Fara í efni

Bæjarráð

197. fundur 09. september 2026 kl. 15:30 - 17:50 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Svavar Grétarsson formaður
  • Haraldur Helgason varaformaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri
  • Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár vill bæjarráð senda Knattspyrnufélaginu Víði innilegar hamingjuóskir vegna deildarmeistaratitilsins í 3. deild karla.

1.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar

2604146

Viðaukar nr. 12 og 13 við fjárhagsáætlun 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn við þennan dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Viðauki nr. 12 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn. Viðauki nr. 13 samþykktur með atkvæðum fulltrúa S og D lista og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn. Fulltrúi M lista greiddi atkvæði á móti við afgreiðslu á viðauka nr. 13.

2.Fjárfestingaáætlun 2026

2601158

Staða fjárfestingaáætlunar 2026 lögð fram til kynnningar. Jón B. Einarsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Reiknilíkan leik- og grunnskóla samningur

2608126

Verksamningur vegna verkefnis í samstarfi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar varðandi samræmt reiknilíkan grunn- og leikskóla fyrir sveitarfélög.
Afgreiðsla:
Verksamningur samþykktur samhljóða.

4.Breytingar á skipulagi og fjármögnun fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum

2609055

Bréf frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Þekkingarsetri Suðurnesja til bæjarráðs Suðurnesjabæjar vegna breytinga á skipulagi og fjármögnun fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar gerir alvarlegar athugasemdir við ákvörðun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins um að flytja umsjón fjarprófaþjónustu á Suðurnesjum frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) til Þekkingarseturs Suðurnesja samhliða því að árlegt framlag til þjónustunnar er lækkað úr 5,9 m.kr. í 3,6 m.kr., eða um 39%.
Bæjarráð bendir á að MSS hefur sinnt þessari þjónustu af fagmennsku í 28 ár og að Suðurnesin eru með um 1.186 fjarpróf á ári. Svæðið er því einn stærsti prófastaður landsins og eru 13% allra fjarprófa sem haldin eru hjá viðurkenndum prófastöðum víða um land hér á Suðurnesjum. Nýtt fyrirkomulag ráðuneytisins, þar sem föstu fjármagni er úthlutað jafnt milli prófastaða óháð raunverulegu umfangi og fjölda prófa, tekur hvorki mið af þjónustuþörf né kostnaði við reksturinn. Breytingin bitnar því hlutfallslega verst á því svæði sem mesta þjónustu veitir.
Bæjarráð leggur sérstaka áherslu á að málið snertir beinlínis byggðafestu á Suðurnesjum. Aðgengi að háskólanámi í heimabyggð, óháð búsetu, er ein af grunnforsendum þess að íbúar geti stundað nám án þess að flytja búferlum, og styður þannig við menntunarstig, atvinnuþróun og fólksfjölgun á svæðinu. Suðurnes eru eitt fjölmennasta vaxtarsvæði landsins utan höfuðborgarsvæðisins, með um 30 þúsund íbúa, en menntunarstig er undir landsmeðaltali. Að skerða fjármögnun þjónustu sem um 80% notenda hennar nýta til náms við Háskólann á Akureyri, á sama tíma og svæðið vex hraðast, gengur þvert á markmið stjórnvalda um jöfn tækifæri til náms óháð búsetu og grefur undan viðleitni sveitarfélaga á svæðinu til að efla búsetuskilyrði.
Bæjarráð átelur jafnframt að ákvörðunin hafi verið tekin án samráðs við MSS, Þekkingarsetur Suðurnesja eða sveitarfélögin á svæðinu og að tilkynning um breytinguna hafi borist eftir að ákvörðun var þegar tekin.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar skorar á menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið að endurskoða ákvörðunina, tryggja að fjármagn til fjarprófaþjónustu taki áfram mið af raunverulegu umfangi og fjölda prófa á hverju svæði, og að samráð sé átt við hlutaðeigandi aðila áður en nýtt fyrirkomulag er fest í sessi.

Afgreiðsla:
Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart ráðuneytinu og þingmönnum kjördæmisins.

5.Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2026

2607065

Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið.

Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greiningu áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum.



Málið var tekið fyrir á 194. fundi bæjarráðs þar sem bæjarstjóra var falið að svara spurningalistanum og leggja fyrir bæjarráð.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að skila inn framlögðum svörum fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

6.Sameiginleg tillaga bæjarstjórnar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, lífsgæðsetur og ráðhús Suðurnesjabæjar

2609063

Bæjarstjórn leggur fram sameiginlega tillögu er snýr að framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Suðurnesjabæ, uppbyggingu lífsgæðaseturs fyrir eldri borgara og staðsetningu á ráðhúsi Suðurnesjabæjar.
Eftirfarandi tillögur eru lagðar fram sameiginlega af bæjarstjórn Suðurnesjabæjar, þ.e. fulltrúum S lista, D lista, B lista og M lista:

Tillaga um lagningu gervigrasvallar í Suðurnesjabæ og uppbyggingu íþróttamannvirkja framtíðarinnar.
Lagt er til að:
1. Lagður verði gervigrasvöllur á núverandi aðalvelli Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði.
2. Leitað verði leiða til bæta æfingaaðstöðu í Garði í samstarfi við Knattspyrnufélagið Víði, m.a. að horfa til þess að færa og stækka sparkvöll fyrir börn og ungmenni í Garði.
3. Efla samgöngur á milli kjarnanna.
4. Undirbúningur að hugmyndasamkeppni verði hafinn vegna íþróttamannvirkja framtíðarinnar á Miðjunni með það að leiðarljósi að hugmyndir liggi fyrir haustið 2027. Tilgangur hugmyndasamkeppninnar er að móta raunhæfa framtíðarsýn á svæðið á milli Sandgerðis og Garðs þar sem í aðalskipulagi er gert ráð fyrir starfsemi fyrir íþróttir og útivist, ÍÞ 4 og ÍÞ 6. Í tillögum um gervigrasvöll hefur sama svæði verið nefnt Miðjan. Mikilvægt er að svæðið á milli kjarnanna, Sandgerðis og Garðs, fái sem fyrst heildstæða sýn og þróist sem fyrst í þá átt að verða sameiginlegt svæði fyrir íbúa Suðurnesjabæjar, og þá fyrst með áherslu á íþróttir, heilsurækt og útivist.
5. Hefja samtal við íþróttafélögin um hvernig Suðurnesjabær getur stutt við starfsemina til að efla faglegt starf þeirra.

Ráðhús Suðurnesjabæjar
Lagt er til:
1. Að Ráðhús Suðurnesjabæjar verði staðsett við Sunnubraut 4 í Garði þar sem stjórnsýslusvið og framkvæmda- og skipulagssvið eru í dag.
2. Að starfshópur verði skipaður sem heldur utan um hugmyndasamkeppni um verkfefnið og hefur það verkefni að leggja fram tillögur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara Suðurnesjabæjar í Vörðunni, Miðnestorgi 3 þar sem ráðhús Suðurnesjabæjar er í dag. Bæjarstjóra er falið að leggja fram tillögu af fyrirkomulagi starfshóps og tímalínu.


Afgreiðsla:
Bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkir samhljóða framlagaðar tillögur bæjarstjórnar og leggur til að þær verði samþykktar af bæjarstjórn. Tillögurnar eru lagðar fram af bæjarstjórn Suðurnesjabæjar með það að markmiði að vinna markvisst að uppbyggingu í Suðurnesjabæ. Undanfarnar vikur hafa bæjarfulltrúar leitast við að ná samkomulagi um verkefnin sem nú hefur tekist. Bæjarfulltrúar eru meðvitaðir um að skiptar skoðanir eru um tillögurnar en að sama skapi er mikilvægt að taka ákvörðun um þessa mikilvægu málaflokka sem snúa einna helst að velferð barna og ungmenna í Suðurnesjabæ og eldri borgurum. Bæjarstjórn telur að með þessari afgreiðslu sé verið að taka stefnumarkandi ákvarðanir sem gerir okkur öllum kleift að vinna að uppbyggingu í Suðurnesjabæ og velferð íbúa.


Bókun fulltrúa M lista:
Miðflokkurinn hefur frá upphafi verið þeirrar skoðunar að uppbygging á bættri æfingaaðstöðu yfir vetrartímann ætti að fara fram í Garði, enda er töluverður munur á aðstöðu til knattspyrnuiðkunar milli byggðarkjarna sveitarfélagsins.
Á sama tíma telur Miðflokkurinn mikilvægt að niðurstaða fáist loks í málið eftir allt of langa umræðu og ákvörðunarfælni undanfarinna ára. Á meðan beðið er eftir niðurstöðu eru það fyrst og fremst börnin og ungmennin sem bíða eftir bættri aðstöðu og, eins og staðan er í dag, sækir stór hluti þeirra æfingar og keppni til nágrannasveitarfélagsins.
Þrátt fyrir að fyrirliggjandi tillaga sé því ekki sú leið sem Miðflokkurinn hefði helst kosið er flokkurinn tilbúinn að styðja tillöguna og leggja sitt af mörkum til þess að niðurstaða fáist og uppbygging geti hafist.
Miðflokkurinn leggur þó ríka áherslu á að þessi ákvörðun verði ekki til þess að auka enn frekar þann mun sem þegar er á íþróttaaðstöðu milli byggðarkjarnanna. Því skiptir miklu máli að sá hluti tillögunnar sem snýr að bættri æfingaaðstöðu í Garði verði unninn samhliða uppbyggingu gervigrasvallarins í Sandgerði en verði ekki verkefni sem bíður um óákveðinn tíma. Fyrirliggjandi tillaga gerir einmitt ráð fyrir að leitað verði leiða til að bæta æfingaaðstöðu í Garði í samstarfi við Víði.
Jafnframt telur Miðflokkurinn mikilvægt að tryggja börnum og ungmennum jafnan möguleika til íþróttaiðkunar óháð því í hvorum byggðarkjarnanum þau búa. Efling samgangna milli kjarnanna, sem kveðið er á um í tillögunni, þarf því að fela í sér raunverulegar lausnir sem gera börnum kleift að sækja æfingar og íþróttastarf milli Garðs og Sandgerðis.
Miðflokkurinn leggur einnig mikla áherslu á að uppbygging Miðjunnar verði ekki aðeins framtíðarsýn á blaði. Vinna við hugmyndasamkeppni og skipulag svæðisins þarf að hefjast af krafti og í kjölfarið þarf að liggja fyrir skýr og tímasett áætlun um næstu skref. Markmiðið á að vera að þar rísi til framtíðar sameiginlegt íþrótta-, heilsuræktar- og útivistarsvæði fyrir íbúa alls Suðurnesjabæjar. Tillagan gerir ráð fyrir að hugmyndir um svæðið liggi fyrir haustið 2027.
Miðflokkurinn samþykkir því fyrirliggjandi tillögu með það að markmiði að binda enda á þá löngu óvissu sem ríkt hefur um málið og hefja loks raunverulega uppbyggingu. Jafnframt mun Miðflokkurinn leggja áherslu á að tillagan verði framkvæmd sem ein heild - uppbygging í Sandgerði, bætt aðstaða í Garði, tryggar samgöngur barna milli byggðarkjarna og markviss uppbygging Miðjunnar til framtíðar.

Fundi slitið - kl. 17:50.

Getum við bætt efni síðunnar?