Fara í efni

Bæjarráð

165. fundur 14. maí 2025 kl. 15:30 - 17:00 í Ráðhúsinu í Garði
Nefndarmenn
  • Sigursveinn Bjarni Jónsson formaður
  • Einar Jón Pálsson varaformaður
  • Laufey Erlendsdóttir aðalmaður
  • Anton Kristinn Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Dagskrá

1.HB64 - K64 Hringrásariðngarður

2402073

Kynning á stöðu verkefnis hjá bakhjarlahópi samstarfsaðila. Pálmi Randversson, Bergný Jóna Sævarsdóttir og Elín Guðnadóttir hjá Kadeco voru gestir fundarins undir þessum dagskrárlið ásamt Jóni Ben Einarssyni sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

2.Fjárhagsáætlun 2025-2028 - Fjárfestingar

2405023

Yfirlit yfir framvindu fjárfestingaáætlunar tímabilið janúar - apríl 2025. Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags-og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

3.Skerjahverfi - Uppbygging innviða og útboð framkvæmda

2012054

Minnisblað frá sviðsstjóra skipulags-og umhverfissviðs með ósk um heimild til framkvæmda við næsta áfanga í Skerjahverfi. Jón Ben Einarsson sviðsstjóri skipulags-og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að veita heimild til framkvæmda við áfanga 3 í Skerjahverfi, samkvæmt minnisblaðinu.

4.Vinnuskóli 2025

2504078

Minnisblað frá íþrótta-og tómstundafulltrúa og forstöðumanni umhverfismiðstöðvar um vinnuskóla og sumarstörf 17 ára og eldri sumarið 2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

5.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - endurskoðun 2025

2503023

Umsögn til Alþingis um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að senda fyrirliggjandi umsögn um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til Alþingis.

6.Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf.

2406021

Fundarboð aðalfundar Keilis fimmtudaginn 30.maí 2025.
Afgreiðsla:
Samþykkt samhljóða að bæjarstjóri fari með umboð Suðurnesjabæjar á aðalfundinum.

7.Ársfundur HSS

2505022

Boð á ársfund HSS föstudaginn 23.maí 2025.
Afgreiðsla:
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 17:00.

Getum við bætt efni síðunnar?