Bæjarráð
Dagskrá
1.Þjóðaratkvæðagreiðsla ESB 29. ágúst 2026
2606121
Fyrirhuguð er þjóðaratkvæðagreiðsla 29.ágúst 2026. Lagt er til við bæjarráð að ákveða um kjörstaði. Tillaga yfirkjörstjórnar er að kjörstaðir verði í leikskólanum Grænuborg í Sandgerði og í Gerðaskóla í Garði.
2.Öldungaráð Suðurnesjabæjar kjörtímabilið 2026-2030.
2607011
Kjósa þarf formann öldungaráðs en ráðið kýs varaformann.
Afgreiðsla:
Samþykkt með tveimur atkvæðum S og D lista að Jórunn Alda Guðmundsdóttir verði formaður Öldungaráðs. Fulltrúi M lista sat hjá.

3.Suðurnesjabær 10 ára
2608068
Á 42. fundi Ferða-, safna- og menningarráðs var vísað til bæjarráðs að tryggja fjármögnun fyrir verkefni tengd undirbúningi fyrir 10 ára afmæli Suðurnesjabæjar við gerð fjárhagsáætlunar.
Afgreiðsla:
Bæjarráð fagnar tillögu Ferða-, safna- og menningarráðs og felur bæjarstjóra og starfsmanni ráðsins að vinna málið áfram með ráðinu og vísa til vinnslu fjárhagsáætlunar.

4.Tillaga frá fulltrúum B lista um bæjarskilti í Suðurnesjabæ.
2608080
B listi leggur til að farið verði í hönnun og undirbúning að uppsetningu þriggja bæjarskilta í Suðurnesjabæ.
1. Stórt bæjarskilti við sveitarfélagsmörk
Skiltið verði staðsett við sveitarfélagsmörk Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar, við Courtyard by
Marriott hótelið.
Á skiltinu standi "Suðurnesjabær" ásamt merki sveitarfélagsins. Skiltið verði upplýst og hannað
þannig að það myndi áberandi og vandaða aðkomu inn í sveitarfélagið.
2. Minna bæjarskilti við innkomu í Sandgerði
Skiltið verði staðsett við aðkomu að byggðarkjarnanum Sandgerði.
Skiltið verði í sama stíl og úr sama efni og stóra skiltið við sveitarfélagsmörkin, en minna að stærð.
Á skiltinu standi "Suðurnesjabær - Sandgerði" og verði það upplýst.
3. Minna bæjarskilti við innkomu í Garð
Skiltið verði staðsett við aðkomu að byggðarkjarnanum Garði.

Á skiltinu standi "Suðurnesjabær - Garður" og verði það upplýst.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en málið hefur verið í vinnslu frá árinu 2020 þegar fyrstu hugmyndir um hönnun innkomumerkinga voru lagðar fram. Bæjarstjóra er falið að taka saman fyrirliggjandi gögn og endurvekja fyrri málsmeðferð.

5.Byggingarleyfi
2110008
Trúnaðarmál: Staða málsins kynnt að ósk fulltrúa B og M lista.
Afgreiðsla:
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.Tillaga frá fulltrúum B lista um áramótabrennu í Suðurnesjabæ
2608081
Fulltrúar B lista leggja til að framkvæmda- og skipulagsráði verði falið að finna ákjósanlegan stað
fyrir árlega áramótabrennu í Suðurnesjabæ og vinna að nauðsynlegum undirbúningi hvað varðar
staðsetningu,
Jafnframt verði málinu vísað til ferða-, safna- og menningarráðs til umfjöllunar og undirbúnings á
framkvæmd viðburðarins, þar á meðal varðandi mögulegt samstarf við félagasamtök og aðra aðila í
sveitarfélaginu.
Stefnt verði að því að undirbúningi verði hraðað með það að markmiði að áramótabrennan geti farið
fram um áramótin 2026-2027.
Við undirbúning verði meðal annars lagt mat á staðsetningu, öryggismál, nauðsynleg leyfi, kostnað og
mögulegt samstarf við félagasamtök, viðbragðsaðila og aðra viðeigandi aðila.

Bæjarráð tekur undir tillögu B lista en vísar jafnframt í þá vinnu sem þegar er í gangi hjá Ferða-, safna- og menningarráði og felur Ferða-, safna- og menningarráði að vinna málið rösklega áfram.

7.Tillaga frá fulltrúum B lista um að gerð verði úttekt á rekstri sveitarfélagsins með hagræðingu og sparnað að markmiði
2608082
Fulltrúar B lista leggja til að fenginn verði óháður utanaðkomandi aðili til að framkvæma heildstæða
úttekt á rekstri sveitarfélagsins með það að markmiði að greina möguleika til hagræðingar, draga úr
óþarfa kostnaði og tryggja sem besta nýtingu fjármuna sveitarfélagsins og auka fjárfestingargetu.
Við úttektina verði meðal annars horft til rekstrarkostnaðar einstakra málaflokka, stjórnsýslu,
innkaupa, aðkeyptrar þjónustu, samninga, húsnæðis, reksturs fasteigna og annarra útgjaldaliða þar
sem möguleikar kunna að vera til hagræðingar.
Sérstaklega verði horft til þess hvort hægt sé að einfalda verklag, bæta nýtingu fjármuna og ná fram
varanlegum rekstrarsparnaði.
Niðurstöður úttektarinnar, ásamt tillögum að raunhæfum hagræðingaraðgerðum og mati á
fjárhagslegum áhrifum þeirra, verði lagðar fyrir bæjarráð og nýttar við þá fjárhagsáætlunarvinnu sem
fram undan er

Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að gerð verði skoðun á rekstri sveitarfélagsins. Árið 2020 var gerð ítarleg úttekt á rekstri sveitarfélagins sem mætti byggja á og mögulega uppfæra. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja tillögur fyrir bæjarráð.

8.Fyrirspurn um möguleg kaup á fasteignum og bát
2607034
Kynning á uppfærðu minnisblaði varðandi fasteignir við Vallargötu og Hlíðargötu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að sveitarfélagið kaupi ekki umræddar eignir.

9.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Viðauki nr.9 - Aukin stuðningsþörf barna í Gerðaskóla. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr.9 uppá 14,5 millj.kr.

10.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Viðauki nr.10 - kaup á húsbúnaði fyrir Gefnarborg. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr.10 uppá 1,5 millj.kr.

11.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Viðauki nr.11 - kostnaður vegna Almyrkva. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka nr.11 uppá 5 millj.kr.

12.Rekstraryfirlit 2026
2604147
Rekstaryfirlit janúar - júní 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
13.Fjárfestingaáætlun 2026
2601158
Staða fjárfestingaáætlunar 2026 kynnt.
Afgreiðsla:
Frestað fram á næsta fund.
Frestað fram á næsta fund.
14.Fjárhagsáætlun 2027-2031
2606035
Fjárhagsrammi fyrir áætlunarvinnu kynntur. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
15.Endurskoðun á samningi Sunnugarðs ehf og Suðurnesjabæjar
2608055
Endurskoðun á samningi við Sunnugarð ehf. og ósk um leiðréttingu á greiðslum. Heiða Ingólfsdóttir sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs sat fundinn undir þessu dagskrármáli.
Tekið fundarhlé að ósk fulltrúa M lista kl.18:32
Fundur settur aftur kl.18:45
Afgreiðsla:
Samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og D lista að leiðrétta greiðslur skv. tillögu í minnisblaði uppá 20 millj.kr. með fyrirvara um niðurstöðu lokauppgjörs og vísað til gerð viðauka. Fulltrúi M lista sat hjá. Einnig er bæjarstjóra og sviðsstjóra falið að ljúka vinnu við nýjan samning.

16.Beiðni um styrk eða auglýsingu f. Ljósland
2608108
Ósk um styrk eða auglýsingu fyrir Ljósland.
Afgreiðsla:
Beiðni hafnað.
Beiðni hafnað.
17.Reglur um styrki eða auglýsingar
2606161
Drög að reglum um styrki, styrktarlínur og auglýsingar kynntar.
Afgreiðsla:
Mál í vinnslu.
Mál í vinnslu.
18.Sparkvöllur við Sandgerðisskóla
2608109
Minnisblað varðandi fjárheimild vegna bilunar í hitakerfi sparkvallar við Sandgerðisskóla.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að verða við beiðni um aukið fjármagn til framkvæmda upp á 6 millj.kr. vegna hitakerfis fyrir sparkvöll og vísað til gerð viðauka.

19.Ferða-, safna- og menningarráð - 42
2608013F
42. fundur haldinn 20.ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
20.Fjölskyldu- og velferðarráð - 66
2608014F
66. fundur haldinn 20. ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
21.Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - fundargerðir 2026
2601084
825. fundur haldinn 12.ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
22.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602063
326.fundur haldinn 18.ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 19:42.
Tillaga yfirkjörstjórnar Suðurnesjabæjar samþykkt samhljóða um að kjörstaðir vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB sem fer fram þann 29. ágúst 2026 verði í leikskólanum Grænuborg í Sandgerði og í Gerðaskóla í Garði.