Fara í efni

Bæjarráð

186. fundur 11. mars 2026 kl. 15:30 - 17:12 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður
  • Laufey Erlendsdóttir varaformaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Skráningardagar í leikskólum Suðurnesjabæjar

2502053

Á 61. fundi fræðsluráðs var samþykkt að vísa tillögum um endurskoðun á skráningardögum í leikskólum til samþykktar í bæjarstjórn. Á 89. fundi bæjarstjórnar var samþykkt að vísa umfjöllun um málið til bæjarráðs. Fjölgun lokunardaga úr fjórum í ellefu og felur tillagan í sér að hluti skráningardaga verði lokunardagar. Heiða Ingólfsdóttir verkefnastjóri fræðsluþjónustu á mennta- og tómstundasviði sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að lokunardagar leikskóla verði sjö í stað fjögurra skólaárið 2026-2027. Lokunardagar verði fjórir í jólafríi og þrír í dymbilviku. Skráningardagar verði fjórir í haust-og vetrarfríum, til samræmis við frí í grunnskólum Suðurnesjabæjar. Gert verði ráð fyrir að barn mæti ekki í leikskóla nema vera skráð. Einnig samþykkt samhljóða að láta vinna greiningu á fleiri og fjölbreyttari leiðum til að bæta starfsaðstæður leikskólakennara og styttingu vinnuvikunnar. Samþykkt samhljóða að fela leikskólastjórum leikskólanna, verkefnastjóra mennta-og tómstundasviðs, formanni fræðsluráðs og fulltrúa minnihluta í fræðsluráði að vinna að mögulegum útfærslum og skila tillögum til bæjarráðs.

2.Gauksstaðir, tillaga að deiliskipulagi - Endurtekin málsmeðferð

2603018

Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála um deiliskipulag Gauksstaða. Sigurður Hilmar Ólafsson deildarstjóri byggingarmála á umhverfis- og skipulagssviði sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Bókun bæjarráðs:
Fyrir liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, mál nr. 158/2025, um deiliskipulag Gauksstaða (L196408). Málið varðar ákvörðun bæjarráðs Suðurnesjabæjar frá 25. júní 2025 um að samþykkja deiliskipulagið. Niðurstaða nefndarinnar er að ákvörðun bæjarráðs er felld úr gildi. Farið var yfir niðurstöðuna og réttaráhrifin af úrskurðinum, sbr. minnisblað Verkís, dags. 6. mars 2026, um sama efni.

Ferill málsins er með þeim hætti að 6. apríl 2022 veitti Suðurnesjabær framkvæmdaaðila, sem jafnframt er landeigandi Gauksstaða (L196408), heimild til deiliskipulagsgerðar samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagsslaga. Bæjarstjórn samþykkti þann 2. október 2024 að auglýsa tillögu framkvæmdaaðila að deiliskipulagi við Gauksstaði (L196408) að undangenginni breytingu á aðalskipulagi. Tillagan var auglýst í Skipulagsgátt þann 12. nóvember 2024 (mál nr. 1348/2024 í Skipulagsgátt). Unnið var úr athugasemdum að loknum auglýsingartímanum. Gerðar voru tilteknar breytingar á tillögunni með það að markmiði að koma til móts við framkomnar athugasemdir og lágmarka neikvæð áhrif af deiliskipulaginu. Umfjöllun í umhverfismati tillögunnar var aukin og m.a. sett inn ákvæði um aðgerðir til að lágmarka truflun og hættu af völdum þungaflutninga á framkvæmdatíma og byggingarreitur fyrir þjónustuhúss og bílastæði var fluttur til. Gerð var grein fyrir breytingum á tillögunni í greinargerð tillögunnar, þ.e. breytingum á greinargerð og uppdrætti.

Deiliskipulagið var samþykkt á fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar 25. júní 2025 og um er að ræða hina kærðu ákvörðun sem fjallað var um í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 14. október 2025. Til grundvallar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að Suðurnesjabæ hafi borið að auglýsa tillöguna á nýjan leik samkvæmt 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Þar er vísað til þess að „Með hliðsjón af umfangi þeirrar ferðaþjónustu sem skipulagið heimilar verður að telja það verulegan ágalla á kynntri tillögu að í henni hafi ekki verið að finna neitt eiginlegt umhverfismat“. Úrskurðarnefndin metur það svo að með því að gera úrbætur á umhverfismati skipulagsins, þ.e.„?bæta umhverfismati skipulagsins við...“, eftir auglýsingu hafi tillögunni verið breytt í grundvallaratriðum. Úrskurðarnefndin telur að gefa hefði átt almenningi kost á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum um umhverfisáhrifin og það verði einungis gert með því að auglýsa tillöguna að nýju.

Bæjarráð vill árétta að starfsmenn bæjarins og kjörnir fulltrúar hafa vandað til meðferðar málsins á öllum stigum, og ekki síst samþykkt deiliskipulagsins. Leitast hefur verið við að vinna faglega að málinu ásamt því að leita allra leiða til að ljúka því á farsælan hátt, fyrir framkvæmdaaðila sem og íbúa í nágrenni við fyrirhugað framkvæmdasvæði. Einnig skal bent á að tillagan fór í gengum athugun Skipulagsstofnunar, þ.e. eftir auglýsingu og fyrir staðfestingu deiliskipulagsins. Í þeirri rýni stofnunarinnar og yfirferð yfir skipulagsmálið voru ekki gerðar athugasemdir við málsmeðferð bæjarins í þessu máli.

Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða, með vísan til 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi við Gauksstaði L196408 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa falið að auglýsa tillöguna.

3.Heiðarholt almenn erindi

2210060

Minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs um aukna þjónustu skammtímadvalar fyrir fötluð börn og ungmenni. Guðrún Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögur sem koma fram í minnisblaði, með fyrirvara um samþykki samstarfssveitarfélaga um skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni.

4.Styrkir til félagasamtaka vegna fasteignagjalda 2026

2602001

Erindi frá Golfklúbbi Suðurnesja, ósk um styrk til greiðslu fasteignagjalda.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að taka jákvætt í erindið. Bæjarstjóra falið að eiga samskipti við GS um mögulegt samstarf við Suðurnesjabæ.

5.Öryggismyndavélakerfi

2603010

Drög að samningi við Lögreglustjórann á Suðurnesjum og Neyðarlínuna um verklag við kaup, uppsetningu og rekstur á öryggismyndavélakerfi í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að staðfesta samkomulagið.

6.Beiðni um upplýsingar - vinnueftirlitið

2602150

Erindi frá Vinnueftirliti, beiðni um gögn og upplýsingar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að láta svara erindi Vinnueftirlitsins

7.Stafræn smiðja á Suðurnesjum Fab-Lab

2210070

Ársskýrsla Fab Lab Suðurnes fyrir árið 2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

8.Aðalfundur Bláa lónsins hf. 2026

2602203

Stjórn Bláa Lónsins hf. boðar til aðalfundar félagsins þann 19. mars 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra umboð til að sitja aðalfund Bláa Lónsins hf.

9.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga

2603001

Boðað er til aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf þann 20. mars 2026.
Afgreiðsla:
Bæjarstjóri mun sitja aðalfund LS fyrir hönd Suðurnesjabæjar.

10.Ársfundur HSS 2026

2603019

Boð á ársfund Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þann 27.mars 2026 í Samkomuhúsinu í Sandgerði.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

11.HS Veitur ehf - Aðalfundur 2026

2603050

Boðað er til aðalfundar HS Veitna ehf 25.mars 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra umboð til að sitja aðalfund HS Veitna.

12.Starfsmannamál - trúnaðarmál

2602188

Afgreiðsla:
Skráð sem ítarbókun.

Fundi slitið - kl. 17:12.

Getum við bætt efni síðunnar?