Bæjarráð
Dagskrá
1.Fjárfestingaáætlun 2026
2601158
Yfirlit yfir fjárfestingar janúar-mars 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2.Rekstraryfirlit 2026
2604147
Rekstraryfirlit janúar - mars 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
3.Fjárhagsáætlun 2026 - Viðaukar
2604146
Tillaga um viðauka 1. Sumarúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni, tilfærsla fjárheimilda innan málaflokks 02. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa viðauka 1 til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða að vísa viðauka 1 til staðfestingar í bæjarstjórn.
4.Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Gjaldskrá 2026
2505089
Lögð fram tillaga um endurskoðun á þjónustugjaldskrá í A-hluta vegna barnafjölskyldna með 3% lækkun einstaka liða frá samþykktri gjaldskrá, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í sveitarfélaginu. Breytingum vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins og taki gildi frá og með 1.júní 2026. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að endurskoða viðkomandi liði í þjónustugjaldskrá til lækkunar, þannig að lækkun þeirra verði 3% frá samþykktri gjaldskrá ársins 2026. Breytingin taki gildi frá og með 1.júní 2026.
Samþykkt samhljóða að endurskoða viðkomandi liði í þjónustugjaldskrá til lækkunar, þannig að lækkun þeirra verði 3% frá samþykktri gjaldskrá ársins 2026. Breytingin taki gildi frá og með 1.júní 2026.
5.Knattspyrnufélagið Víðir - Samstarfssamningur
2502071
Lagt er til að samningur verði hækkaður með tilliti til vísitöluhækkunar ásamt því að veittur verði styrkur vegna annars reksturs húsnæðis.
Afgreiðsla:
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
6.Knattspyrnufélagið Reynir - Samstarfssamningur
2502072
Lagt er til að samningur verði hækkaður með tilliti til vísitöluhækkunar ásamt því að veittur verði styrkur vegna annars reksturs húsnæðis.
Afgreiðsla:
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
7.Golfklúbbur Sandgerðis - Samstarfssamningur
2502074
Lagt er til að samningur verði hækkaður með tilliti til vísitöluhækkunar ásamt því að hækka styrk til barna- og unglingastarfs í 2.000.000.
Afgreiðsla:
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
8.Hestamannafélagið Máni
2505098
Drög að samningi við Hestamannafélagið Mána varðandi uppbyggingu reiðstíga í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
Drög að samstarfssamningi samþykkt samhljóða.
9.Golfklúbbur Sandgerðis - Frágangur við golfskála
2604158
Erindi frá Golfklúbbi Sandgerðis með ósk um framkvæmdir við frágang umhverfis við golfskála og minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála um málið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu og veita heimild til framkvæmdarinnar. Samþykkt að lagður verði fram viðauki vegna málsins.
Samþykkt samhljóða að verða við erindinu og veita heimild til framkvæmdarinnar. Samþykkt að lagður verði fram viðauki vegna málsins.
10.Aðalfundur Landskerfis bókasafna
2604110
Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að Margrét I. Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sæki aðalfundinn.
Samþykkt samhljóða að Margrét I. Ásgeirsdóttir forstöðumaður safna sæki aðalfundinn.
11.Sveitastjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
2604093
Erindi frá umboðsmanni barna, þar sem hvatt er til lýðræðislegrar þátttöku barna í tengslum við sveitarstjórnarkosningar 2026.
Afgreiðsla:
Bæjarráð tekur undir hvatningu umboðsmanns barna.
Bæjarráð tekur undir hvatningu umboðsmanns barna.
12.Eignarhaldsfélag Suðurnesja - Fundarboð
2604148
Fundarboð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurnesja hf, 5.maí 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri mæti á aðalfundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri mæti á aðalfundinn fyrir hönd Suðurnesjabæjar.
13.Byggingafulltrúi - Tímabundið leyfi
2604150
Minnisblað frá bæjarstjóra um tímabundið leyfi sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs. Lagt er til að Sigurður Hilmar Ólafsson verði staðgengill byggingafulltrúa þar til sviðsstjóri snýr aftur til starfa.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að Sigurður Hilmar Ólafsson verði staðgengill byggingafulltrúa tímabundið.
Samþykkt samhljóða að Sigurður Hilmar Ólafsson verði staðgengill byggingafulltrúa tímabundið.
14.Sveitarfélagið Vogar - Samningur um fræðsluþjónustu
2604168
Minnisblað frá bæjarstjóra með tillögu um framlengingu á þjónustusamningi við Sveitarfélagið Voga um fræðsluþjónustu.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
15.Samningur um félagsþjónustu, barnavernd og þjónustu við fatlað fólk.
2507061
Drög að samningi við Sveitarfélagið Voga um félagsþjónustu, barnavernd og þjónustu við fatlað fólk.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa samningnum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða að vísa samningnum til afgreiðslu í bæjarstjórn.
16.Skerjahverfi - Uppbygging innviða og útboð framkvæmda
2012054
Minnisblað frá deildarstjóra umhverfismála með ósk um heimild til að halda áfram undirbúningi og framkvæmdum við 3.-5. áfanga Skerjahverfis.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita heimild samkvæmt minnisblaði.
Samþykkt samhljóða að veita heimild samkvæmt minnisblaði.
Fundi slitið - kl. 16:45.
Lagt fram.