Fara í efni

Bæjarráð

201. fundur 11. nóvember 2026 kl. 14:30 - 18:25 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir varamaður
    (Aðalmaður: Svavar Grétarsson - boðaði forföll)
  • Magnús Sigfús Magnússon varaformaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Haukur Andreasson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í fjarveru formanns stýrði Magnús Sigfús Magnússon varaformaður fundinum.

1.Fjárfestingaáætlun 2026

2601158

Drög að endurskoðun fjárfestingaáætlunar 2026. Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna að uppfærslu á fjárfestingaráætlun fyrir næsta fund þar sem áherslan sé einungis á brýnustu verkefnin.

2.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Kynning vegna vinnu við fjárfestingaráætlun fyrir 2027-2031. Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og Einar Friðrik Brynjarsson deildarstjóri umhverfismála sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Kynning á drögum á gjaldskrá ásamt styrkjum og afsláttum fyrir 2027. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Kynning á drögum á gjaldskrá ásamt styrkjum og afsláttum fyrir 2027.
Lögð fram drög að gjaldskrám Suðurnesjabæjar fyrir árið 2027 ásamt drögum að fjárhæðum styrkja og afslátta.
Í drögunum er gert ráð fyrir að gjaldskrár hækki að hámarki um 2,5% milli ára. Fjárhæðir styrkja og afslátta, svo sem frístundastyrkja og tekjuviðmiða vegna afsláttar af fasteignaskatti, hækki með sama hætti, þannig að breytingar á gjaldskrám og stuðningi við íbúa haldist í hendur.

Afgreiðsla:
Lagt fram, mál í vinnslu.

4.Vinnuskóli 2026

2603061

Minnisblað varðandi breytingar á Vinnuskólanum sem fela í sér að hann verði skilgreindur fyrir 14-17 ára ungmenni og sumarstörf fyrir 18 ára og eldri.
Afgreiðsla:
Framlagðar breytingar samþykktar samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

5.Stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja

2401019

Staða á stækkun verknámsbyggingu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja kynnt.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

6.Umsókn um lóð

2611026

Umsókn um 4.000-6.000 fm lóð fyrir allt að 250 herbergja hótel ásamt bílastæðahúsi og annarri afleiddri starfsemi.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa viðkomandi umsókn til umfjöllunar í framkvæmda- og skipulagsráði.

7.Ósk um samstarf vegna uppbyggingar ferðaþjónustu

2611042

Óskað er eftir úthlutun á lóðum til uppbyggingar á gistihúsum fyrir ferðaþjónustu nálægt þeirri lóð sem hefur verið úthlutað vegna þarabaða.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa viðkomandi umsókn til umfjöllunar í framkvæmda- og skipulagsráði.

8.Umsókn um lóð

2611028

Umsókn um 6.000.-10.000 fm lóð við Rósaselstorg til uppbyggingar á grænni þjónustumiðstöð fyrir rútur, ferðabíla, sendibíla og fólksbíla.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa viðkomandi umsókn til umfjöllunar í framkvæmda- og skipulagsráði.

9.Beiðni um stuðning við tækjakaup.

2611043

GSG óskar eftir því að Suðurnesjabær styrki klúbbinn um kaup á valtara.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa beiðninni til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

10.Umsókn um fjárstuðning við barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar í Suðurnesjabæ

2611044

Beiðni frá sóknarpresti um fjárstuðning að upphæð kr. 2.000.000 til barna og æskulýðsstarfs kirkjunnar í Suðurnesjabær. Um væri að ræða kr. 1.000.000 á hvora sókn sveitafélagsins.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa beiðninni til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

11.Nýr rammasamningur um höfundaréttargjöld vegna tónflutnings sveitarfélaga

2611039

Lagður fram til kynningar nýr rammasamningur STEF og SFH við sveitarfélög innan Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna opinbers tónflutnings á vegum sveitarfélaga.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

12.Verum viðbúin - upplýsingar til sveitarfélaga

2611016

Upplýsingar frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra um bæklinginn Verum viðbúin ásamt skjali til frekari upplýsinga.
Afgreiðsla:
Bæjarráð hvetur íbúa til að kynna sér vel bæklinginn Verum viðbúin frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra. Að öðru leyti lagt fram.

13.Endurhæfum Reykjalund - Ákall um stuðning við uppbyggingu Reykjalundar

2609159

Ákall um stuðning við uppbyggingu Reykjalundar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa beiðninni til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

14.Beiðni um styrk

2610121

Óskað er eftir að Suðurnesjabær leggi lóð sín á vogaskálarnar við að veita konum og börnum öruggt skjól með því að veita Kvennaathvarfinu rekstrarstyrk fyrir árið 2027.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa beiðninni til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

15.Íþróttamannvirki framtíðarinnar - Miðjan

2611068

Bæjarstjórn tók ákvörðun á 97. fundi sínum um að sett verði af stað sjálfstætt verkefni sem miði að því að leggja mat á uppbyggingu Miðjunnar sem svæðis fyrir íþróttamannvirki framtíðarinnar í Suðurnesjabæ. Var bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir, leita tilboða vegna greiningarvinnu og leggja stöðu málsins fyrir bæjarráð.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um mögulega ráðgjafa vegna greiningar á uppbyggingu Miðjunnar sem framtíðarsvæðis fyrir íþróttamannvirki sveitarfélagsins.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna málið áfram. Í því felst að afla verðtilboða frá tilgreindum ráðgjöfum í þarfagreiningu, forgangsröðun og frumkostnaðarmat. Verkbeiðnin skal tryggja samræmi við fyrirhugaða hugmyndasamkeppni um Miðjuna og heildarendurskoðun aðalskipulags svo komist verði hjá tvíverknaði. Bæjarstjóri leggi niðurstöður verðfyrirspurnar og tillögu að vali ráðgjafa fyrir bæjarráð til staðfestingar þegar frekari gögn liggja fyrir.

16.Stýrihópur um aukna þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi

2611067

Í samræmi við bókun bæjarstjórnar á 97. fundi hennar 4. nóvember sl. skal bæjarráð skipa stýrihóp sem hefur það markmið að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í sveitarfélaginu.
Afgreiðsla:
Eftirfarandi aðilar skipaðir í stýrihópinn:
Svavar Grétarsson, formaður (S lista)
Anton Kristinn Guðmundsson (B lista)
Margrét Edda Arnardóttir (D lista)
Daði Bergþórsson (M lista)
Sindri Lars Ómarsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Alexandra Jóhannesdóttir, bæjarstjóri verður starfsmaður hópsins.

Bókun fulltrúa D lista:
Mikilvægt er að raddir úr báðum byggðarkjörnum Suðurnesjabæjar komi fram við vinnslu þessa máls.

17.Heilbrigðiseftirlit - Breytingar á fyrirkomulagi eftirlits

2510639

Kynning á stöðu mála frá Reykjanesbæ varðandi eftirstandandi verkefni heilbrigðiseftirlits frá 1.janúar nk.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

18.Fráveita Suðurnesjabæjar - starfsleyfismál

2606065

Óskað er eftir 4,0 m.kr. viðauka við fjárhagsáætlun 2026 vegna sérfræðivinnu við áhrifamat vatnshlota, uppfærslu tæknilegra forsenda og lokafrágang viðbótargagna sem Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur kallað eftir vegna starfsleyfisumsóknar fráveitu Suðurnesjabæjar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

19.HB64 - K64 Hringrásariðngarður

2402073

Skipun fulltrúa í tímabundinn faghóp fyrir K64 Hringrásariðngarð.
Afgreiðsla:
Eftirfarandi fulltrúar eru skipaðir í faghóp fyrir K64 Hringrásariðngarð:
Magnús Sigfús Magnússon, Daði Bergþórsson, Bergný Jóna Sævarsdóttir, María Kjartansdóttir, Alexandra Jóhannesdóttir, Jón Ben Einarsson og Einar Friðrik Brynjarsson.

Fundi slitið - kl. 18:25.

Getum við bætt efni síðunnar?