Bæjarráð
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Rekstraryfirllit
2405023
Rekstraryfirlit tímabilið janúar - maí 2025. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2.Gauksstaðir, tillaga að deiliskipulagi.
2407065
Á 65. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 18.06.2025 var til umfjöllunar tillaga um deiliskipulag við Gauksstaði. Málið var til umfjöllunar á 167. fundi bæjarráðs dags. 11.06.2025 þar sem samþykkt var að beina því til framkvæmda-og skipulagsráðs að taka málið upp að nýju og ljúka málsmeðferð þess. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti að fela sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs og framkvæmdaraðilum að lagfæra skipulagsgögnin til samræmis við fyrirliggjandi minnisblað og niðurstöðu fundarins. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti jafnframt að leggja til við bæjarstjórn að hún samþykki deiliskipulagstillöguna ásamt umhverfismati með þeim breytingum sem lagðar eru til og feli sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagið til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt að senda þeim aðilum, er athugasemdir gerðu, umsögn sína um þær. Fulltrúi O-lista sat hjá við afgreiðslu málsins, þar sem hann telur að ekki hafi verið komið nægilega til móts við athugasemdir er snúa að hæð húsanna og áhrif þess á útsýni og ásýnd strandlengjunnar.
Afgreiðsla:
Bæjarráð hefur farið yfir framkomnar athugasemdir við deiliskipulag við Gauksstaði og tillögur að svörum og viðbrögðum við þeim. Bæjarráð samþykkir samhljóða deiliskipulag við Gauksstaði ásamt umhverfismati og að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til yfirferðar samkvæmt 1.mgr., 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt að senda þeim aðilum, er gerðu athugasemdir, umsögn sína um þær.

3.Reykjanesbraut-Rósaselstorg - Breyting á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034
2506072
Á 65. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 18.06.2025 var fjallað um skipulagslýsingu vegna áforma Vegagerðarinnar um að tvöfalda Reykjanesbraut frá Fitjum í Reykjanesbæ til Rósaselstorgs í Suðurnesjabæ. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að kynna skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 vegna Reykjanesbrautar við Rósaselstorg skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að kynna skipulagslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 vegna Reykjanesbrautar við Rósaselstorg skv. 1.mgr., 30.gr. skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða að kynna skipulagslýsingu vegna breytinga á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 vegna Reykjanesbrautar við Rósaselstorg skv. 1.mgr., 30.gr. skipulagslaga.
4.Bergvík - Nýtt deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi
2506043
Á 65. fundi framkvæmda-og skipulagsráðs dags. 18.06.2025 var fjallað um skipulags-og matslýsingu fyrir heildar endurskoðun á deiliskipulagi í Bergvík í Suðurnesjabæ, helstu forsendur endurskoðunarinnar og breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 fyrir sama svæði sem unnin verður sameiginlega. Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að veita landeiganda Bergvíkur heimild til deiliskipulagsgerðar í Bergvík skv. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Framkvæmda-og skipulagsráð samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að kynna skipulags-og matslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag í Bergvík og breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga.

Samþykkt samhljóða að kynna skipulags-og matslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag í Bergvík og breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 1.mgr., 30.gr. og 1.mgr., 40.gr.
skipulagslaga.
Samþykkt samhljóða að kynna skipulags-og matslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag í Bergvík og breytingu á Aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 skv. 1.mgr., 30.gr. og 1.mgr., 40.gr.
skipulagslaga.
5.Hjúkrunarheimili í Suðurnesjabæ
2502101
Erindi frá Jórunni Öldu Guðmundsdóttur, þar sem hvatt er til byggingar hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Lagt fram, mál í vinnslu.
Lagt fram, mál í vinnslu.
6.Stefna um aðstöðu og þjónustu við aldraða í Suðurnesjabæ - Stýrihópur 2025
2501108
Drög að stefnu í málefnum aldraðra í Suðurnesjabæ frá stýrihópi um málefnið, lagt fram til kynningar.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
7.Samstarf um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk
2503130
Drög að viljayfirlýsingu milli Suðurnesjabæjar og Brynju leigufélags ses um samstarf við undirbúning og uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Suðurnesjabæ.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna.
Samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna.
8.Samkomulag milli ríkisins og sveitarfélaga um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda sem vistuð eru utan heimilis.
2506130
Erindi frá mennta-og barnamálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga með upplýsingum varðandi samkomulag um ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda.
Afgreiðsla:
Bæjarráð leggur áherslu á að sem fyrst liggi fyrir hvernig fjármunum í fjárlögum ársins verði ráðstafað til þeirra sveitarfélaga sem bera kostnað vegna málaflokksins.
Bæjarráð leggur áherslu á að sem fyrst liggi fyrir hvernig fjármunum í fjárlögum ársins verði ráðstafað til þeirra sveitarfélaga sem bera kostnað vegna málaflokksins.
9.Húsnæðismál menntastofnana
2506047
Á 55.fundi fræðsluráðs dags. 13.06.2025 var lagt fram yfirlit um stöðu húsnæðis menntastofnana Suðurnesjabæjar. Málinu var vísað til bæjarráðs til frekari greiningar og fjárhagsáætlunarvinnu. Fræðsluráð telur brýnt að marka stefnu til skemmri og lengri tíma fyrir núsnæðismál menntastofnana í sveitarfélaginu. Fyrir liggur minnisblað um málið.
Afgreiðsla:
Samþykkt að skipa stýrihóp fulltrúa skipulags-og umhverfissviðs, fræðslusviðs, velferðarsviðs ásamt bæjarstjóra, sem fari yfir efni minnisblaðsins og skili tillögum til bæjarráðs hið fyrsta.
Samþykkt að skipa stýrihóp fulltrúa skipulags-og umhverfissviðs, fræðslusviðs, velferðarsviðs ásamt bæjarstjóra, sem fari yfir efni minnisblaðsins og skili tillögum til bæjarráðs hið fyrsta.
10.Fjárhagsáætlun 2026-2029 - Innsend erindi.
2505089
Erindi frá Félagi atvinnurekenda vegna fasteignamats atvinnuhúsnæðis og álagningar fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði, ásamt skýrslu starfshóps fulltrúa Sambands ísl. sveitarfélaga, HMS, Félags atvinnurekenda, Húseigendafélagsins og Landssambands eldri borgara um málefnið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
11.Skötumessa
2406067
Erindi frá Skötumessu í Garði með ósk um afnot af Miðgarði í Gerðaskóla fyrir skötumessu miðvikudaginn 23.júlí 2025.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita Skötumessu gjaldfrjáls afnot af Miðgarði, sal Gerðaskóla þann 23.júlí 2025. Allur ágóði rennur til velferðarmála.
Samþykkt samhljóða að veita Skötumessu gjaldfrjáls afnot af Miðgarði, sal Gerðaskóla þann 23.júlí 2025. Allur ágóði rennur til velferðarmála.
12.Fjölsmiðjan á Suðurnesjum - ársskýrsla og ársreikningur
2506111
Ársskýrsla og ársreikningur Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum fyrir árið 2024.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
13.Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040
2411063
Tillaga um svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 til auglýsingar.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að tillaga um Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 fari til auglýsingar.
Samþykkt samhljóða að tillaga um Svæðisskipulag Suðurnesja 2024-2040 fari til auglýsingar.
14.Lög um veiðigjöld 2025
2503171
Bókun stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga varðandi frumvarp til laga um hækkun veiðigjalda, ásamt uppfærðum útreikningum KPMG um möguleg áhrif þeirra.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
15.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2025
2502117
a) Fundargerð 981. fundar stjórnar frá 13.06.2025
b) Fundargerð 982. fundar stjórnar frá 16.06.2025
b) Fundargerð 982. fundar stjórnar frá 16.06.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
16.Ferða-, safna- og menningarráð - 34
2505035F
34. fundur dags. 03.06.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
17.Fræðsluráð - 55
2506006F
55. fundur dags. 13.06.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
18.Framkvæmda- og skipulagsráð - 65
2506007F
65. fundur dags. 18.06.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
19.Heilbrigðisnefnd Suðurnesja - fundargerðir 2025
2502011
a) Fundargerð 318. fundar frá 05.06.2025
b) Ársreikningur 2024 frá 05.06.2025
b) Ársreikningur 2024 frá 05.06.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
20.Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf.
2406021
Fundargerð aðalfundar Keilis dags. 30.05.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
21.Svæðisskipulag Suðurnesja - fundargerðir 2025
2502133
Fundargerð 54. fundar Svæðisskipulagsnefndar dags. 12.06.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 16:56.
Lagt fram.