Fara í efni

Bæjarráð

177. fundur 29. október 2025 kl. 15:30 - 16:23 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður
  • Laufey Erlendsdóttir varaformaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson aðalmaður
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Árni Gísli Árnason sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Áður en gengið var til dagskrár var samþykkt samhljóða að bæta máli á dagskrá fundarins, Vegagerðin - Vetrarþjónusta í Suðurnesjabæ.

1.Fjárhagsáætlun 2026-2029

2505089

Drög að fjárhagsáætlun 2026-2029. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og O lista að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2026-2029 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Fulltrúi B lista sat hjá.

Samþykkt með atkvæðum fulltrúa S og O lista að leggja til við bæjarstjórn að álagningarhlutfall útsvars 2026 verði óbreytt, 14,97%. Fulltrúi B lista sat hjá.

2.Gefnarborg-samningur um rekstur

2304070

Kynning á stöðu samningamála vegna Gefnarborgar. Hafdís Guðrún sviðsstjóri mennta- og tómstundasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:

Samþykkt samhljóða að fela sviðsstjóra mennta-og tómstundasviðs að vinna að samningagerð út frá forsendum sem farið var yfir á fundinum.

3.Botndýr á Íslandsmiðum lífeyrisskuldbindingar starfsmanna

1806564

Drög að samningi við Ríkissjóð Íslands um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum B-deildar LSR vegna fyrrum starfsmanna rannsóknarverkefnis um botndýr á Íslandsmiðum.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita fyrirliggjandi samning við Ríkissjóð Íslands um uppgjör á lífeyrisskuldbindingum.

4.Vegagerðin - Vetrarþjónusta í Suðurnesjabæ

2510690

Umfjöllun um ástand þjóðvega í Suðurnesjabæ í morgun þann 29. október 2025 vegna ófærðar og skorts á vetrarþjónustu Vegagerðarinnar.
Afgreiðsla:

Að morgni miðvikudagsins 29.október lokaðist Sandgerðisvegur og sömuleiðis vegurinn milli Sandgerðis og Garðs, vegna þess að ekki hafði farið fram snjómokstur Vegagerðarinnar á þessum leiðum. Þær aðstæður komu upp að allar leiðir til og frá Sandgerði voru lokaðar vegna ófærðar. Þetta er ekki fyrsta skipti sem svona ástand skapast, vegna þess að vetrarþjónusta Vegagerðarinnar er ekki framkvæmd eins og vera ber. Það ástand sem skapaðist í morgun var mjög alvarlegt, margir íbúar komust hvorki til né frá til sinna starfa og til náms, auk þess sem fjöldi fólks komst ekki leiðar sinnar til starfa í Flugstöð og aðrir komust ekki í áætlað flug. Þá kom þetta mjög illa við atvinnulíf og ýmsa þjónustu í sveitarfélaginu þar sem starfsfólk og þjónustuaðilar komust ekki um vegina. Öllu alvarlegra er að við þessar aðstæður er öryggi íbúanna stefnt í hættu, hvorki sjúkrabílar né slökkviliðsbílar gætu komist á vettvang ef atvik kæmu upp þar sem þyrfti á þjónustu viðbragðsaðila að halda.

Bæjarráð Suðurnesjabæjar gerir alvarlega athugasemd við það hvernig framkvæmd Vegagerðarinnar á snjómokstri er í Suðurnesjabæ. Allt of oft kemur sú staða upp að þjóðvegirnir í sveitarfélaginu mæta afgangi í vetrarþjónustu Vegagerðarinnar og er það með öllu óásættanlegt fyrir íbúa Suðurnesjabæjar. Bæjarráð krefst þess að Vegagerðin tryggi eðlilega vetrarþjónustu í Suðurnesjabæ þannig að ekki komi aftur upp þær aðstæður sem voru að morgni 29.október 2025.

Fundi slitið - kl. 16:23.

Getum við bætt efni síðunnar?