Bæjarráð
Dagskrá
1.Heilbrigðiseftirlit - Breytingar á fyrirkomulagi eftirlits
2510639
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3. júní 2026 var samþykkt samhljóða að vísa til umræðu í bæjarráði breytingum á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Ásmundur E. Þorkelsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðunesja sat fundinn undir þessu dagskrármáli.
2.Suðurnesjabær - fasteignamat 2027
2606034
Minnisblað um fasteignamat eigna í Suðurnesjabæ 2027.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
3.Hopp hjól í Suðurnesjabæ
2604114
Á 41. fundi ferða-, safna- og menningarráðs þann 28. maí 2026 var samþykkt að vísa ósk um að starfrækja Hopp rafhlaupahjólaleigu í Suðurnesjabæ sumarið 2026 til umræðu í bæjarráði.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða verða við ósk Hopp að starfrækja leiguna í Suðurnesjabæ til prufu sumarið 2026. Starfandi bæjarstjóra falið að eiga samráð við Hopp um staðsetningar stopp stöðva.

4.Siðareglur og góðir starfshættir kjörinna fulltrúa sbr. 22.gr. samþykktar um stjórn Suðurnesjabæjar.
2605160
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3. júní 2026 var samþykkt samhljóða að að bæjarráði verði falið að vinna að endurskoðun siðareglna sem verða svo lagðar fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar.
Afgreiðsla:
Mál í vinnslu.
Mál í vinnslu.
5.Fjárhagsáætlun 2027-2030
2606035
Megin markmið fyrir vinnu fjárhagsáætlunar 2027 og rammaáætlunar 2027-2030.
Afgreiðsla:
Eftirfarandi markmið fyrir vinnslu fjárhagsáætlunar samþykkt samhljóða:
A - hluti:
1. Rekstarniðurstaða verði jákvæð um að lágmarki 1% af tekjum
2. Veltufé frá rekstri verði yfir 10% af tekjum til að standa undir afborgunum lána og sem mestu af fjárfestingum.
3. Lántaka nemi að hámarki 50% af fjárfestingum árið 2027.
4. Skuldastaða A - hluta fari ekki yfir 80% af tekjum.
5. Handbært fé í árslok verði að lágmarki 500 millj.kr.
6. Gjaldskrá þjónustugjalda haldist í takt við þróun verðlags.
7. Fjárfestingar verði sem mest fjármagnaðar með skatttekjum og söluhagnaði eigna á næstu árum, þannig að lántökum verði haldið í lágmarki.
A - og B - hluti:
1. Að standast fjárhagsleg viðmið um jafnvægisreglu og skuldareglu sbr. 64.gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011.

6.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Tillaga um viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2026 vegna ráðningar bæjarstjóra.
Afgreiðsla:
Viðauki nr. 5 samþykktur samhljóða og vísað til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

7.Fundaáætlun - Bæjarstjórn og bæjarráð.
2605161
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3. júní 2026 var samþykkt að vísa tillögu M lista um fundaáætlun bæjarráðs og bæjarstjórnar til umræðu í bæjarráði. Uppfærð fundaráætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs til umræðu.
Afgreiðsla:
Tillaga M lista var felld með atkvæði fulltrúa M lista gegn atkvæðum D og S lista.
Uppfærð fundaráætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs samþykkt með atkvæðum S og D lista og vísað til staðfestingar í bæjarstjórn. Fulltrúi M lista sat hjá.
Samþykkt samhljóða að fundartími bæjarráðs verði að jafnaði kl.15:30.

8.Ráðhús - húsnæði
2303102
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3. júní 2026 var samþykkt samhljóða að vísa málinu til umræðu í bæjarráði.
Afgreiðsla:
Mál í vinnslu. Bæjarráð felur starfandi bæjarstjóra að taka saman frekari gögn og leggja fyrir bæjarráð.

9.Sumarstörf 2026
2606041
Minnisblað varðandi stöðu á sumarstörfum ungmenna sumarið 2026.
Afgreiðsla:
Bæjarráð þakkar fyrir minnisblaðið og fagnar því að öll ungmenni í sveitarfélaginu sem sóttu um sumarvinnu fengu starf. Að öðru leyti lagt fram.

10.Starfskjör kjörinna fulltrúa og nefndarlaun
2606043
Drög að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa hjá Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Samþykkt með atkvæðum D og S lista að samþykkt um starfskjör kjörinna fulltrúa verði lögð fram til afgreiðslu í bæjarstjórn og taki gildi 1. júní 2026. Fulltrúi M lista sat hjá.

11.Markaðskönnun húsnæðis fyrir brottfararstöð.
2606044
Upplýsingar varðandi útsendingu auglýsingar vegna markaðskönnunar húsnæðist fyrir brottfararstöð.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að óska eftir fundi með fulltrúum ráðuneytisins varðandi verkefnið í heild sinni.
Að öðru leyti lagt fram.

12.Fjárfestingaáætlun 2026
2601158
Yfirlit yfir fjárfestingar janúar-apríl 2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
13.Birting fylgigagna með fundargerðum sveitarfélagsins
2606047
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3.júní 2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu B lista um birtingu fylgigagna með fundargerðum til umræðu í bæjarráði.
Bókun S og D lista:
Í málefnasamningi meirihluta S lista og D lista er gert ráð fyrir að efla faglega stjórnsýslu, auka gagnsæi og upplýsingagjöf til íbúa, m.a. með opnu bókhaldi og gera fundargerðir og fundargögn nefnda aðgengilegri. Meirihlutinn fagnar því að B listi Framsóknar og óháðra taki undir mikilvægi þess að fundargögn verði aðgengilegri en þau eru í dag. Meirihluti S lista Samfylkingar og óháðra og D lista Sjálfstæðisflokks og óháðra vill þó ganga lengra og opna bókhald sveitarfélagsins að auki og telur það eðlileg framfaraskref þegar kemur að bættri upplýsingagjöf til íbúa. Er gert ráð fyrir að tillögu meirihluta verði vísað til vinnu fjárhagsætlunar þegar þar að kemur.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að kostnaðarmeta tillöguna.

14.Efling streymis bæjarstjórnarfunda og aukið aðgengi íbúa.
2606048
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3.júní 2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu B lista um eflingu streymis bæjarstjórnarfunda og aukið aðgengi íbúa til umræðu í bæjarráði.
Afgreiðsla:
Tillaga B lista er felld með atkvæðum fulltrúa D og S lista. Fulltrúi M lista sat hjá.
Bókun S og D lista:
Fulltrúar meirihluta S og D lista mæla með því að streymisbúnaður vegna bæjarstjórnafunda verði með óbreyttu sniði enda telst búnaðurinn fullnægjandi miðað við núverandi fundaaðstöðu.

15.Uppbygging knattspyrnuaðstöðu í Suðurnesjabæ
2606049
Á 92. fundi bæjarstjórnar þann 3.júní 2026 var samþykkt samhljóða að vísa tillögu B lista um uppbyggingu knattspyrnuaðstöðu í Suðurnesjabæ til umræðu í bæjarráði.
Bókun S og D lista:
Meirihluti S lista Samfylkingar og óháðra og D lista Sjálfstæðisflokks og óháðra óskar eftir góðu samstarfi allra bæjarfulltrúa þegar farið verður í þá vinnu að finna gervigrasvelli í Suðurnesjabæ stað. Þá vill meirihluti árétta að til stendur að ganga eins hratt til verks og hægt er og telur mikilvægt að nýir bæjarfulltrúar geti kynnt sér feril málsins, gögn og forsendur áður en ákvörðun er tekin.
Afgreiðsla:
Tillaga B lista felld með atkvæðum fulltrúa S og D lista. Fulltrúi M lista sat hjá.

Fundi slitið - kl. 18:46.
Bæjarráð þakkar Ásmundi E. Þorkelssyni fyrir upplýsingar um stöðu mála varðandi Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja.
Að öðru leyti lagt fram.