Fara í efni

Bæjarráð

182. fundur 07. janúar 2026 kl. 15:30 - 16:15 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður
  • Laufey Erlendsdóttir varaformaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Sveitarfélagið Vogar - Samningar um félags-og fræðsluþjónustu

2512050

Erindi frá bæjarstjóra Sveitarfélagsins Voga dags. 05.12.2025, þar sem fram kemur afstaða bæjarráðs Sv. Voga um að unnið verði að endurnýjun á samningi milli sveitarfélaganna Suðurnesjabæjar og Voga um velferðarmál. Jafnframt um að samningur um fræðsluþjónustu verði ekki endurnýjaður.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að vinna að samningi við Sveitarfélagið Voga um velferðarþjónustu.

2.Byggðakvóti

2512116

Erindi frá innviðaráðuneyti dags. 18.12.2025, tilkynning um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2025/2026, til Garðs 50 þíg.tonn og til Sandgerðis 36 þíg/tonn.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að óska eftir við Innviðaráðuneytið að ákvæði reglugerðar nr.1334/2025 gildi um úthlutun byggðakvóta byggðarlagsins Garðs með breytingum skv. eftirfarandi:

a) Ákvæði 1.málsl. 1.mgr. 4.gr. reglugerðar nr. 1334/2025 verði:
Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1.gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3.gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1.september 2024 til 31.ágúst 2025.

b) Ákvæði 1.málsl. 1.mgr. 6.gr. reglugerðar nr. 1334/2025 breytist og verður:
Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1.september 2025 til 31.ágúst 2026.

3.Búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda

2406068

Erindi frá mennta-og barnamálaráðuneyti þar sem fram kemur að framlag ríkisins til Suðurnesjabæjar vegna búsetuúrræða barna með fjölþættan vanda vegna ársins 2025 sé kr. 160.286.362. Einnig liggja fyrir drög að samningi við Barna- og fjölskyldustofu um fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda fyrir árið 2026.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita samning við Barna- og fjölskyldustofu.

4.Samgönguáætlun 2026-2040

2512137

Minnisblað frá bæjarstjóra um tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2026-2040 ásamt tillöguskjali og útdrætti um einstök verkefni.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirbúa umsögn um tillögu um samgönguáætlun, sem verði tekin til umfjöllunar í bæjarráði síðar.

5.Mennta- og barnamálaráðuneytið - samningur um fylgdarlaus börn

2401007

Samstarfssamningur við mennta-og barnamálaráðuneyti um málefni fylgdarlausra barna, gildistími 01.01.2026 til 31.12.2027.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta samninginn.

6.Brunavarnir Suðurnesja bs - Samþykktir

2512122

Viðauki við samning um Brunavarnir Suðurnesja bs., varðandi greiðslu rekstrarframlaga aðildarsveitarfélaga.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að staðfesta viðauka við samning um Brunavarnir Suðurnesja bs.

7.Fasteignafélagið Sunnubraut 4 - Fundargerðir

2501097

Fundur stjórnar dags. 22.12.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 16:15.

Getum við bætt efni síðunnar?