Fara í efni

Bæjarráð

199. fundur 21. október 2026 kl. 14:30 - 16:36 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Svavar Grétarsson formaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson varamaður
    (Aðalmaður: Magnús Sigfús Magnússon - boðaði forföll)
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Haukur Andreasson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun - lántaka

2207012

Minnisblað um fyrirhugaða lántöku 2026 ásamt yfirlit yfir stöðu fjárfestinga og framkvæmda sem búið er að bóka 19.október. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fyrir fundinum lá minnisblað sérfræðings fjármála, dags. 14. október 2026, varðandi fyrirhugaða lántöku sveitarfélagsins á árinu 2026.

Í fjárhagsáætlun ársins er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð 250 m.kr. til fjármögnunar framkvæmda. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir stöðu fjárfestinga og framkvæmda, áætluðu sjóðstreymi sveitarfélagsins og greiðslubyrði lána. Jafnframt er farið yfir þá lánamöguleika sem standa sveitarfélaginu til boða hjá Lánasjóði sveitarfélaga, með tilliti til vaxtakjara, lánstíma og framtíðargreiðslubyrði.

Fram kemur að mikilvægt sé að tryggja nægjanlegt handbært fé til að standa undir fyrirhuguðum framkvæmdum og fjárhagslegum skuldbindingum sveitarfélagsins út árið og um áramót. Óskað er eftir heimild til að leita eftir lántöku að fjárhæð 250 m.kr. hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

Afgreiðsla:
Mál í vinnslu, bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.

2.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Viðauki nr. 14 - Frístundamiðstöðin Sólborg. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagður fram viðauki nr. 14 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna sameiningar frístundaþjónustu sveitarfélagsins í Sólborg. Viðaukinn tekur til aukins launa- og rekstrarkostnaðar vegna breytts skipulags starfseminnar, aukinnar mönnunar og nauðsynlegs búnaðar og aðfanga.
Heildarkostnaður nemur 6.446.000 kr. og er honum mætt með tilfærslu fjárheimilda milli málaflokka. Viðaukinn hefur því engin áhrif á rekstrarniðurstöðu sveitarfélagsins.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa viðauka nr.14 við fjárhagsáætlun ársins 2026 til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.HLH úttekt - beiðni um viðauka

2610106

Minnisblað varðandi ósk um viðauka vegna kostnaðar við rekstrarúttekt sveitarfélagsins.
Lagt fram minnisblað bæjarstjóra vegna beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna rekstrarúttektar HLH ráðgjafar á starfsemi sveitarfélagsins.

Markmið úttektarinnar er að greina rekstur sveitarfélagsins, meta stöðu fyrri hagræðingartillagna og leggja fram tillögur að úrbótum og aukinni hagkvæmni í rekstri. Niðurstöðurnar eiga meðal annars að nýtast við gerð fjárhagsáætlunar næstu ára.

Óskað er eftir viðauka að fjárhæð allt að 6.361.200 kr. með virðisaukaskatti, að meðtöldum ófyrirséðum kostnaði.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

4.Íþróttamiðstöðin í Sandgerði - Endurnýjun sundlaugarlýsingar

2610093

Minnisblað um ósk um viðauka vegna endurnýjun lýsingar í sundlaug.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu í sundlauginni í Sandgerði. Fram kemur að meirihluti ljósabúnaðar í lauginni sé óvirkur og brýnt sé að ráðast í endurnýjun hans til að tryggja öryggi sundlaugargesta og viðunandi aðstæður til sundkennslu.

Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er 5 m.kr., að meðtalinni vinnu og uppfærslu á stýribúnaði. Lagt er til að kostnaðurinn verði færður sem fjárfesting með 10 ára afskriftartíma.


Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárfestingahluta fjárhagsáætlunar í samræmi við minnisblaðið.

5.Fjárhagsáætlun 2027-2031

2606035

Minnisblað varðandi álagningarhlutfall útvars fyrir árið 2027.
Fyrir fundinum lá minnisblað varðandi álagningarhlutfall útsvars í Suðurnesjabæ fyrir árið 2027. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir lagaheimildum sveitarfélaga til álagningar útsvars og lagt til að álagningarhlutfall verði óbreytt frá fyrra ári, eða 14,97%, sem er hámarksálagning samkvæmt lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

Tillaga:
Lagt er til að bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykki og vísi til staðfestingar í bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2027 verði 14,97%, sem er hámarksálagning samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2027 verði 14,97% og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarráð fagnar því jafnframt að ríki, sveitarfélög og aðilar vinnumarkaðarins hafi sameinast um það markmið að tryggja verðstöðugleika og tekur undir ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar um. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um að gjaldskrár ríkisstofnana hækki ekki umfram 2,5% á árinu 2027 er mikilvægt skref og undirstrikar að ábyrgðin er sameiginleg. Hófsamar gjaldskrárhækkanir hins opinbera eru einn af hornsteinum þess að markmiðið náist.

Gjaldskrár A-hluta Suðurnesjabæjar fyrir árið 2027 taka mið af þessu markmiði. Bæjarráð telur að með samstilltu átaki allra aðila skapist góðar forsendur til að ná niður verðbólgu og vöxtum, heimilum og fyrirtækjum til hagsbóta.

6.Reglur um styrki eða auglýsingar

2606161

Drög að reglum Suðurnesjabæjar um styrki og auglýsingar kynnt.
Lögð fram drög að reglum Suðurnesjabæjar um styrki, styrktarlínur og auglýsingar. Markmið reglnanna er að tryggja samræmda, gagnsæja og skilvirka málsmeðferð við úthlutun styrkja og auglýsingakaup sveitarfélagsins.

Í reglunum er meðal annars kveðið á um tegundir styrkja, skilyrði styrkveitinga, fjárhæðir, afgreiðsluheimildir, umsóknarferli og eftirfylgni með nýtingu styrkja.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar reglur Suðurnesjabæjar um styrki, styrktarlínur og auglýsingar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

7.Hluthafafundur í Bláa lóninu hf

2610047

Fundarboð á aukafund hluthafa í Bláa Lóninu föstudaginn 30.október 2026.
Lagt fram fundarboð á aukafund hluthafa Bláa Lónsins hf. sem haldinn verður föstudaginn 30. október 2026 kl. 10:00 í höfuðstöðvum félagsins í Garðabæ.

Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir að Árni Gísli Árnason, sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu, sitji fundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar og fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins.

8.Sveitarfélag ársins 2026

2603177

Kynning á niðurstöðum könnunar um Sveitarfélag ársins 2026 sem framkvæmd var sl. vor af Gallup.
Lagðar fram til kynningar niðurstöður könnunarinnar Sveitarfélag ársins 2026 ásamt minnisblaði um helstu niðurstöður varðandi Suðurnesjabæ.
Suðurnesjabær hlaut heildareinkunnina 4,17 af 5 mögulegum og hafnaði í 9. sæti. Niðurstaðan er yfir landsmeðaltali en felur í sér lækkun frá fyrra ári. Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir helstu styrkleikum sveitarfélagsins og þeim þáttum þar sem tækifæri eru til umbóta, meðal annars varðandi vinnuaðstæður og starfsánægju.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna í samráði við viðkomandi sviðsstjóra að umbótaáætlun með sérstakri áherslu á velferðarsvið og vinnuaðstæður í ráðhúsum. Jafnframt verði niðurstöður kynntar starfsfólki hverrar einingar með viðeigandi hætti. Að öðru leyti lagt fram.

9.Lög og reglugerðir til umsagnar

2601188

Umsagnarmál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 59.mál - frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Umsagnarfrestur er til og með 27. október 2026.
Lagt fram erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, er varðar fjölda fulltrúa í sveitarstjórn. Umsagnarfrestur er til og með 27. október 2026.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

10.Lög og reglugerðir til umsagnar

2601188

Umsagnarmál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd sendir til umsagnar 156.mál - frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðarstofnun. Umsagnarfrestur er til og með 22.október 2026.
Lagt fram erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999, er varðar lagfæringar á lögunum. Umsagnarfrestur er til og með 22. október 2026.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

11.Umsögn í samráðsgátt - viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

2610098

Umsagnarmál í samráðsgátt stjórnvalda - viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga, mál nr. S-19/2026. Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.
Lagt fram erindi innviðaráðuneytisins vegna tillagna að viðmiðum um sjálfbæra þróun sveitarfélaga sem birtar hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Bæjarráð telur mikilvægt að við mótun mælikvarðanna verði tekið mið af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga, meðal annars hvað varðar íbúaþróun, fjárhagslegt áfallaþol, innviðauppbyggingu, landfræðilegar aðstæður og fjármögnun lögbundinnar þjónustu.

Jafnframt verði tryggt að mælikvarðarnir byggist á samræmdum og áreiðanlegum gögnum og nýtist sveitarfélögum sem raunhæft stjórntæki við stefnumótun og ákvarðanatöku.

Afgreiðsla:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna umsögn um framlagðar tillögur með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum.

12.Beiðni um styrk til Norræna félagsins á Suðurnesjum

2610072

Lögð fram beiðni um styrk til Norræna félagsins á Suðurnesjum fyrir starfssemi félagsins á árinu 2027.
Afgreiðsla:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til gerðar fjárhagsáætlunar.

13.Stígamót beiðni um styrk

2111027

Lögð fram beiðni Stígamóta um fjárstuðning fyrir árið 2027.
Afgreiðsla:
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til gerðar fjárhagsáætlunar.

Fundi slitið - kl. 16:36.

Getum við bætt efni síðunnar?