Bæjarráð
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Tillaga um viðauka nr. 2, styrkur til Hestamannafélagsins Mána vegna uppbyggingar reiðstíga.
Tillaga um viðauka nr. 3, endurskoðun fjárfestingaáætlunar 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

2.Tillaga að Deiliskipulagi við Sandgerðiskirkju, tjaldsvæði og ferðaþjónustu við Byggðaveg - Framkvæmdir
2412037
Minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála. Tillaga um að heimild verði veitt til að hefja framkvæmdir og að unnið verði áfram að endanlegum verkundirbúningi, útboðsgögnum og framkvæmd verkefnisins með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist sem fyrst.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita heimild til að hefja undirbúning framkvæmda og að verkefnið verði boðið út.

3.Heiðarholt almenn erindi
2210060
Minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs með tillögum um aukna þjónustu skammtímadvalar.
Afgreiðsla:
Tillögur í minnisblaði sviðsstjóra velferðarsviðs um aukna þjónustu skammtímadvalar samþykktar samhljóða.
Jafnframt samþykkt samhljóða að fela sviðsstjóra velferðarsviðs að leggja mat á rekstrarkostnað við að Suðurnesjabær taki alfarið yfir rekstur skammtímadvalar.

4.Ráðhús - húsnæði
2303102
Minnisblað frá bæjarstjóra með tillögu um að láta ljúka við fullnaðarhönnun og undirbúa framkvæmdir í 1.áfanga, uppbyggingu á tómu rými á 2. hæð. Frekari tillögur um framvindu verkefnisins verði lagðar fyrir bæjarráð eftir því sem verkefnið vinnst áfram.
Afgreiðsla:
Tillaga í minnisblaði bæjarstjóra samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og O lista. Fulltrúi B lista sat hjá.
Bókun fulltrúa B lista:
Fulltrúi B-lista situr hjá við afgreiðslu málsins á þeim forsendum að óeðlilegt sé að bæjarráð taki ákvörðun um jafn umfangsmiklar framkvæmdir og fjárfestingar aðeins þremur dögum fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram þann 16. maí.
Að mati B-lista væri eðlilegra að nýtt bæjarráð og ný sveitarstjórn fái tækifæri til að taka afstöðu til áframhaldandi framvindu verkefnisins.
Bókun fulltrúa S og O lista:
Verkefnið hefur verið í undirbúningi í allnokkurn tíma enda brýn þörf á að bæta starfsaðstæður starfsfólks. Í samþykktri fjárfestingaráætlun ársins 2026 er ráð fyrir 80 mkr. í verkefnið á yfirstandandi fjárhagsári auk kostnaðarhlutdeildar Fasteignafélagsins Sunnubraut 4.

5.Endurskoðun á byggðakvótakerfinu
2605031
Erindi frá innviðaráðuneyti dags. 08.05.2026, umsagnarbeiðni vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna drög að umsögn um málið.

6.Golfklúbbur Suðurnesja
2604151
Minnisblað frá íþrótta-og tómstundafulltrúa af fundi með fulltrúa GS.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að unnið verði að samstarfssamningi við GS. Jafnframt samþykkt samhljóða að veita GS styrk til greiðslu fasteignaskatts, sbr. fyrra erindi GS um það mál og bæjarstjóra falið að láta vinna viðauka við fjárhagsáætlun.

7.Knattspyrnufélagið Víðir - 90 ára afmæli
2502071
Lagt fram gjafabréf til Knattspyrnufélagsins Víðis í tilefni 90 ára afmælis félagsins, peningagjöf kr. 400.000.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir peningagjöfina samhljóða og óskar Knattspyrnufélaginu Víði til hamingju með 90 ára afmæli félagsins.

8.Innviðaráðuneyti - Vernd mikilvægra innviða, starfshópur
2605024
Erindisbréf starfshóps innviðaráðherra um vernd mikilvægra innviða og fundarpunktar af fundi með starfshópnum.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
9.Ársfundur Þekkingarseturs Suðurnesja
2205089
Boð á ársfund Þekkingarseturs Suðurnesja fimmtudaginn 21. maí 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri sæki ársfundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

10.Brunavarnir Suðurnesja - fundargerðir 2026
2602205
100. fundur stjórnar dags. 30.04.2026.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 16:18.
Viðaukar nr. 2 og 3 samþykktir samhljóða og vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.