Bæjarráð
Dagskrá
1.Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Rekstraryfirlit
2405023
Rekstraryfirlit tímabilið janúar - apríl 2025. Kjartan Ingvarsson sérfræðingur fjármála sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
2.Fjárhagsáætlun 2026-2029
2505089
Minnisblað frá bæjarstjóra með tillögum um megin markmið fyrir vinnslu fjárhagsáætlunar 2026-2029.
Afgreiðsla:
Eftirfarandi markmið fyrir vinnslu fjárhagsáætlunar samþykkt samhljóða:
A - hluti:
1. Rekstarniðurstaða verði jákvæð um að lágmarki 1% af tekjum
2. Veltufé frá rekstri verði yfir 10% af tekjum til að standa undir afborgunum lána og sem mestu af fjárfestingum.
3. Lántaka nemi að hámarki 40% af fjárfestingum árið 2026.
4. Skuldastaða A - hluta fari ekki yfir 80% af tekjum.
5. Handbært fé í árslok verði að lágmarki 500 millj.kr.
6. Gjaldskrá þjónustugjalda haldist í takt við þróun verðlags.
7. Fjárfestingar verði sem mest fjármagnaðar með skatttekjum og söluhagnaði eigna á næstu árum, þannig að lántökum verði haldið í lágmarki.
A - og B - hluti:
1. Að standast fjárhagsleg viðmið um jafnvægisreglu og skuldareglu sbr. 64.gr. sveitarstjórnarlaga 138/2011.

3.Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
2009054
Erindi frá Ferðamálastofu þar sem fram kemur að umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til framkvæmda á Garðskaga er hafnað.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun samhljóða:
Bæjarráð lýsir miklum vonbrigðum með að enn og aftur skuli umsókn um framlag úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til nauðsynlegra framkvæmda á Garðskaga vera hafnað. Umsókn um framlag úr sjóðnum er í samstarfi við Reykjanes Jarðvang og Garðskagi er samkvæmt mælingum næst fjölsóttasti ferðamannastaður á Suðurnesjum á eftir Bláa Lóninu. Samþykkt samhljóða að farið verði fram á rökstuðning fyrir afgreiðslu Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á umsókn um styrk til framkvæmda á Garðskaga. Jafnframt að kallað verði eftir upplýsingum frá sjóðnum um framlög til Suðurnesja undanfarin ár í samanburði við önnur landsvæði.

4.Húsnæðisáætlun
2109054
Tillaga um húsnæðisáætlun Suðurnesjabæjar 2025.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að vísa húsnæðisáætlun til kynningar í framkvæmda-og skipulagsráði og til staðfestingar hjá bæjarstjórn.

5.Fisktækniskóli Íslands - ósk um húsnæði í Suðurnesjabæ
2406006
Erindi frá Fisktækniskóla Íslands með ósk um framlengingu á leigusamningi um húsnæði fyrir starfsemi skólans í Sandgerði.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að framlengja leigusamning við Fisktækniskóla Íslands til eins árs.

6.Sveitarfélagið Vogar - sameiningarmál
2309116
Erindi frá Reykjanesbæ þar sem fram kemur bókun bæjarstjórnar við síðari umræðu um valkostagreiningu vegna sameiningar sveitarfélaga.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
7.Samþykktir fyrir Kölku sf.
2505061
Samþykktir Kölku, með breytingu sem var samþykkt á aðalfundi dags. 10.04.2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
8.Lög um veiðigjöld 2025
2503171
Umsögn um frumvarp til laga um veiðigjöld.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi umsögn samhljóða:
Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald nr. 145/2018, 351.mál.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar tekur undir almennt sjónarmið um sanngjarna gjaldtöku fyrir afnot af auðlindum í þjóðareign, þar með talið sjávarauðlindum.
Bæjarráð leggur hins vegar áherslu á að sjávarútvegur er mjög mikilvæg atvinnugrein í mörgum sjávarbyggðum í landinu og skiptir miklu máli varðandi hagsmuni sveitarfélaga og samfélaga. Af þeim sökum er mjög mikilvægt að ákvarðanir um gjaldtöku fyrir afnot af sjávarauðlindum séu unnar í samráði við sveitarfélög, vegna þeirra miklu hagsmuna sem eru í húfi. Því miður hefur slíkt samráð ekki átt sér stað í þessu mikilvæga máli. Núverandi ríkisstjórn lýsti því yfir í stefnuyfirlýsingu sinni að ríkisstjórnin ætli að bæta samskipti ríkis og sveitarfélaga og treysta stoðir hinna dreifðu byggða, eftir því hefur ríkisstjórnin því miður ekki unnið í þessu máli.
Í umsögn um málið í samráðsgátt stjórnvalda gagnrýndi bæjarstjórn Suðurnesjabæjar m.a. harðlega að greiningar eða útreikningar á mögulegum áhrifum hærri veiðigjalda á einstök sveitarfélög hafi ekki legið fyrir. Það er lögbundin skylda samkvæmt 129.gr. sveitarstjórnarlaga að slíkar upplýsingar skuli liggja fyrir þegar lagafrumvörp eru lögð fram og sem hafa áhrif á hagsmuni sveitarfélaga. Bæjarráði þykir miður að slíkar upplýsingar liggi ekki ennþá fyrir, nú þegar frumvarp um breytingar á lögunum hefur verið lagt fram á Alþingi. Af þeim sökum hafa Samtök sjávarútvegssveitarfélaga látið vinna ítarlegar greiningar á mögulegum áhrifum á einstök sveitarfélög og vísar bæjarráð til þeirra gagna, um leið og hvatt er til þess að við umfjöllun málsins á Alþingi verði slíkar greiningar lagðar fram af hálfu viðkomandi ráðuneytis.
Samkvæmt greiningu sem KPMG vann fyrir Samtök sjávarútvegssveitarfélaga eru miklir hagsmunir í húfi fyrir Suðurnesjabæ og telur bæjarráð að mögulega muni boðuð hækkun á veiðigjaldi hafa neikvæð áhrif á tekjur bæjarsjóðs og hafnarsjóðs. Fram kemur í greiningu KPMG að vægi fiskveiða og fiskvinnslu sé um 14% í útsvarsgrunni sveitarfélagsins. Þar fyrir utan eru miklir hagsmunir í húfi varðandi afleidda þjónustu og störf sem tengjast starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja í Suðurnesjabæ.
Bæjarráð hvetur Alþingi til að taka tillit til þeirra miklu hagsmuna sem eru í húfi fyrir sjávarútvegssveitarfélög á Íslandi. Sveitarfélögin hafa almennt miklar áhyggjur af mögulegum neikvæðum áhrifum af hækkun veiðigjalda varðandi afkomu sveitarfélaga og þróun byggðar í fjölmörgum sveitarfélögum sem byggja að miklu leyti á starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja.
Bæjarráð vísar til og tekur undir umsögn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um málið, þar sem sjónum er fyrst og fremst beint að hagsmunum sveitarfélaga og samfélögum þeirra.
Auk þess vísar bæjarráð í umsögn bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar dags. 2.apríl 2025 um drög að frumvarpinu sem þá var í samráðsgátt stjórnvalda, enda er það frumvarp sem liggur fyrir Alþingi nánast óbreytt frá því frumvarpi sem birtist í samráðsgátt að öðru leyti en því að viðmið afsláttar veiðigjalds á minni útgerðir hefur verið hækkað.
Bæjarráð ítrekar hvatningu til ráðherra og Alþingis um að leggja sig betur fram um að eiga eðlilegt og sjálfsagt samráð við sveitarfélögin um þetta mikla hagsmunamál og sýna fram á hver möguleg áhrif verða á sveitarfélög og sjávarbyggðir ef frumvarpið verður að lögum.

9.Íþróttamannvirki
1901070
Tillaga frá meirihluta D-, O og S lista:
Mánudaginn 12. maí síðastliðinn var tillaga um stofnun nýs íþróttafélags í Suðurnesjabæ felld á aðalfundum Knattspyrnufélaganna Reynis og Víðis. Það er því ljóst að ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar um að unnið verði eftir áður samþykktri tillögu um uppbyggingu gervigrasvallar á aðalvelli Reynis, líkt og segir í málefnasamningi, öðlast gildi að nýju.
Skipulags- og umhverfissviði er falið að hefja að nýju hönnunarvinnu og kostnaðargreiningu vegna vallarins.
Þá verði íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að vinna að samningum við Knattspyrnufélögin Reyni og Víði um afnot af gervigrasvellinum.
Jafnframt er Skipulags-og umhverfissviði falið að kostnaðarmeta gerð nýrrar stúku og uppsetningu á vökvunarkerfi við aðalvöll Víðis auk bættrar æfingaaðstöðu fyrir yngri flokka í Garði, í samstarfi við félagið eins og segir í málefnasamningi.

Bæjarráð samþykkir tillöguna samhljóða.
Bæjarráð samþykkir tillöguna samhljóða.
10.Hviða fjárfestingafélag
2505091
Boð á aðalfund Hviðu fjárfestingafélags (áður Eignarhaldsfélag Suðurnesja) mánudaginn 2. júní 2025.
Afgreiðsla:
Bæjarráð samþykkir samhljóða að bæjarstjóri fari með umboð Suðurnesjabæjar á aðalfundinum.

11.Samtök sjávarútvegssveitarfélaga-fundargerðir
2210005
a) Fundargerð 88. fundar dags. 15.04.2025
b) Fundargerð 89. fundar dags. 07.05.2025
b) Fundargerð 89. fundar dags. 07.05.2025
Afgreiðsla:
Lagt fram.
Lagt fram.
Fundi slitið - kl. 16:19.
Lagt fram.