Fara í efni

Bæjarráð

198. fundur 30. september 2026 kl. 14:30 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Svavar Grétarsson formaður
  • Haraldur Helgason varaformaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Sjúkraflutningar á Suðurnesjum

2609228

Kynning á skýrslu um sjúkraflutninga á Suðurnesjum. Eyþór Rúnar Þórarinsson slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð Suðurnesjabæjar lýsir þungum áhyggjum af vanfjármögnun ríkisins á sjúkraflutningum á Suðurnesjum.
Sjúkraflutningar eru á ábyrgð ríkisins og eiga greiðslur Sjúkratrygginga Íslands að standa undir öllum kostnaði við þjónustuna. Samkvæmt kostnaðargreiningu Deloitte var halli á rekstrinum 14 m.kr. árið 2025. Áætlað er að hann verði um 48 m.kr. árið 2026, þar sem greiðslur lækka milli ára þrátt fyrir verðlagshækkanir.

Kröfur til þjónustunnar hafa jafnframt aukist án þess að fjármögnun hafi fylgt. Íbúum fjölgar hratt og núverandi fjármögnun býður ekki upp á að þjónustan vaxi í takt við það.

Bæjarráð skorar á heilbrigðisráðherra og Sjúkratryggingar Íslands að tryggja að greiðslur standi að fullu undir raunkostnaði við þjónustuna.

Afgreiðsla:
Lagt fram.

2.Dagdvöl aldraðra - rekstur og upplýsingar

2505109

Á 67. fundi Fjölskyldu- og velferðarráðs þann 17.september 2026 var tillögu velferðarsviðs um að sótt verði um 2-3 sérhæfð dagdvalarrými til Heilbrigðisráðuneytisins vísað til afgreiðslu hjá bæjarráði. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða tillaga velferðarsviðs um að sótt verði um dagdvalarrými til Heilbrigðisráðuneytins samkvæmt efni minnisblaðsins. Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að vinna málið áfram.

3.Farsældarráð barna - samstarfssamningur

2405077

Á 67. fundi Fjölskyldu- og velferðarráðs þann 17.september 2026 var samþykkt að vísa tillögu um endurnýjun samstarfsyfirlýsingar og erindisbréfum farsældarráðs til bæjarráðs til frekari afgreiðslu. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð Suðurnesjabæjar tekur undir ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. kom fram að í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi eru framlög til sveitarfélaga vegna innleiðingar farsældarlaga að fjárhæð 1,1 milljarður króna afnumin án þess að greining á fjárþörf sveitarfélaga á grundvelli árangursmats og kostnaðar hafi farið fram, eins og áskilið er í lögum.


Afgreiðsla:
Mál í vinnslu.

4.Samstarf um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk

2503130

Minnisblað um samstarf við Brynju leigufélag um uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Mál í vinnslu og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

5.Frístundamiðstöð

2501075

Minnisblað vegna viðauka vegna reksturs frístundamiðstöðvar í Sólborg. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

6.Öldungaráð Suðurnesjabæjar kjörtímabilið 2026-2030

2607011

Minnisblað varðandi tilnefningar í öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að óska eftir uppfærðri tilnefningu frá Félagi eldri borgara á Suðurnesjum þannig að tveir aðalmenn, ásamt varamönnum þeirra, séu tilnefndir fyrir hönd Suðurnesjabæjar og eigi lögheimili í sveitarfélaginu. Að öðru leyti lagt fram.

7.Kjaramál - erindi frá VR, LÍV og Fagfélögunum.

2609154

Erindi frá VR, LÍV og Fagfélögum til Suðurnesjabæjar ásamt spurningalistum.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að svara erindinu.

8.Birting fylgigagna með fundargerðum sveitarfélagsins

2606047

Minnisblað varðandi kostnað við birtingu fylgigagna með fundargerðum ráða og nefnda.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að ganga að tilboði varðandi útfærslu á birtingu fylgigagna. Bæjarstjóra falið að vinna að gerð viðeigandi reglna og leggja fyrir bæjarráð.

9.Heilbrigðiseftirlit - Breytingar á fyrirkomulagi eftirlits

2510639

Erindi frá Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja varðandi verkefni heilbrigðiseftirlitsins sem verða eftir á sveitarstjórnarstiginu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að hefja samtal með bæjarstjórum sveitarfélaganna á Suðurnesjum með það að markmiði að skapa samstarfsgrundvöll vegna þeirra lögbundu verkefna sem sveitarfélögunum er gert að sinna og snúa að heilbrigðiseftirliti. Þá er mikilvægt að fyrir liggi sameiginleg áætlun sem fyrst vegna þeirra fjárhagslegu skuldbindinga sem munu liggja eftir þegar breytt verklag hefst um áramótin.

10.Erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands - þjóðarsátt um verðstöðugleika.

2609162

Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess um þjóðarsátt um verðstöðugleika.
Afgreiðsla:
Bæjarstjóra falið að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

11.Lög og reglugerðir til umsagnar

2601188

Umsagnarmál frá nefndar- og greiningarsviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5.mál, Sveitarstjórnarlög. Umsagnarfrestur er til og með 1. október 2026.
Afgreiðsla:
Bæjarstjóra falið að senda inn umsögn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

12.Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

2609194

Fundarboð á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 7.október 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri sitji fundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

13.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2026.

2609227

Boð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem fram fer 7.október 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri sitji fundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

14.Fundaáætlun 2026 - 2027

2608158

Minnisblað varðandi fundartíma bæjarstjórnar.
Afgreiðsla:
Bæjarstjóri boðar til aukafundar í bæjarstjórn þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 17:30.

15.Umsagnarbeiðni - Veitingaleyfi - Brim Bistro ehf. - Norðurljósavegur 2

2606144

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um leyfi til reksturs veitingaleyfis í flokki II - A veitingahús fyrir Brim Bistro, Norðurljósavegi 2 í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagna.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?