Bæjarráð
Dagskrá
1.Ársreikningur Suðurnesjabæjar 2025
2603154
Drög að ársreikningi 2025 lögð fram. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2.Göngu-og hjólreiðastígar í Suðurnesjabæ
2603171
Minnisblað frá bæjarstjóra og sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs varðandi undirbúning framkvæmda við göngu-og hjólreiðastíga. Annars vegar frá Garði að golfskála í Leiru og hins vegar frá Sandgerði að stíg milli Reykjanesbæjar og flugstöðvar við hringtorg við Rósaselstorg. Jón Ben. Einarsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tillaga lögð fram um að unnin verði útboðsgögn með kostnaðaráætlun og framkvæmdir við báða göngu-og hjólreiðastígana verði boðnar út. Útboð framkvæmda við báða stígana fari fram á sama tíma og verði þeir boðnir út hvor í sínu lagi. Jafnframt verði unnið að samningi við Vegagerðina um þátttöku í kostnaði við framkvæmdir, sem verði lagður fram í bæjarráði til afgreiðslu.
Afgreiðsla:
Tillagan féll á jöfnu þar sem fulltrúi S lista samþykkti tillöguna og fulltrúi B lista greiddi atkvæði á móti.
Bókun B lista Framsóknar:
Fulltrúi B lista Framsóknar tekur fram að hann er ekki andvígur uppbyggingu göngu- og hjólreiðastíga í Suðurnesjabæ enda er um mikilvæga innviðauppbyggingu að ræða með tilliti til umferðaröryggis, lýðheilsu og bættra samgangna innan sveitarfélagsins.
Hins vegar gerir fulltrúi B lista alvarlegar athugasemdir við þá málsmeðferð og fjármögnunarleið sem hér er lögð til. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er gert ráð fyrir að ráðist verði í útboð framkvæmda áður en samningur við Vegagerðina um kostnaðarþátttöku liggur fyrir. Jafnframt liggur fyrir að framlög Vegagerðarinnar eru áætluð á löngu tímabili og endurskoðuð árlega, sem skapar verulega óvissu um tímasetningu og endanlega fjármögnun verkefnisins.
Með þessari framsetningu er sveitarfélaginu ætlað að taka á sig verulega fjárhagslega áhættu á fyrstu stigum verkefnisins án þess að fullnægjandi trygging liggi fyrir um mótframlag ríkisins. Fulltrúi B lista Framsóknar telur að ábyrg fjármálastjórn krefjist þess að slíkur samningur og raunhæf fjármögnun liggi fyrir áður en farið er í útboð og skuldbindandi ákvarðanir teknar.
Á þeim forsendum getur fulltrúi B lista Framsóknar ekki stutt fyrirliggjandi tillögu og greiðir því atkvæði gegn henni.

3.Ráðhús - húsnæði
2303102
Minnisblað frá bæjarstjóra með tillögu um að veitt verði heimild til fullnaðarhönnunar á húsnæði ráðhúss og undirbúa framkvæmdir við uppbyggingu í ókláruðu rými á 2. hæð að Sunnubraut 4. Jafnframt að leitað verði eftir samstarfi við eiganda húsnæðisins um kostnaðarþáttöku framkvæmdakostnaðar og leigu á rýminu.
Afgreiðsla:
Afgreiðslu málsins frestað.
Afgreiðslu málsins frestað.
4.Norræna félagið á Suðurnesjum - Erindi
2511044
Erindi frá Norræna félaginu á Suðurnesjum með ósk um styrk vegna starfsemi félagsins árið 2026.
Afgreiðsla:
Erindi vísað til ferða-, safna- og menningarráðs.

5.Umsókn um styrk vegna kóramóts
2603085
Erindi frá Eldey, kór eldri borgara á Suðurnesjum, ósk um styrk vegna kóramóts í maí 2026.
Afgreiðsla:
Erindi vísað til ferða-, safna- og menningarráðs.
Erindi vísað til ferða-, safna- og menningarráðs.
6.Hestamannafélagið Máni
2505098
Á 35. fundi íþrótta-og tómstundaráðs var fjallað um erindi frá Hestamannafélaginu Mánua varðandi uppbyggingu og viðhald reiðstíga í Suðurnesjabæ. Íþrótta-og tómstundaráð tók jákvætt í erindið og leggur til við bæjarráð að gera samning um uppbyggingu og viðhald reiðstíga í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna að samningi við Hestamannafélagið Mána varðandi uppbyggingu og viðhald reiðstíga í Suðurnesjabæ, sem verði lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar.

7.Ósk um aðstöðu í Miðhúsum
2602202
Drög að samkomulagi milli Suðurnesjabæjar og Félags eldri borgara í Suðurnesjabæ um afnot af húsnæði í Miðhúsum um helgar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að ganga frá samkomulaginu samkvæmt fyrirliggjandi drögum.

Fundi slitið - kl. 16:57.
Samþykkt samhljóða að vísa ársreikningi 2025 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.