Fara í efni

Bæjarráð

194. fundur 22. júlí 2026 kl. 15:30 - 17:10 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Haraldur Helgason varaformaður
  • Bergný Jóna Sævarsdóttir varamaður
  • Daði Bergþórsson aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason starfandi bæjarstjóri
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður eftir því að fá að bæta við máli nr.10 á dagskrá fundarins með afbrigðum:

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæta máli nr. 10 á dagskrá fundarins.

Alexandra Jóhannesdóttir verðandi bæjarstjóri sat fundinn.

1.Sólborgir

2607004

Á 93. fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí 2026 var samþykkt samhljóða að vísa beiðni vegna milligöngu um afnot af athafnarsvæði Rockville svæðinu og vilyrði fyrir breyttu deiliskipulagi til umfjöllunar í bæjarráði.
Bókun bæjarráðs:
Bæjarráð hefur fjallað um erindi Sólborgar ehf. og telur sig ekki reiðubúið til að verða við því, af eftirfarandi ástæðum.
Umrætt svæði hefur skilgreint hlutverk samkvæmt gildandi Aðalskipulagi, þar sem gert er ráð fyrir landfrekri starfsemi með óverulega mengunarhættu vegna nálægðar við vatnsverndarsvæði, með áherslu á þrifalega og umhverfisvæna starfsemi. Íbúðir, hótel og gististaðir eru ekki heimilar á svæðinu. Erindið felur því í sér breytingu á Aðalskipulagi, ekki deiliskipulagi, sem kallar á formlegt ferli og kostnað fyrir sveitarfélagið sem ekki hefur verið gert ráð fyrir.
Jafnframt er verkefnið hluti af opinberu útboði sem umsækjandi er þátttakandi í. Af þeim sökum telur sveitarfélagið sér ekki fært að hafa milligöngu í málinu eða veita einstökum þátttakanda jákvætt vilyrði umfram aðra, enda þarf jafnræðis og gagnsæis að gæta gagnvart öllum þeim sem koma að útboðsferlinu.
Sveitarfélagið telur einnig nokkrum vandkvæðum bundið að ganga í milligöngu varðandi leigusamning um viðkomandi landsvæði.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að hafna erindinu.

2.Efling streymis bæjarstjórnarfunda og aukið aðgengi íbúa.

2606048

Á 93. fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí 2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu B lista til umræðu í bæjarráði.
Afgreiðsla:
Málinu vísað til áframhaldandi umræðu við gerð fjárhagsáætlunar.

3.Uppbygging knattspyrnuaðstöðu í Suðurnesjabæ

2606049

Á 93. fundi bæjarstjórnar þann 15. júlí 2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu B lista til umræðu í bæjarráði.
Afgreiðsla:
Lagt fram til umræðu.

4.HS veitur hf. - hluthafafundur

2607064

Boð á hluthafafund HS Veitna hf. sem haldinn verður þann 7. ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita Alexöndru Jóhannesdóttur bæjarstjóra umboð til að sitja hluthafafund HS Veitna 7. ágúst 2026 fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

5.Suðurnesjabær og almyrkvinn 2026

2409008

Kynning á stöðu undirbúnings fyrir Almyrkva 12. ágúst 2026.
Afgreiðsla:
Ráðið þakkar fyrir kynninguna og hvetur íbúa til þátttöku í þessum einstaka viðburði.
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun í samræmi við minnisblaðið.

6.Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga

2607030

Erindi til allra sveitarfélaga og spurningalisti frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum inn í þessa vinnu og svari spurningum ráðuneytisins fyrir 21. september 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að svara spurningalista frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga og leggja fyrir bæjarráð.

7.Innkaup skólamáltíða.

2604055

Kynning á niðurstöðu útboðs varðandi innkaup skólamáltíða fyrir Suðurnesjabæ útboð nr. 202617.
Útboði varðandi innkaup skólamáltíða fyrir Suðurnesjabæ lauk kl.12:00 22.júlí 2026. Einn aðili skilaði inn tilboði en það var Skólamatur ehf. og var heildartilboðsverð bjóðanda samkvæmt opnunarskýrslu útboðsins: 118.737.400 kr.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að fylgja málinu eftir og samþykkja fyrrgreint tilboð ef það uppfyllir skilmála útboðsgagna.

8.Orkusveitarfélög - kynning til sveitarfélaga.

2607066

Kynning frá Samtökum orkusveitarfélag til sveitarfélaga ásamt stöðu máls varðandi skattlagningu orkumannvirkja.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

9.Aðgangur að þreksölum fyrir ungmenni

2607074

Tillaga M lista að öll börn og ungmenni að 20.ára aldri og með lögheimili í Suðurnesjabæ verði veittur gjaldfrjáls aðgangur að þreksölum í báðum Íþróttamiðstöðum sveitarfélagsins.
Afgreiðsla:
Bæjarstjóra falið að greina tillöguna, kostnað og lagalegar forsendur og leggja fyrir bæjarráð.

10.Fyrirspurn um möguleg kaup á fasteignum, lóð og bát

2607034

Minnisblað varðandi möguleg kaup á fasteignum, lóð og bát kynnt.
Afgreiðsla:
Málið tekið til umræðu og bæjarstjóra falið að afla frekari gagna.

Fundi slitið - kl. 17:10.

Getum við bætt efni síðunnar?