Fara í efni

Bæjarráð

200. fundur 28. október 2026 kl. 14:30 - 15:44 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Svavar Grétarsson formaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson varamaður
    (Aðalmaður: Magnús Sigfús Magnússon - boðaði forföll)
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Haukur Andreasson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Drög að grunnáætlun til fyrstu umræðu. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið og gerði grein fyrir drögum að grunnáætlun fjárhagsáætlunar til fyrri umræðu.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2027-2031 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Uppbygging baðlóns á Garðskaga

2602131

Erindi frá Jóhanni Friðriki Haraldssyni, f.h. óstofnaðs einkahlutafélags þar sem óskað er eftir framhaldi viðræðna um uppbyggingu baðlóns við Garðskaga. Í erindinu er óskað eftir viðræðum um mögulegar lóðir við sjó undir baðlón og samstarf um rannsóknarborun eftir heitu vatni eða jarðsjó, ásamt kostnaðarskiptingu vegna hennar.
Afgreiðsla:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að skoða málið áfram með viðkomandi aðilum og afla frekari gagna varðandi umfang verkefnis. Málið verður lagt fyrir bæjarráð að nýju þegar gögn liggja fyrir.

3.Söfnun fyrir brjóstaskimunartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

2610130

Söfnun SAR fyrir brjóstaskimunartæki til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) standa, ásamt einstaklingum og félagasamtökum, fyrir söfnun til kaupa á brjóstaskimunartæki fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Markmiðið er að auka aðgengi kvenna á Suðurnesjum að brjóstaskimun í heimabyggð og efla forvarnir og lýðheilsu á svæðinu.

Afgreiðsla:
Bæjarráð fagnar framtaki SAR og allra sem að söfnuninni standa. Snemmgreining brjóstakrabbameins skiptir sköpum og mikilvægt er að konur á Suðurnesjum hafi gott aðgengi að brjóstaskimun í heimabyggð. Í ljósi mikilvægis verkefnisins fyrir samfélagið allt samþykkir bæjarráð að Suðurnesjabær styrki söfnunina um 1.000.000 kr. Bæjarráð hvetur jafnframt fyrirtæki, félagasamtök og íbúa Suðurnesjabæjar til að leggja verkefninu lið. Kostnaði verði mætt af liðnum aðrir styrkir.

4.Viðbragð á sjó frá Garði.

2610110

Bréf frá Björgunarsveitinni Ægi varðandi sjósetningarmál í Garði.
Í bréfinu upplýsir sveitin að viðbragð hennar á sjó frá Garði falli niður þegar kranabíll sveitarinnar verður seldur og bendir á að sjósetningaraðstaða sé ekki á hennar ábyrgð.

Afgreiðsla:
Bæjarráð þakkar Björgunarsveitinni Ægi erindið og það starf sem sveitin hefur unnið við að halda úti fyrrnefndu viðbragði. Bæjarstjóra var falið að eiga samtal við viðkomandi aðila vegna málsins. Erindið var að öðru leyti lagt fram til kynningar.

5.Reglur um birting fylgigagna með fundargerðum og ritun fundargerða.

2606047

Drög að reglum um birtingu fylgigagna með fundargerðum og ritun fundargerða ráða og nefnda.
Fyrir fundinum lágu drög að reglum um birtingu fylgigagna með fundargerðum og ritun fundargerða ráða og nefnda Suðurnesjabæjar. Í reglunum er skilgreint hvaða fylgigögn skuli birt með fundargerðum á vef sveitarfélagsins, hvaða gögn séu undanþegin birtingu og hvernig standa skuli að ritun fundargerða.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð drög að reglum og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

6.Björgunarsveitin Ægir

2504048

Drög að samstarfssamningi 2026 kynnt.
Fyrir fundinum lágu drög að samstarfs- og styrktarsamningi um hlutverk Ægis í almannavörnum í Suðurnesjabæ og gildir fyrir árið 2026. Styrkir eru kr. 1.650.000 í almennan stuðning, kr. 650.000 til barna- og unglingastarfs ásamt styrk til greiðslu fasteignaskatta.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Björgunarsveitina Ægi fyrir árið 2026 og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

7.Björgunarsveitin Sigurvon

2208036

Drög að samstarfssamningi 2026 kynnt.
Fyrir fundinum lágu drög að samstarfs- og styrktarsamningi um hlutverk Sigurvonar í almannavörnum í Suðurnesjabæ og gildir fyrir árið 2026. Styrkir eru kr. 1.650.000 í almennan stuðning, kr. 650.000 til barna- og unglingastarfs ásamt styrk til greiðslu fasteignaskatta.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samstarfssamning við Björgunarsveitina Sigurvon fyrir árið 2026 og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

8.Lög og reglugerðir til umsagnar

2601188

Umsagnarmál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 88.mál - tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá. Umsagnarfrestur er til og með 27.október 2026. Sendi bæjarstjóri umsögnina inn fyrir tilgreindan frest.
Afgreiðsla:
Var umsögnin lögð fram til kynningar og bæjarstjóra falið að fylgja henni eftir við Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

9.Lög og reglugerðir til umsagnar

2601188

Umsagnarmál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 202.mál - Loftslagslög. Umsagnarfrestur er til og með 29.október 2026.
Fyrir fundinum lágu drög að umsögn vegna málsins.

Afgreiðsla:
Var bæjarstjóra falið að senda inn umsögnina sem lögð var fyrir bæjarráð fyrir lok umsagnarfrests.

Fundi slitið - kl. 15:44.

Getum við bætt efni síðunnar?