkvæmt skráningu hjá Hagstofu en var 3.897 í árslok 2023. Íbúum fjölgaði því um 194 á árinu 2024, eða um 5%.

Rekstur málaflokka í A hluta bæjarsjóðs var nánast samkvæmt fjárhagsáætlun ársins. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs og hlutdeild í sameiginlega reknum samstarfsverkefnum var mun jákvæðari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Þá var rekstrarniðurstaða stofnana í B hluta nokkuð jákvæðari en áætlun gerði ráð fyrir. Helstu frávik í rekstri í samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta miðað við fjárhagsáætlun felast í hækkun lífeyrisskuldbindinga og að fjármagnsgjöld voru mun lægri en áætlun gerði ráð fyrir, sem endurspeglar lækkun verðbólgu á árinu. Helstu frávik til aukinna tekna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun koma helst fram í hærri framlögum frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og aðrar tekjur voru einnig hærri en áætlun gerði ráð fyrir.


Bókun meirihluta vegna ársreiknings 2024:
Meirihluti bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar fagnar góðri rekstrarafkomu ársins 2024 og þakkar starfsfólki Suðurnesjabæjar fyrir þeirra framlag og eftirfylgni með fjárhagsáætlun sem skilar sér í góðum rekstri í starfsemi sveitarfélagsins.
Tekjur voru umfram áætlun sem skýrist helst af minni vaxtagjöldum og auknum framlögum til málaflokks fatlaðra. Skuldahlutfall er verulega undir 150% hámarki um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga, eða 62,32% í A og B hluta og 44,91% í A hluta.
Reksturinn skilar af sér um 12% af rekstrartekjum sem telst ásættanlegt og gott í rekstri sveitarfélaga.
Fjárfest var fyrir 975 milljónir á árinu og lántaka var 425 milljónir.
Helstu og stærstu fjárfestingarnar á árinu voru í uppbyggingu nýrra lóða í sveitarfélaginu, lokaframkvæmdir við leikskólann Grænuborg og lóð hans, endurnýjun gólfs í Íþróttamiðstöð Garði, sjóvarnir og aðrar minni framkvæmdir. Handbært fé hækkaði um 170 milljónir en gert var ráð fyrir rúmum 38 milljóna króna afgangi í A og B hluta fjárhagsáætlunar.

Ársreikningur 2024 ber með sér að efnahagur sveitarfélagsins er traustur sem gefur tækifæri til að styðja áfram við uppbyggingu og þjónustu við íbúa Suðurnesjabæjar.


Afgreiðsla:
Ársreikningur Suðurnesjabæjar fyrir árið 2024 samþykktur samhljóða og undirritaður.

2.Sveitarfélagið Vogar - sameiningarmál

2309116

Lögð fram greinargerð og tillaga um málið, þar sem m.a. kemur fram að samkvæmt þeirri tímaáætlun sem lagt var upp með við upphaf óformlegra viðræðna sveitarfélaganna Voga, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar er of skammur tími til þess að vinna málið áfram.
Tóku til máls: JM og MSM.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að ekki verði farið í formlegar sameiningarviðræður samkvæmt sveitarstjórnarlögum að þessu sinni.

3.Barna- ungmennaþing

2503114

Á 164.fundi bæjarráðs var fjallað um minnisblað frá íþrótta-og tómstundafulltrúa um barna-og ungmennaþing í Suðurnesjabæ, sem ungmennaráð hafði lagt til að verði haldið. Bæjarráð samþykkti samhljóða að framkvæmd barna-og ungmennaþings verði samkvæmt minnisblaðinu og kostnaðaráætlun samþykkt. Barna-og ungmennaþing í Suðurnesjabæ verður haldið þann 13.maí 2025.
Afgreiðsla:
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

4.HB64 - Viljayfirlýsing IðunnH2

2504028

Á 163. og 164. fundum bæjarráðs var fjallað um viljayfirlýsingu Suðurnesjabæjar og Kadeco við IðunniH2 um mögulega lóð fyrir starfsemi fyrirtækisins innan skipulagsmarka Suðurnesjabæjar á þróunarsvæðinu HB64, K64 Hringrásargarður. Á 164.fundi bæjarráðs var lögð fram undirrituð viljayfirlýsing um málið.
Afgreiðsla:
Afgreiðsla bæjarráðs samþykkt samhljóða.

5.Bæjarráð - 163

2504008F

163.fundur dags. 09.04.2025.
Tók til máls: MSM

Afgreiðsla:
Lagt fram.

6.Bæjarráð - 164

2504017F

164.fundur dags. 30.04.2025.
Tóku til máls: MSM, JM, AKG, ÚMG, HÞV, LE, OKÁ, EJP, MS og ÖB.

Fundi lokað vegna umræðu um dagskrármál 6.3.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

7.Íþrótta- og tómstundaráð - 29

2504019F

29.fundur dags. 22.04.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

8.Framkvæmda- og skipulagsráð - 63

2504014F

63.fundur dags. 16.04.2025.
Tóku til máls: MSM og MS.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

9.Hafnarráð - 28

2504003F

28.fundur dags. 03.04.2025.
Tóku til máls: AKG, MS, MSM, JM og ÖB.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

10.Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga - 20

2504024F

20.fundur dags. 28.04.2025.
Tóku til máls: MSM, JM, EJP og ÚMG.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

11.Ungmennaráð - 20

2504028F

20. fundur dags. 02.05.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

12.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2025

2502117

a) 973. fundur stjórnar dags. 14.03.2025.

b) 974. fundur stjórnar dags. 19.03.2025

c) 975. fundur stjórnar dags. 20.03.2025

d) 976. fundur stjórnar dags. 04.04.2025

e) 977. fundur stjórnar dags. 11.04.2025.

f) 978. fundur stjórnar dags. 30.04.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

13.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2025

2501046

811. fundur stjórnar dags. 09.04.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.

14.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2025

2502011

317. fundur stjórnar dags. 08.04.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.

15.Brunavarnir Suðurnesja - fundargerðir 2025

2502134

92. fundur stjórnar dags. 16.04.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 19:26.

Getum við bætt efni síðunnar?